Körfubolti

Giannis dró vagninn í naumum sigri | Curry tryggði sigurinn með flautukörfu

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Stephen Curry reyndist hetja Golden State Warriors í nótt.
Stephen Curry reyndist hetja Golden State Warriors í nótt. Lachlan Cunningham/Getty Images

NBA-deildin í körfubolta hélt áfram í nótt með ellefu leikjum. Giannis Antetokounmpo dró sína menn í Milwaukee Bucks yfir endalínuna í naumum fjögurra stiga sigri gegn Chicago Bulls, 94-90, og Steph Curry reyndist hetja Golden State Warriors er liðið lagði Houston Rockets 105-103.

Leikurinn var jafn allt frá fyrstu mínútu og lítið sem ekkert gat skilið liðin að. Liðin skiptust alls 16 sinnum á að hafa forystuna og 15 sinnum var jafnt í leiknum. Milwaukee leiddi með fjórum stigum eftir fyrsta leikhluta, en munurinn var aðeins eitt stig þegar flautað var til hálfleiks.

Sömu sögu er að segja af síðari hálfleik, en þegar komið var að lokaleikhlutanum leiddu Chicago-menn með einu stigi.

Það voru þó liðsmenn Milwaukee sem reyndust sterkari á lokakaflanum. Tæpara gat það þó varla verið, en eins og áður sagði vann liðið með fjórum stigum, 94-90.

Giannis Antetokounmpo var atkvæðamestur í liði Milwaukee með 30 stig, 12 fráköst og þrjár stoðsendingar. DeMar DeRozan var stigahæstur í liði Chicago með 35 stig.

Ekki var dramatíkin minni í leik Golden State Warriors og Houston Rockets. Gestirnir frá Houston byrjuðu leikinn betur og fóru með ellefu stiga forskot inn í hálfleikinn.

Stríðsmennirnir mættu tilbúnir til leiks í síðari hálfleik og jöfnuðu metin áður en komið var að lokaleikhlutanum þar sem jafnt var á öllum tölum fram á síðustu stundu.

Golden State jafnaði metin í 103-103 þegar tæplega ein og hálf mínúta var til leiksloka, en bæði lið klikkuðu á hverju skotinu á fætur öðru eftir það. Það er alveg þangað til að rétt rúm ein sekúnda var eftir á klukkunni. Þá keyrði Steph Curry á Kevin Porter, tók eitt skref til baka og setti niður tvö stig til að tryggja sigurinn í þann mund sem lokaflautið gall.

Öll úrslit næturinnar

Oklahoma City Thunder 98-121 Charlotte Hornets

Los Angeles Lakers 116-105 Orlando Magic

Los Angeles Clippers 102-101 Philadelphia 76ers

Miami Heat 108-110 Atlanta Hawks

Portland Trailblazers 109-105 Boston Celtics

Toronto Raptors 109-105 Washington Wizards

Chicago Bulls 90-94 Milwaukee Bucks

Brooklyn Nets 117-102 San Antonio Spurs

Memphis Grizzlies 122-118 Denver Nuggets

Detroit Pistons 101-111 Utah Jazz

Houston Rockets 103-105 Golden State Warriors

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×