Almar sá fimmti sem sækist eftir fyrsta sæti VG á Suðurlandi Vésteinn Örn Pétursson skrifar 27. febrúar 2021 12:06 Almar sækist eftir fyrsta sæti á lista VG í Suðurkjördæmi. Aðsend Almar Sigurðsson, sem rekur Gistiheimilið á Lambastöðum í Flóahreppi, gefur kost á sér í forvali Vinstri Grænna í Suðurkjördæmi fyrir næstu Alþingiskosningar, og sækist eftir fyrsta sæti. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Almari.
Almar hefur gegnt formennsku í Svæðisfélagi VG í Árnessýslu, setið í stjórn kjördæmaráðs og verið formaður uppstilinganefnda í þing- og sveitastjórnarkosningum. „Ég bý á Lambastöðum í Flóahreppi en er fæddur og uppalinn á Selfossi. Ég hef því sterkar taugar til Suðurlands og vil láta gott af mér leiða. Ég hef fjölbreytta reynslu úr atvinnulífinu, bæði sem launþegi og atvinnurekandi, en nú rek ég ásamt konu minni Gistiheimilið á Lambastöðum. Náttúruvernd er mitt hjartans mál og ég styð frumvarp um þjóðgarð á hálendinu. Það eru náttúruperlur víða á Suðurlandi sem þarf að verja fyrir stórframkvæmdum, Eldvörpin á Reykjanesi, Þjórsáin, Mýrdalurinn norðan Dyrhólaós og Fjallabakssvæðið, svo eitthvað sé nefnt. Ég hef tekið virkan þátt í baráttu gegn áformum um virkjanir í neðri hluta Þjórsá. Enn þá er ekki búið að raska náttúrunni og lífríkinu þar og enn getum við unnið þann slag. Ég vil leggja mitt af mörkum til að styrkja og endurreisa atvinnulífið á Suðurlandi. Margir hafa orðið fyrir þungu höggi í okkar kjördæmi að undanförnu og verkefnið hlýtur að vera að endurheimta störfin. Ferðaþjónustan skipar stórt hlutverk í endurreisninni,“ segir í tilkynningunni. Þá segir Almar landbúnað vera mikilvæga stoð í atvinnulífinu og að aðstæður á Suðurlandi séu ákjósanlegar til matvælaframleiðslu. Mikilvægt sé að standa vörð um greinina. „Það er mín skoðun að við eigum að byggja afkomu okkar á litlum og meðalstórum fjölskyldufyrirtækjum, það þýðir dreifða eignaraðild og blómlega búsetu og atvinnu um allt kjördæmið.“ Fyrir liggur að hart verður barist um efsta sætið á Suðurlandi, en áður en Almar tilkynnti um framboð lágu fyrir fjögur önnur. Þau Kolbeinn Óttarsson Proppé alþingismaður, Hólmfríður Árnadóttir skólastjóri í Sandgerði, Róbert Marshall upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar og Heiða Guðný Ásgeirsdóttir, bóndi og varaþingmaður, höfðu öll tilkynnt um að þau sæktust eftir sætinu.
Alþingiskosningar 2021 Suðurkjördæmi Vinstri græn Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Innlent Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Innlent Karlremba sé komin í tísku Innlent Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Innlent Voru með stæla og neituðu að fara upp úr fyrr en löggan mætti Innlent Lögregla kölluð út vegna ungmenna til leiðinda í sundlaug Innlent Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Innlent Helga lenti einnig í vandræðum Innlent Mögulega að hægjast á landrisi í Svartsengi Innlent Líklegt að það styttist í brotmörk Innlent Fleiri fréttir Sigurvin dró smábát í land Vill að fréttastofa RÚV biðji Maríu Sigrúnu afsökunar Lögreglan lofar góðu vegaeftirliti á Suðurlandi í sumar Landskjörsstjórn tilkynnir á morgun hvaða listar eru gildir Mögulega að hægjast á landrisi í Svartsengi Karlremba sé komin í tísku Voru með stæla og neituðu að fara upp úr fyrr en löggan mætti Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Sprengisandur: Peningastefna, ESB og lagareldi Lögregla kölluð út vegna ungmenna til leiðinda í sundlaug Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Minni lyfjanotkun og meiri vellíðan í sérstöku heilabilunarþorpi Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Líklegt að það styttist í brotmörk Helga lenti einnig í vandræðum Eiríkur og Ástþór fá frest til að bæta við undirskriftum Hættuástand í Grindavík og æsispennandi forsetakosningar Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Handteknir á hlaupum eftir vopnað rán í Reykjavíkurapóteki Björk varar við frumvarpi um sjókvíeldi Uppgangur Höllu Hrundar fari fyrir brjóstið á „valdastéttinni“ Mikil gleði þegar Bergur komst í mark Segir engin annarleg sjónarmið að baki ákvörðun RÚV Hraun mjakast yfir varnargarð Ný gossprunga geti opnast fyrirvaralaust á næstunni Allt að gerast í Vík í Mýrdal um helgina Stór gossprunga gæti opnast fyrirvaralaust Fylgi Höllu Hrundar ekki fast í hendi Tíu kílómetrar eftir af hundrað: Gangan miklu erfiðari en hann óraði fyrir 800 milljóna króna hreinsistöð byggð á Selfossi Sjá meira