Ása og Björg skipaðar dómarar við Hæstarétt Kristín Ólafsdóttir skrifar 17. nóvember 2020 12:01 Ása Ólafsdóttir og Björg Thorarensen. Stjórnarráðið
Dómsmálaráðherra hefur ákveðið að leggja til við forseta Íslands að Ása Ólafsdóttir og Björg Thorarensen verði skipaðar dómarar við Hæstarétt Íslands frá 23. nóvember 2020. Ása Ólafsdóttir lauk embættisprófi í lögfræði frá lagadeild Háskóla Íslands árið 1996 og framhaldsnámi í lögfræði frá Cambridge-háskóla árið 2000. Hún starfaði að námi loknu sem lögmaður um árabil og hefur flutt fjölda mála fyrir dómstólum. Hún öðlaðist málflutningsréttindi fyrir Hæstarétti Íslands árið 2005. Frá árinu 2008 hefur Ása lengst af gegnt fullu starfi við lagadeild Háskóla Íslands, þar af sem dósent frá árinu 2012 og prófessor frá 2018. Þá hefur hún sinnt umfangsmiklum fræðastörfum, einkum á sviði fjármunaréttar og réttarfars. Ása var settur dómari við Landsrétt 25. febrúar-30. júní 2020 og að auki hefur hún sinnt fjölmörgum öðrum störfum, svo sem formennsku í gjafsóknarnefnd og óbyggðanefnd, og komið að því að semja fjölda lagafrumvarpa. Björg Thorarensen lauk embættisprófi í lögfræði frá lagadeild Háskóla Íslands árið 1991 og framhaldsnámi í lögfræði frá Edinborgarháskóla árið 1993. Hún starfaði í dómsmálaráðuneytinu um árabil að námi loknu, þar af sem skrifstofustjóri um sex ára skeið. Frá árinu 2002 hefur Björg verið prófessor við lagadeild Háskóla Íslands og samhliða því sinnt umfangsmiklum fræðastörfum, einkum á sviði stjórnskipunaréttar og mannréttinda, en einnig á sviði þjóðaréttar, persónuverndarréttar, stjórnsýsluréttar og sakamálaréttarfars. Björg var settur dómari við Landsrétt 1. janúar–30. júní 2020 og að auki hefur hún sinnt fjölmörgum öðrum störfum, þ. á m. sem umboðsmaður ríkisstjórnar Íslands við Mannréttindadómstól Evrópu og sem formaður stjórnar Persónuverndar um árabil. „Mikilvægt skref í jafnræðisátt“ Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra segir í færslu um skipanirnar á Facebook-síðu sinni í dag að um sé að ræða mikilvægt skref í jafnræðisátt, þar sem nú verði þrír af sjö dómurum við Hæstarétt konur. „Það er fagnaðarefni að slíkt gerist á 100. afmælisári Hæstaréttar Íslands,“ skrifar Áslaug og rifjar af þessu tilefni upp lokaorð ræðu sinnar sem hún flutti á afmælishátíð réttarins 16. febrúar. „Þótt margt hafi þróast til betri vegar í störfum og starfsumhverfi Hæstaréttar á liðnum árum og áratugum verður ekki hjá því komist að nefna hve seint og illa hefur reynst að tryggja jafnræði kynjanna meðal dómara réttarins. Kona var fyrst skipuð dómari við Hæstarétt árið 1986 en það var Guðrún Erlendsdóttir. Á 100 ára afmælinu eru aðeins 2 dómarar af 7 konur. Á árum áður voru karlar vissulega mun fleiri en konur í hópi lögfræðinga. Sú staða hefur gjörbreyst. Konur eru nú mjög áberandi á meðal lögmanna, dómara og kennara í lagadeildum háskólanna. Vonandi kemur til þess fyrr en síðar að staðan verði jafnari hvað varðar dómaraskipun við æðsta dómstól þjóðarinnar.“
Dómstólar Vistaskipti Tengdar fréttir Öll sem sóttu um embætti Hæstaréttardómara jafn hæf Dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara hefur komist að þeirri niðurstöðu að allir sex sem sóttu um tvö laus embætti í Hæstarétti séu jafn hæfir. 5. nóvember 2020 21:56 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju Erlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Innlent Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Innlent Fleiri fréttir Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Telur ekki óeðlilegt að sýna mótmælendum samstöðu Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Sjóslys, Þórkatla og framtíð Play Kvikusöfnunin áfram stöðug Tóku niður íslenska svikasíðu með FBI Hafna tilboðum í áætlunarflug milli Reykjavíkur og Hornafjarðar Sjá meira
Öll sem sóttu um embætti Hæstaréttardómara jafn hæf Dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara hefur komist að þeirri niðurstöðu að allir sex sem sóttu um tvö laus embætti í Hæstarétti séu jafn hæfir. 5. nóvember 2020 21:56