Erlent

Á­minnt fyrir að segja frá tíu ára stúlku sem fór í þungunar­­rof í kjöl­far nauðgunar

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Bernard sagðist vilja varpa ljósi á raunverulegar afleiðingar takmarkana á aðgengi að þungunarrofi.
Bernard sagðist vilja varpa ljósi á raunverulegar afleiðingar takmarkana á aðgengi að þungunarrofi. Getty/Washington Post/Kaiti Sullivan

Læknayfirvöld í Indiana í Bandaríkjunum hafa áminnt kvensjúkdóma- og fæðingalækninn Caitlin Bernard fyrir að hafa rætt við blaðamann um mál tíu ára stúlku sem fékk þungunarrofsþjónustu hjá Bernard í kjölfar nauðgunar.

Bernard var að auki sektuð en má halda áfram störfum.

Ríkissaksóknarinn Todd Rokita, sem er Repúblikani og yfirlýstur andstæðingur þungunarrofs, hefur freistað þess að láta Bernard gjalda fyrir að veita stúlkunni umrædda þjónustu. Þess ber að geta að allir sem sitja í fagráðinu eru útnefndir af ríkisstjóranum, sem einnig er Repúblikani.

Vinnuveitandi Bernard, Indiana University Health, komst að þeirri niðurstöðu að hún hefði ekki brotið gegn siðareglum með viðtalinu, þar sem ekki var hægt að bera kennsl á stúlkuna út frá því sem hún Bernard sagði.

Málið vakti gríðarlega athygli vestanhafs þar sem það átti sér stað skömmu eftir að Hæstiréttur Bandaríkjanna snéri eigin niðurstöðu í Roe gegn Wade. Stúlkan, sem bjó í Ohio, leitaði til Indiana eftir að þungunarrof var bannað eftir sjöttu viku meðgöngu í heimaríki hennar.

Bernard ræddi nafnlaust um málið við blaðamann og vakti umfjöllunin gríðarlega athygli en formaður fagnefndarinnar sem fjallaði um ásakanirnar á hendur Bernard sagði hana góðan lækni og að hún hefði ekki séð fyrir sér að viðtalið færi í jafn víðtæka dreifingu og raun bar vitni.

Rokita hefur fagnað áminningunni en sjálf sagði Bernard fyrir nefndinni að málið væri pólitískt. Hún hefði ekki látið uppi neinar persónuupplýsingar um stúlkuna og menn hefðu aðeins farið að grafast fyrir um hana þegar andstæðingar þungunarrofs héldu því fram að hún væri uppspuni Bernard.

Bernard sagði það skyldu sína sem heilbrigðisstarfsmanns að fræða almenning um mikilvæg mál er vörðuðu lýðheilsu, ekki síst um kvenheilsu þar sem það væri hennar sérsvið. 

Hún steig fram þegar umræða var í gangi um að taka upp svipaðar takmarkanir í Indiana og í Ohio. Þær eru nú orðnar að veruleika, með ákveðnum undanþágum þegar um er að ræða þungun í kjölfar nauðgunar eða sifjaspells.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×