Erlent

Þrettán skelfilegar mínútur

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Blómvendir lagðir við inngang Fields til minningar um þau sem létust í árásinni.
Blómvendir lagðir við inngang Fields til minningar um þau sem létust í árásinni. AP

Maðurinn sem er grunaður um að hafa skotið þrjá til bana í verslunarmiðstöð í Kaupmannahöfn í gær verður í varðhaldi á geðdeild út mánuðinn. Myndbönd úr eftirlitsmyndavélum gætu skipt sköpum við rannsókn málsins.

Örvinglun og skelfing greip um sig meðal fólks í og við Fields-verslunarmiðstöðina þegar skothríð hófst þar inni síðdegis í gær. 22 ára danskur karlmaður var handtekinn á vettvangi.

Myndbönd eins og sjást í fréttinni hér fyrir ofan, sem sýna manninn ganga um verslunarmiðstöðina með riffil og skjóta, dreifðust hratt á samfélagsmiðlum í gær. Lögreglu hefur borist gríðarlegt magn myndefnis af árásinni og hún telur að jafnvel verði hægt að kortleggja framvindu árásarinnar í heild með upptökum úr eftirlitsmyndavélum inni í Fields.

„Frá 17:35, þegar við fáum tilkynningu, og þar til við handtökum hinn grunaða klukkan 17:48, líða 13 mínútur. Þessar 13 mínútur liðu eins og heil eilífð og það sem gerðist á þessum 13 mínútum er það sem við þurfum að rannsaka og teikna upp,“ sagði Dannie Rise hjá lögreglunni í Kaupmannahöfn sem fer fyrir rannsókninni á blaðamannafundi síðdegis.

Maðurinn var leiddur fyrir dómara í dag og ákærður fyrir að hafa orðið þremur að bana og gert tilraun til að bana sjö. Hin látnu voru sautján ára Danir, piltur og stúlka, auk rússnesks ríkisborgara á fimmtugsaldri. Lögregla telur engin tengsl milli mannsins og þeirra sem hann skaut á. Ástæðan að baki voðaverkinu er enn í rannsókn.

Falleg stund í Jónshúsi

Prestur íslenska sendiráðsins í Kaupmannahöfn og fulltrúar sendiráðsins tóku á móti tuttugu Íslendingum í Jónshúsi í dag.

„Fólk var ánægt með að fá tækifæri til að koma og spjalla, létta aðeins á hjarta sínu og hitta og tala við aðra sem höfðu verið í Fields í gærkvöldi og voru að upplifa svolítið það sama og það sjálft,“ segir Helga Hauksdóttir, sendiherra Íslands í Kaupmannahöfn.

Þó að lífið gangi sinn vanagang í borginni séu Danir slegnir.

„Þetta hefur auðvitað áhrif á fólk. Og ég er alveg viss um það að þetta er svona atburður sem fólk mun ekkert gleyma svo glatt,“ segir Helga.


Tengdar fréttir

Kanna hvort á­stæða sé til að herða vopna­lög­gjöfina

„Það þyrmir yfir mann hreinlega, yfir svona fullkomlega tilgangslausu ódæðisverki,“ segir Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra um skotárásina sem gerð var í Fields-verslunarmiðstöðinni í Kaupmannahöfn í gær.

„Ég heyrði skothljóð en ætlaði samt ekki að trúa þessu“

Íslensk kona sem var við störf í verslunarmiðstöðinni Fields í Kaupmannahöfn í gær þegar árásarmaður hóf skothríð segir upplifunina bæði skelfilega og óraunverulega. Sendiherra Íslands í Kaupmannahöfn segir borgarbúa slegna. Opið hús verður í Jónshúsi í Kaupmannahöfn þar sem Íslendingar geta rætt við prest og starfsmenn sendiráðsins.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×