„Fékk fyrsta taugaáfallið fimm ára“

Baldur Freyr Einarsson hefur sent frá sér bókina Úr heljargreipum. Þetta er ævisaga manns sem upplifði allar tegundir ofbeldis sem barn. Saga ungs manns sem fór á kaf í fíkniefni og glæpi og varð stórtækur fíkniefnasali og innflytjandi. Saga fullorðins manns sem „bjó í helvíti“ en rataði loks til baka. 

Saga Baldurs Freys sem hefur verið edrú í fjórtán ár og vinnur nú við að endurreisa fólk, eins og hann kallar það sjálfur.

Sagan hefst á litlum strák sem í raun átti aldrei möguleika á venjulegu lífi. „Ég fékk fyrsta taugaáfallið fimm ára,“ segir Baldur í Dagmálsþætti dagsins. Hann rekur sögu sína sem er í senn átakanleg og ógeðfelld en um leið staðfesting á því að það er alltaf von. Sama á hverju dynur.

Baldur Freyr er viðmælandi Eggerts Skúlasonar í Dagmálum í dag. Þættirnir eru aðgengilegir áskrifendum Morgunblaðsins en einnig er hægt að kaupa vikupassa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert