Óskaði eftir ódýrri PS4 tölvu en fékk hana gefins Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 5. desember 2020 14:51 Dagmar til vinstri þegar hún var nýbúin að taka við tölvunni. Siggeir er á myndinni til hægri. Vísir - Aðsend/Siggeir Dagmar Ósk Héðinsdóttir fékk að upplifa sannkallaðan jólaanda, eins og hún kallaði það, á dögunum þegar hún óskaði eftir að fá að kaupa PlayStation 4 tölvu á lágu verði. Hún birti auglýsingu á Facebook-síðunni Brask og brall.is og það leið ekki að löngu þar til velviljaður maður bauðst til þess að gefa henni tölvu. „
Mamma heyrði í mér og spurði hvort ég ætti PlayStation 4 tölvu til að selja ódýrt,“ segir Siggeir Karl Kristjánsson, sem gaf Dagmar tölvuna. „Hún sagði mér að það væri kona sem ætti ekki efni á nýrri tölvu sem óskaði eftir tölvu ódýrt. Ég sagði strax já og var bara tilbúinn að gefa henni hana,“ segir Siggeir. Siggeir skrifaði athugasemd við færslu Dagmar þar sem hann bauðst til að gefa henni tölvuna. Ákvörðun Siggeirs vakti mikla athygli inni á hópnum, 1500 manns hafa „lækað“ svarið hans og um fimmtíu manns hrósað Siggeiri fyrir velvild hans. Viðbrögðin hafa verið gríðarleg við gjafmildi Siggeirs.Facebook „Hún var rosalega ánægð og heyrði í mér strax og þakkaði mér fyrir, bróðir hennar hafði líka samband og þakkaði mér fyrir.“ „Mér fannst bara mjög gott að geta gert þetta fyrir hana og vonandi hvetur þetta fleiri til að gera eins,“ segir Siggeir. Hann segir að tölvan muni nýtast Dagmar mun betur en honum. Dagmar er með einhverfu, væga þroskahömlun og kvíða og hefur Dagmar vakið athygli áður en hún er ein nokkurra íslenskra kvenna sem að undanförnu hafa fengið sér dúkkur sem þær kalla dúkkubörn. Dagmar er komin með tölvuna í hendurnar en velvild Siggeirs blés öðrum von í brjóst og bauðst fyrirtækið Sending til þess að skutla tölvunni til Dagmarar endurgjaldslaust. Hún segist afar sátt með tölvuna og segist mjög þakklát fyrir þetta sem „ég kalla sannan jólaanda,“ segir Dagmar. Siggeir segist vonast til þess að gjafmildi hans hvetji fleiri sem geta til að gera góða hluti nú á aðventunni.
Jól Góðverk Mest lesið Fann fíkniefnin strax Lífið Falleg tónlist GDRN hljómaði ekki nógu vel Gagnrýni Jón og Hafdís festu kaup á einbýli með bátaskýli Lífið Inga Lind selur íbúð við Valshlíð Lífið Þátttaka Ísraela hafi skemmt mikið Lífið Magnús Scheving og Hrefna glæsileg á opnun Sjálands Lífið Von á ákæru eftir spennuþrungna daga í Malmö Lífið Statham og Baltasar sameina krafta sína í væntanlegri hasarmynd Bíó og sjónvarp Þessi lönd gáfu Íslandi stigin þrjú Lífið Þessi skipuðu íslensku dómnefndina í Eurovision Lífið Fleiri fréttir Fleiri sniðgengu en ekki Von á ákæru eftir spennuþrungna daga í Malmö Inga Lind selur íbúð við Valshlíð „Þetta er náttúrulega sorgarsaga okkar Íslendinga“ Magnús Scheving og Hrefna glæsileg á opnun Sjálands Fann fíkniefnin strax Þátttaka Ísraela hafi skemmt mikið Ráðist á Steve Buscemi og hann fluttur á sjúkrahús Hlutu „Óskarinn“ í brúðkaupsskipulagningu Þessi skipuðu íslensku dómnefndina í Eurovision Herra Hnetusmjör hitti Akon: „Þeir vita sem vita“ Ari Bragi og Dóróthea eignuðust dreng Jón og Hafdís festu kaup á einbýli með bátaskýli Greindu frá kyninu á ströndinni Stjörnulífið: „Mér fannst mæðradagurinn alltaf triggerandi“ Þessi lönd gáfu Íslandi stigin þrjú „Það var algjört kossaflens í gangi í Breiðholtinu“ Leikkonan sem lék fyrsta fórnarlambið í Ókindinni er látin Fögnuðu heimkomu Nemo Kristrún ekki lengur á meðal ungs jafnaðarfólks Hellti sér yfir EBU að lokinni keppni Hundar mæta í vinnuna með eigendum sínum Skilyrði að koma Borgarnesi á kortið Nýir Íslendingar heimsóttu Bessastaði Mætti í eftirpartý og verður eftir í Malmö Guðný og Pétur selja glæsihöll í Garðabæ Fyndnustu gæludýramyndir ársins Bíó og plokkfiskur á Patreksfirði um hvítasunnuhelgina Meistari B-kvikmyndanna látinn Krakkatían: Prinsar, fótbolti og Hollywood pör Sjá meira