Valskonur og Blikar höfðu heppnina með sér Sindri Sverrisson skrifar 24. júní 2022 11:23 Breiðablik og Valur leika bæði í undankeppni Meistaradeildar Evrópu. Ísland á tvo fulltrúa þar sem Besta deildin er í hópi 16 bestu deilda Evrópu á styrkleikalista UEFA. vísir/diego Íslandsmeistarar Vals og silfurlið Breiðabliks leika bæði í undankeppni Meistaradeildar Evrópu í fótbolta kvenna. Þar leika einnig nokkur Íslendingalið. Nú er verið að draga í riðla.
Í fyrri hluta undankeppninnar er leikið í fjögurra liða mótum þar sem leiknir eru stakir undanúrslitaleikir og svo úrslitaleikur á milli sigurliðanna um eitt laust sæti á seinna stigi undankeppninnar. Mótin fara fram 18.-21. ágúst og það skýrist síðar hvar hvert mót verður haldið. Blikakonur eiga strembið verkefni fyrir höndum en voru þó nokkuð heppnar með drátt. Þær drógust gegn norska liðinu Rosenborg, með Blikann Selmu Sól Magnúsdóttur innanborðs, í undanúrslitum. Sigurliðið mætir svo FC Minsk frá Hvíta-Rússlandi eða Slovácko frá Tékklandi í úrslitum. Blikar hefðu þó getað dregist í mót með til að mynda Manchester City eða Real Madrid. Það að Blikar séu í móti með hvít-rússnesku liði ætti sömuleiðis að hjálpa liðinu að fá að spila sitt mót á heimavelli. „Deildarleið“ undankeppninnar. Breiðablik er í móti númer tvö og þarf að vinna leik sinn við Rosenborg til að komast í úrslitaleik við Minsk eða Slovácko.UEFA Valur slapp við nýja liðið hennar Söru Valskonur höfðu einnig heppnina með sér. Þær drógust gegn Hayasa frá Armeníu í undanúrslitum og mæta svo sigurliðinu úr leik Pomurje frá Slóveníu og Shelbourne frá Írlandi. Valur hefði til að mynda getað lent í móti með Ítalíumeisturum Juventus, nýja liðinu hennar Söru Bjarkar Gunnarsdóttur. Juventus mætir hins vegar Racing FC Union frá Lúxemborg í sínu móti og svo Flora Tallin eða Qiryat Gat frá Ísrael í úrslitaleik. „Meistaraleið“ undankeppninnar. Dregið var í fjögurra liða mót en í tveimur mótanna eru aðeins þrjú lið.UEFA Frankfurt eða Kristianstad áfram Brann, sem Berglind Björg Þorvaldsdóttir og Svava Rós Guðmundsdóttir leika með, mætir ALG Spor frá Tyrklandi í undanúrslitum og svo Spartak Subotica frá Serbíu í úrslitum komist liðið þangað, eins og búast má við. Frankfurt, lið Alexöndru Jóhannsdóttur, og Íslendingaliðið Kristianstad frá Svíþjóð eru saman í móti. Kristianstad leikur gegn Ajax en Frankfurt gegn Fortuna Hjörring í undanúrslitunum. Þá drógust Manchester City og Real Madrid í sama mót og ljóst að aðeins annað þessara liða mun komast áfram á seinna stig undankeppninnar. Fyrir síðustu leiktíð var fyrirkomulagi Meistaradeildar kvenna breytt og hefst aðalkeppnin núna á riðlakeppni um haustið, þar sem leikið er í fjórum fjögurra liða riðlum. Breiðablik komst í gegnum bæði stig undankeppninnar fyrir ári síðan og lék í riðlakeppninni.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta kvenna Valur Breiðablik Mest lesið Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Enski boltinn Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Fótbolti Efsti maður heimslistans tók upphitunina í fangaklefanum Golf Schauffele heldur forystunni en Tiger langt frá niðurskurðinum Golf Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Fótbolti Snorri Barón um Söru: „Ógeð sem enginn á að þurfa að ganga í gegnum“ Sport Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Fótbolti Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Fótbolti Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn Enski boltinn Dagskráin í dag: Formúlan, NBA, ítalski og PGA-meistaramótið Sport Fleiri fréttir Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Southampton leikur um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni Jón Dagur kom inn af bekknum og bjargaði stigi Van Dijk með þrennu og Diljá tvennu í stórsigri Leuven Kristín Dís lék allan leikinn er Brøndby komst í úrslit Meiðslapésarnir fara frá Liverpool Infantino segir samtökunum að hætta „tilgangslausu þrasi“ um leikjaálag Slot staðfestir að hann taki við Liverpool Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn „Það eru alltaf einhverjar leiðir sem opnast í pressu“ Nýliðinn í íslenska landsliðinu er markahæst í dönsku úrvalsdeildinni Þorsteinn valdi þrjá nýliða fyrir mikilvæga leiki Svona var blaðamannafundur Þorsteins fyrir mikilvæga leiki Allt í skrúfunni hjá Bæjurum: Tuchel fer eftir allt saman Fjórir af tíu launahæstu íþróttamönnum heims spila í Sádi-Arabíu Fyrsta HM stelpnanna okkar verður vonandi í Brasilíu 2027 Klopp enn fúll út í Maddison eftir að Liverpool missti af titlinum 2019 Barcelona þarf tæplega tuttugu milljarða fyrir lok júnímánaðar Börsungar styrktu stöðu sína í öðru sæti Bikarmeistarar Víkings í næstu umferð ásamt Keflavík og Fylki Uppgjör: Stjarnan - KR 5-3 | Endurkoma KR-inga hófst of seint gegn Stjörnunni Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Sverrir Ingi á toppinn í Danmörku Kolbeinn lagði upp jöfnunarmark Gautaborgar Viðar Ari skoraði og lagði upp í ótrúlegum sigri Stefán Teitur skoraði þegar Silkeborg lagði AGF annað sinn Sjá meira