Eina með Gaupa: Bjargvættur handboltans í Eyjum veðjaði á heimafólkið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. október 2021 11:30 Magnús Bragason ræðir við Gaupa en til hægri fagna Eyjamenn einum af mörgum titlum liðsins á síðustu árum. Samsett/S2 Sport&Daníel Guðjón Guðmundsson verður með reglulegan dagskrárlið í Seinni bylgjunni í vetur og í gær var frumsýnd nýjasta Eina innslagið hans Gaupa þar sem hann ræddi við Magnús Bragason, hótelstjóra og bjargvætt handboltans í Vestmannaeyjum. „
ÍBV er eina stórveldið í handboltanum utan Stór-Reykjavíkursvæðsins. Það eru fáir sem vita að árið 2008 átti að leggja handboltann í Eyjum niður,“ sagði Guðjón Guðmundsson og kynnti til leiks manninn sem kom í veg fyrir að handboltinn í Vestmannaeyjum yrði lagður niður. „Magnús var formaður handknattleiksdeildar ÍBV frá 1997 til 2003 og aftur fékk hann deildina í fangið árið 2008 með tæpar fimmtíu milljónir í mínus og þá vildu menn leggja handboltann í Vestmannaeyjum niður,“ sagði Guðjón. Klippa: Seinni bylgjan: Eina og bjargvætturinn í Eyjum „Það var slæm staða og nógu erfitt er að reka handboltann fyrir hvað þá að draga svona háa skuld með sér. Við komum saman nokkur sem höfðum starfað í handboltanum áður og tókum ákvörðun um að keyra þetta áfram en á öðrum forsendum,“ sagði Magnús Bragason í viðtali við Gaupa. „Við keyrðum á heimamönnum og vissum að árangurinn myndi fara eitthvað niður. Það tókst vel, reksturinn jafnaði sig fljótt og við náðum betri árangri þar en við áttum von á. Við keyrðum á heimamönnum sem urðu svo uppistaðan að þessu gullaldarliði sem kom seinna,“ sagði Magnús. „Það gerðust svo margir hlutir sem komu okkur á óvart. Það voru allir tilbúnir að hjálpast að og það vissu allir að við værum í þessu erfiða verkefni. Við fengum styrki frá fyrirtækjum sem höfðu ekki gefið okkur styrki áður,“ sagði Magnús. 2013 komst ÍBV upp í efstu deild á ný og strax árið eftir varð liðið Íslandsmeistari eftir sigur á Haukum í oddaleik á Ásvöllum. Eyjamenn fagna bikarmeistaratitli sínum árið 2020. Kári Kristján Kristjánsson og Grétar Þór Eyþórsson lyfta bikarnum.Vísir/Daníel Þór „Þetta hvarflaði ekki að okkur þegar við vorum að fara í þessa vegferð. Þegar við erum þarna niðri og taka þessi erfiðu ár þá fjölgaði stuðningsmönnum. Það fjölgaði í Krókódílunum, stuðningsmannafélaginu okkar sem við höfðum stofnað 2003. Allar afar og ömmur, pabbar og mömmur, eltu heimafólkið á leiki. Það varð einhver kraftur til, skapaðist neisti sem við lifum enn á,“ sagði Magnús. Frá því að Magnús steig frá borði árið 2011 hefur ÍBV unnið átta stóra titla og starfið í Vestmannaeyjum blómstrar. Það má sjá allt viðtalið og alla umfjöllun Gaupa um björgunarafrek handboltans í Eyjum hér fyrir ofan.
Olís-deild karla Mest lesið „Ég sakna hennar á hverjum degi“ Handbolti Bakgarðshlaupið í beinni útsendingu Sport „Hún er með hjartagalla en í góðum höndum núna og vonandi fer allt vel“ Íslenski boltinn „Þetta er ekki boðlegt finnst mér“ Körfubolti DeAndre Kane sleppur við bann og spilar í kvöld Körfubolti Lið Aþenu og Brynjar Karl einum leik frá Subway-deildinni eftir spennutrylli Körfubolti Hætti óvænt: Fannst hann skulda fjölskyldunni smá tíma Handbolti Aron Einar og Arnór minnast systur sinnar sem lést langt fyrir aldur fram Sport „Varhugavert er að ætla starfsmanni Stöðvar 2 að hafa brugðið talsvert“ Körfubolti Clattenburg hættur og segist hafa verið skotmark sérfræðinga Enski boltinn Fleiri fréttir Hætti óvænt: Fannst hann skulda fjölskyldunni smá tíma „Ég sakna hennar á hverjum degi“ Jóhanna Margrét frábær í góðum sigri Skara Viggó fór á kostum í góðum sigri Leipzig Reiður Einar hellti sér yfir eftirlitsdómarana Hættir eftir að hafa komið Fjölni upp „Við vorum bara ekki á svæðinu“ Metamfetamín fannst í báðum sýnum markmannsins Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 39-25 | Valsmenn jafna einvígið með stórsigri PSG tókst ekki að leika ótrúlega endurkomu Kiel eftir Fjölnir tryggði sér sæti Olís deildinni á næsta tímabili Svekkjandi tap lækkar líkurnar hjá lærisveinum Arnórs Kielce kærir leikinn gegn Magdeburg Aron í myndatöku í dag vegna meiðslanna Sjáðu dramatísku vítakastskeppnina í Eyjum Elín Jóna færir sig á milli félaga á Jótlandi Ómar Ingi skaut Evrópumeisturunum áfram eftir vítakeppni „Féllu dómar í dag sem voru að mér fannst ansi augljósir“ Óheflaði Eyjapeyinn Kári Kristján: „Töpum aldrei í vítakeppnum“ Uppgjörið: ÍBV - FH 39-38 | ÍBV tryggði sér oddaleik eftir vítakastkeppni Bjarki Már og félagar úr leik Haukakonur sópuðu Fram í sumarfrí og mæta Val í úrslitum Róbert fer frá Drammen og vill spila nærri Andreu Löwen í undanúrslit þrátt fyrir fína frammistöðu Orra Freys „Vantaði meiri breidd til þess að veita þeim harðari keppni“ „Náðum að stilla spennustigið betur í hálfleik“ Uppgjörið: Valur - ÍBV 30-22 | Valskonur mættu með sópinn gegn ÍBV Teitur Örn og félagar í undanúrslit þrátt fyrir tap Aldís Ásta frábær þegar Skara komst í undanúrslit Sigvaldi Björn markahæstur þegar Kolstad komst í úrslit Sjá meira