Ten Hag ánægður með sönginn sem stuðningsmenn United sömdu um hann Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. maí 2022 09:30 Erik ten Hag fær margar spurningar um Manchester United þessa dagana. EPA-EFE/KOEN VAN WEEL Erik ten Hag tekur við liði Manchester United í sumar, eins og flestir vita, en hann er enn stjóri Ajax til loka þessa tímabils.
Það þýðir um leið að blaðamannafundir Ajax-liðsins snúast orðið svolítið mikið um enska stórliðið enda vilja margir blaðamenn fá að heyra skoðanir Ten Hag á ástandinu hjá Manchester United. Stuðningsmenn United eru meira en tilbúnir að fá nýtt blóð inn í félagið en stjórarnir hafa komið og farið síðan að Sir Alex Ferguson hætti með liðið. Ralf Rangnick hefur ekki náð stjórn á liðinu og United missti fyrir vikið af Meistaradeildinni á næstu leiktíð sem eru mikil vonbrigði. View this post on Instagram A post shared by ESPN NL (@espnnl) Það er því kannski ekkert skrýtið að stuðningsmenn United séu þegar farnir að syngja til næsta stjóra og nýr söngur um Erik ten Hag vakti lukku hjá honum sjálfum. Stuðningsmennirnir leyfa sér nefnilega að dreyma um betri tíma undir stjórn nýja stjórans og voru nokkuð sniðugir þegar þeir settu saman þennan nýjan söng um Erik ten Hag. Þeir nýta sér það að nafn hans er ten Hag sem er hægt að skilja á ensku sem tíu Hag. Nýi söngurinn snýst því um að telja upp í tíu Hag með því að byrja á einn Hag (one Hag), tveir Hag (two Hag), þrír Hag (three Hag) og svo framvegis þegar til að þeir ná að telja upp í tíu Hag (ten Hag). Ten Hag var einmitt spurður út í þennan söng um sig á blaðamannafundi Ajax á dögunum. Hann var sáttur eins og sjá má hér fyrir ofan og lesa hér fyrir neðan. „Má ég spyrja þig einnar spurningar í viðbót um Manchester United. Sástu nýja sönginn?“ spurði hollenski blaðamaðurinn. „Já, ég sá hann. Hann er góður. Þeir eru hugvitssamir,“ sagði Erik ten Hag brosandi.
Enski boltinn Mest lesið Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Enski boltinn Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Fótbolti Reykti tvo pakka, át fjögur súkkulaðistykki og drakk tvær kókdósir á fyrsta hringnum Golf Efsti maður heimslistans tók upphitunina í fangaklefanum Golf Schauffele heldur forystunni en Tiger langt frá niðurskurðinum Golf Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Fótbolti Snorri Barón um Söru: „Ógeð sem enginn á að þurfa að ganga í gegnum“ Sport Koddaslagur sjónvarpsstjörnu endaði með ósköpum Sport Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Fótbolti Fleiri fréttir Arteta vonast eftir hjálp frá Moyes: „Vonandi gerist eitthvað dásamlegt“ Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Meiðslapésarnir fara frá Liverpool Slot staðfestir að hann taki við Liverpool Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn Klopp enn fúll út í Maddison eftir að Liverpool missti af titlinum 2019 Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Tímabilið búið hjá Ederson og City treystir á Ortega í síðustu tveimur leikjunum Chelsea sló spjaldametið í deildinni Hjólaði frá Mongólíu og grét af gleði þegar hann hitti hetjuna Umboðsmaður Olise dæmdur í sex mánaða bann Rashford reiður og reifst við áhorfanda fyrir leik Man. United sagði konunum ekki frá ákvörðuninni Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Gerir sér grein fyrir erfiðu tímabili: „Þið eruð bestu stuðningsmenn í heimi“ United lyfti sér upp að hlið Newcastle Evrópudraumurinn lifir góðu lífi eftir fjórða sigurinn í röð Everton boðið neyðarlán til að klára nýja heimavöllinn Félagaskiptaglugganum lokað fyrr en vanalega í sumar Stjóri Spurs ósáttur við viðhorfið: „Þetta er utan félagsins, innan þess, alls staðar“ Segir að Ortega hafi unnið titilinn fyrir City Ten Hag vísar gagnrýni Rooneys til föðurhúsanna United íhugar að ráða stjóra Ipswich sem eftirmann Ten Hags Telja að Bruno verði áfram á Old Trafford Sagði sína menn hafa þurft að þjást og hrósaði varamarkverðinum Varamarkmaðurinn og Håland hetjurnar: Man City á toppinn fyrir lokaumferðina Emirates verður aðalheimavöllur Arsenal á næstu leiktíð Guardiola: Arsenal verður meistari ef við vinnum ekki Tottenham Var með 0,99 í xG en skoraði samt ekki Sjá meira