Átta féllu í skotárás í rússneskum háskóla Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 20. september 2021 08:56 Löreglubíll fyrir utan Ríkisháskólann í Perm í morgun. Vopnaður maður gekk berserksgang þar og myrti fjölda fólks. AP/Anastasia Jakovleva Byssumaður skaut átta til bana og særði marga til viðbótar í háskóla í rússnesku borginni Perm í morgun. Að sögn innanríkisráðuneytis landsins er árásarmaðurinn í haldi en talsmaður skólans segir að hann hafi verið felldur.
Reuters-fréttastofan fullyrðir að morðinginn sé nemandi við skólann og hefur eftir talskonu hans að maðurinn hafi sjálfur verið felldur. Á sjónvarpsmyndum frá vettvangi hafi lík hans sést liggja á jörðinni. AP-fréttaveitan greinir frá því að maðurinn hafi verið vopnaður byssu sem framleidd er fyrir gúmmíkúlur, en slíkum vopnum mun vera auðvelt að breyta þannig að þær skjóti venjulegum byssukúlum. Námsmenn og kennarar við skólann lokuðu sig inni í stofum sínum þegar skothríðin hófst og var fólk hvatt til að flýja skólalóðina ef það mögulega gat. Sumir stúdentanna munu hafa stokkið út um glugga byggingarinnar til að sleppa undan byssumanninum. Óljóst er hve margir eru slasaðir, sumar heimildir tala um sex en aðrar um fjórtán. Fjölmiðlar á svæðinu segja að morðinginn sé átján ára gamall háskólanemi sem hafði birt myndir af sér með riffil, hjálm og skotfæri á samfélagsmiðlum fyrir árásina. Hann hafi lýst því hvernig hann hafi lengi dreymt um að fremja ódæði sem þetta. Reikningurinn var síðar fjarlægður. Perm er í ellefuhundruð kílómetra fjarlægð frá höfuðborginni Moskvu og þar býr um ein milljón manna. Í háskólanum eru um tólf þúsund nemendur. Í maí síðastliðnum var svipuð árás gerð í háskólanum í Kazan þar sem sjö námsmenn létu lífið og tveir kennarar.
Rússland Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Sáu ekki andlit huldumanns sem þeir telja vera Pétur Jökul Innlent „Erum hér í kvöld svo þetta gerist ekki í þögn“ Innlent Vænsti maður og harðduglegur Innlent Heimafæðingum fjölgar og teljast eðlilegri en áður Innlent Var í símanum á 142 kílómetra hraða áður en hann lést Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Mig langaði bara að drepa þennan mann“ Innlent Bíllinn í happdrætti Ástþórs úr hans eigin smiðju Innlent Næsta gos gæti hafist á hverri stundu Innlent Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi vegna ofsaaksturs undir áhrifum Innlent Fleiri fréttir Færeyingar fjölga vindmyllum til að draga úr olíukyndingu Ein blóðugasta kosningabarátta í manna minnum „Rússneskum lögum“ hraðað áfram þrátt fyrir hávær mótmæli Þrír menn ákærðir í Bretlandi vegna tengsla sinna við Hong Kong Staðfestir flokkun AfD sem öfgasamtaka Sló eigið met á Everest Kórónuveirufaraldurinn ekkert miðað við sýklalyfjaónæmi Aftur barist í norðurhluta Gasa á meðan þúsundir flýja Rafah Aðskilnaðarsinnar að missa þingmeirihluta í Katalóníu Pútín skiptir um varnarmálaráðherra Fjölbýlishús hrundi í Belgorod Fyrsti lifandi svínsnýrnaþeginn er látinn Mótmælin gegn „rússnesku“ lögunum stækka enn Palestína fær aukna þáttöku á allsherjarþingi SÞ Hundruð létust í flóðum Fyrirskipa þúsundum að yfirgefa Rafah Hollenska söngvaranum bannað að keppa í kjölfar „hótana“ Evrópa böðuð bleiku Líklegt að Ísraelar hafi brotið alþjóðalög með bandarískum vopnum Hefja árásir nærri Karkív Selenskí bauð Bjarna á friðarfund í Sviss Reyndu aftur að fá málið fellt niður vegna Stormy Daniels Segja lögregluþjón hafa bankað á rangar dyr og skotið ungan mann Ísraelsstjórn vígreif þrátt fyrir viðsnúning Bandaríkjamanna Færeyingar áforma 4.500 króna aðgangseyri á alla ferðamenn Börnum safnað saman og þau skotin Skotið á íbúa Rafah og heilbrigðiskerfi Gasa hrunið Ellefu slasaðir eftir að flugtak Boeing 737 mistókst Lýsa hræðilegu ofbeldi fyrir sjóslys þar sem tugir létu lífið Takmarkar hernaðaraðstoð verði gerð árás á Rafah Sjá meira