Viðskipti innlent

Funduðu með ráð­herra um af­­nám tolla á blómum, frönskum og fugla­kjöti

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Fundarmenn hlýða á Ragnar Þór Ingólfsson, formann VR.
Fundarmenn hlýða á Ragnar Þór Ingólfsson, formann VR. Mynd/FA

Fulltrúar VR, Landssambands íslenzkra verslunarmanna, Rafiðnaðarsambandsins og Félags atvinnurekenda funduðu með Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra í morgun, þar sem rætt var um tollamál.

Á fundinum voru meðal annars gerðar bókanir við kjarasamninga FA og stéttarfélaganna, sem kveða á um að samtökin muni í sameiningu beita sér gagnvart stjórnvöldum til að knýja á um lækkun tolla til að bæta hag launþega.

Frá þessu er greint á vefsíðu Félags atvinnurekenda.

Þar segir að samtökin hefðu bent á að verðbólga hefði aukist á ný og að leita þyrfti allra leiða tli að stemma stigu við henni og varðveita nýumsamdar kjarabætur. Þá voru þrjár tillögur kynntar fyrir ráðherra, sem byggja á eldri tillögum Samkeppniseftirlitsins og Samráðsvettvangs um aukna hagsæld:

  • Tollar verði felldir niður af alifugla- og svínakjöti og frönskum kartöflum. Tollar falli niður af blómum sem ekki eru ræktuð á Íslandi. Tollar á t.d. túlipönum og rósum falli niður á tímabilum þegar innlend framleiðsla annar ekki eftirspurn.
  • Innlendum afurðastöðvum búvöru og vinnslustöðvum í þeirra eigu verði óheimilt að bjóða í eða sækjast eftir tollkvóta fyrir innfluttar landbúnaðarafurðir, sbr. tillögur Samkeppniseftirlitsins frá 2012. Skoðaðar verði leiðir til að úthluta tollkvótum án endurgjalds, sbr. sömu tillögur.
  • Tollar á mjólkur- og undanrennudufti og smjöri falli niður, sbr. tillögur Samkeppniseftirlitsins frá 2015.

FA segir tillögurnar fyrst og fremst beinast gegn tollum sem vernda ekki hefðbundna sauðfjár- og nautgriparækt.

„Í tilviki alifugla- og svínakjötsræktar er um að ræða verksmiðjubúskap, sem að stórum hluta er í þröngu eignarhaldi. Framleiðsla á frönskum kartöflum hefur lagst af á Íslandi. Háir tollar eru lagðir á alls konar blóm sem ekki eru ræktuð á Íslandi og eins þarf að greiða háa tolla af innflutningi blóma, þar sem innlend framleiðsla annar engan veginn eftirspurn. Háir tollar á hráefnum eins og mjólkurdufti og smjöri bitna á innlendri matvælaframleiðslu, sem er í raun þvinguð til að kaupa aðföng sín af einu fyrirtæki, Mjólkursamsölunni, á háu verði. Afleiðingin er hækkun verðs til neytenda. Þá hafa innlendir framleiðendur búvöru, einkum svína- og ailfuglakjöts, náð til sín meirihluta tollkvóta fyrir viðkomandi afurðir með því að bjóða hátt í hann, stuðla þannig að hærra verði og hindra samkeppni við eigin afurðir,“ segir á vef FA.

Samtökin munu funda með Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra í næstu viku.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×