Tveggja metra regla um allt land á ný Kristín Ólafsdóttir skrifar 16. október 2020 12:53 Guðmundur Ingi Guðbrandsson, starfandi heilbrigðisráðherra. Vísir/Vilhelm
Tveggja metra reglan verður innleidd á öllu landinu á ný þegar ný reglugerð heilbrigðisráðherra um kórónuveiruaðgerðir tekur gildi í næstu viku. Þetta sagði Guðmundur Ingi Guðbrandsson starfandi heilbrigðisráðherra í samtali við fréttastofu að loknum ríkisstjórnarfundi rétt í þessu. Tveggja metra fjarlægðarmörk eru nú aðeins í gildi á höfuðborgarsvæðinu, samkvæmt reglugerð ráðherra sem tók gildi í byrjun október. Annars staðar á landinu hafa fjarlægðarmörk miðast við einn metra. Gert er ráð fyrir að breytingin taki gildi frá og með næsta þriðjudegi, 20. október, og gildi í tvær til þrjár vikur. Guðmundur fór yfir breytingarnar í viðtali við fréttastofu í hádeginu. Guðmundur segir að áframhaldandi aðgerðir verði í grundvallaratriðum þær sömu og verið hafa í gildi síðustu vikur. Þó verði sömu reglur um sviðslistir takmarkaðar á sama hátt um land allt. Jafnframt verði þau tilmæli sem gilt hafa um íþróttaiðkun gerð að reglum. Þannig muni sömu reglur gilda um íþróttastarf bæði innan- og utandyra. Núverandi reglur kveða á um að íþróttir og líkamsrækt innandyra sé óheimil á höfuðborgarsvæðinu. Reglur um opnunartíma veitingastaða verða óbreyttar en þeim er nú gert að loka klukkan 21 á kvöldin á höfuðborgarsvæðinu og klukkan 23 utan þess. Ekki verða heldur gerðar breytingar á reglum um skólahald. Áfram verða í gildi tilmæli um að fólk haldi ferðalögum sínum til og frá höfuðborginni í lágmarki. Guðmundur segir að ríkisstjórnin hafi verið sammála um aðgerðirnar, sem séu í samræmi við tillögur sem sóttvarnalæknir skilaði til ráðherra í gær. Guðmundur á von á því að hægt verði að útlista aðgerðirnar endanlega á morgun. Fréttin hefur verið uppfærð.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Samkomubann á Íslandi Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Tengdar fréttir Boðar áframhaldandi hertar aðgerðir Katrín Jakobsdóttir forsætisráhðerra vonar að hækkandi hlutfall fólks sem greinist hér á landi í sóttkví séu merki um að hertar aðgerðir séu að skila árangri. Um leið berist fréttir af andláti vegna Covid-19 sem minni á mikilvægi aðgerða. 16. október 2020 12:46 Lést af völdum Covid-19 á Landspítala Einn sjúklingur lést á síðasta sólarhring á Landspítala vegna Covid-19. Þetta kemur fram á vef Landspítala. 16. október 2020 11:26 67 greindust innanlands í gær og fjórir nú á gjörgæslu 67 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. 45 þeirra sem greindust voru í sóttkví við greiningu, en 22 ekki. 16. október 2020 11:02 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Meðvirkni í garð Katrínar að tjá sig ekki um hana Innlent Tók upp þegar hann nauðgaði kærustu sinni í tvígang Innlent Maðurinn sem kveikti í sjálfum sér látinn Erlent Getur gosið hvenær sem er Innlent „Aldeilis hlessa“ á auknum viðbúnaði vegna mögulegs goss Innlent Fluttir á sjúkrahús eftir hópslagsmál í miðborginni Innlent Að taka afstöðu er einkamál hvers og eins Innlent Sprengjuhótun í Billund Erlent Þjófunum yfirsást taska með milljónum króna Innlent Pollrólegur í viðtali í 45 metra hæð yfir borginni Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sigurður Ingi, Lilja og Einar ávarpa flokksþing Framsóknar „Aldeilis hlessa“ á auknum viðbúnaði vegna mögulegs goss Jarðhræringar, sprengjuhótun og kíghósti Meðvirkni í garð Katrínar að tjá sig ekki um hana Fluttir á sjúkrahús eftir hópslagsmál í miðborginni Getur gosið hvenær sem er Að taka afstöðu er einkamál hvers og eins Besti vinur úlfanna hlakkar til að tengjast áhorfendum í Hörpu Pollrólegur í viðtali í 45 metra hæð yfir borginni Tilkynnti sig tvisvar til barnaverndar til að fá aðstoð fyrir einhverfa dóttur Bandarísk þota í vandræðum lenti í Keflavík Þjófunum yfirsást taska með milljónum króna Framkvæmdastjórinn sagður hafa greitt sjálfum sér án heimildar Yfirvofandi eldgos, örvæntingarfull móðir og Hamraborgarþjófarnir Eiga von á öðru eldgosi Maður með kókaín í niðursuðudósum fær mildari dóm Tók upp þegar hann nauðgaði kærustu sinni í tvígang Öllum dómurum skipt út í milljarðamáli fyrrverandi ráðherra Skoðar róttækar breytingar á vaxtabótakerfinu Baldur segir lygasögur ekki hafa nein áhrif á þá Felix Ráðnar aðstoðarmenn nýrrar ríkisstjórnar Átta forsetaefni klár með listana Þórhildur og Heiða María hlutu Hvatningarverðlaun Rannsóknasjóðs Taska stútfull af milljónum króna enn ófundin Ófundin peningataska, aukin spenna í Mið-Austurlöndum og breyting á vaxtabótum Svona var Pallborðið með Baldri, Höllu Hrund og Jóni Guðmundur H. Garðarsson fallinn frá Sakaður um fjölda afbrota: Ungar stúlkur einar heima urðu skelkaðar þegar hann ruddist inn Helga ekki tilbúin að henda inn handklæðinu Kallað út vegna eldamennsku við Stuðlaháls Sjá meira
Boðar áframhaldandi hertar aðgerðir Katrín Jakobsdóttir forsætisráhðerra vonar að hækkandi hlutfall fólks sem greinist hér á landi í sóttkví séu merki um að hertar aðgerðir séu að skila árangri. Um leið berist fréttir af andláti vegna Covid-19 sem minni á mikilvægi aðgerða. 16. október 2020 12:46
Lést af völdum Covid-19 á Landspítala Einn sjúklingur lést á síðasta sólarhring á Landspítala vegna Covid-19. Þetta kemur fram á vef Landspítala. 16. október 2020 11:26
67 greindust innanlands í gær og fjórir nú á gjörgæslu 67 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. 45 þeirra sem greindust voru í sóttkví við greiningu, en 22 ekki. 16. október 2020 11:02