Lokað fyrir heitt vatn á Seltjarnarnesi

Seltjarnarnes.
Seltjarnarnes.

Vegna viðgerða verður lokað fyrir allt heitt vatn á Seltjarnarnesi frá klukkan 19 í dag, mánudaginn 26. júlí. 

Fram kemur í tilkynningu frá Seltjarnarnesbæ að lokunin vari fram á þriðjudagsmorgun. 

Lokunin nær yfir allt Seltjarnarnes og hefur því einnig áhrif á starfsemi Sundlaugar Seltjarnarness sem verður lokuð frá klukkan 19 í kvöld og á morgun. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert