Handbolti

Ýmir Örn öflugur í sigri Ljónanna

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Ýmir Örn átti flottan leik í kvöld.
Ýmir Örn átti flottan leik í kvöld. Rhein-Neckar Löwen

Ýmir Örn Gíslason átti mjög góðan leik er Rhein-Neckar Löwen vann Hannover-Burgdorf í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld, lokatölur 33-28.

Leikurinn var mjög jafn í fyrri hálfleik og leiddu Löwen aðeins með einu marki í hálfleik, staðan þá 15-14. Í síðari hálfleik stigu heimamenn á bensíngjöfina og juku forskot sitt upp í fimm mörk og unnu leikinn eins og sagði 33-28.

Ýmir Örn skoraði þrjú mörk í leiknum ásamt því að næla sér í gult spjald. Jannik Kolbacher var langmarkahæstur með 12 mörk í liði Ljónanna.

Eftir sigurinn er Löwen nú jafnt Flensburg á toppnum með 40 stig en síðarnefnda liðið á fimm leiki til góða. Þá á Kiel einnig fimm leiki til góða en það er í 3. sæti með 39 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×