Reikna með óvenjuhlýjum vetri á norðurskautinu vegna áhrifa La niña Kjartan Kjartansson skrifar 30. nóvember 2021 23:20 Frá Beagle-sundi við Eldland, syðsta odda Suður-Ameríku. Þar má búast við þurrara veðri næstu mánuði á meðan La niña stendur yfir. Vísir/Getty Reiknilíkön benda til þess að óvenjuhlýr vetur verði nyrst og norðaustast á norðurskautinu og í Asíu vegna La niña-veðurfyrirbrigðisins í Kyrrahafi. Þó að La niña tengist yfirleitt tímabundinni lækkun meðalhita jarðar er reiknað með að hiti verði víða yfir meðaltali vegna hnattrænnar hlýnunar af völdum manna. Alþjóðaveðurfræðistofnunin (WMO) staðfesti í dag að La niña hefði myndast og að fyrirbrigðið ætti eftir að hafa áhrif á hitastig og úrkomu næstu mánuðina. Þetta er annað árið í röð sem La niña aðstæður myndast í Kyrrahafi og er búist við að þessi vari fram í byrjun næsta árs. Líkön benda til þess að fyrirbrigðið verði veikt eða í meðaltali og nokkuð veikari en það sem var ríkjandi á milli 2020 til 2021. Vegna kólnunaráhrifa La niña-viðburðanna tveggja á þessu ári er reiknað með það verði á lista yfir tíu hlýjustu ár frá upphafi mælinga frekar en það hlýjasta. La niña er kaldi fasi Suður-Kyrrahafssveiflunnar (ENSO) svonefndu, náttúrulegrar sveiflu í sjávarhita í Kyrrahafinu. Hún lýsir kólnun yfirborðs Kyrrahafsins við austanverðan miðbaug. Kólnunin hefur áhrif á hringrás lofts og þar með vind, loftþrýsting og úrkomu. Fyrirbrigðið er tengt við tímabundna lækkun meðalhita jarðar og ýmis staðbundin áhrif á veðurfar og er þannig andstæða El niño-fyrirbrigðisins, hlýja fasa sveiflunnar. Búist er við því að hiti verði yfir meðaltali víða yfir landi á meðan á La niña stendur. Helstu undantekningarnar eru norðvestanverð Norður-Ameríka, indversku undirálfunni, Indókínaskagi og Ástralía. Fyrir utan hluta norðurskautsins og nyrstu hluta Asíu er reiknað með að sérstaklega hlýtt verði í austan- og suðaustanverðri Norður-Ameríku, þar á meðal stærsta hluta Karíbahafs, norðaustanverðri Asíu og stórum hluta Evrópu. Hiti á að vera við eða undir meðaltali í Suður-Ameríku norðan 15. breiddargráðu suður sem sker meðal annars norðanverða Bólivíu og Brasilíu. Stór hluti vestur strandar álfunnar verður einnig svalari en að meðaltali. Aukin úrkoma í Suðaustur-Asíu og norðvestanverðri Suður-Ameríku Áhrif La niña eru ekki síst á úrkomu og dreifingu hennar, sérstaklega í kringum Kyrrahafið. Auknar líkur eru á óvenju þurrum aðstæðum í kringum miðbaug nærri dagsetningarlínunni og að syðsta odda Suður-Ameríku og norðvestanverðri Suður-Asíu og Miðausturlöndum. Á hinn bóginn er reiknað með úrkomusömu veðri í hluta Suðaustur-Asíu rétt norðan miðbaugs sem nær í suðvestanvert og mið- og norðanvert Kyrrahafið auk norðvestasta hluta Suður-Ameríku. Erfiðara er sagt að spá fyrir um áhrif á úrkomu í Afríku, Evrópu og Asíu. Teikn eru þó á lofti um að óvenjuúrkomusamt geti verið yfir hluta vestanverðrar Norður-Ameríku og hluta sunnanverðrar Afríku. Loftslagsmál Norðurslóðir Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fannst látinn í klefa sínum á Litla Hrauni Innlent Vinnubrögðin gátu leitt til dauða Innlent Hafi mögulega reynt að lenda á ísilögðu vatninu Innlent Halla fremst með 29,7 prósent í nýrri könnun Prósents Innlent Glórulausar framkvæmdir raski velferð íbúa hjúkrunarheimilis Innlent Hindraði mann sem ætlaði að komast úr bíl við Bónusbúð Innlent Nefndin aldrei heyrt aðrar eins frásagnir en lítið að gerast Innlent Segir viðmælendur sitja undir hótunum netaktívista Innlent Lík þriggja brimbrettakappa fundust í brunni í Mexíkó Erlent Reiðir yfir ummælum Macrons og halda æfingar með kjarnorkuvopn Erlent Fleiri fréttir Reiðir yfir ummælum Macrons og halda æfingar með kjarnorkuvopn Sökktu rússneskum hraðbát með sjálfsprengidróna Verður næsti formaður Skoska þjóðarflokksins Sakaði Biden um að reka lögregluríki í anda nasista Aukastörf meðfram þingmennsku skapi hættu á hagsmunaárekstrum Lík þriggja brimbrettakappa fundust í brunni í Mexíkó Xi og Macron ræða kínverska rafbíla og franskt koníak Um 100.000 sagt að rýma svæði á Rafah vegna „afmarkaðra aðgerða“ Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Ísrael samþykkir ekki vopnahlé Ísraelsmenn vísa fréttamönnum á dyr Íhaldsflokkurinn laut í lægra haldi í sveitarstjórnarkosningum Tuga enn saknað og 55 látnir Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Auka viðbúnað í aðdraganda Eurovision Forseti Argentínu skýtur föstum skotum á spænsku ríkisstjórnina Berlínarborg vill losna við glæsivillu Göbbels Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Kreml fordæmir ummæli Macrons og Camerons Reyna að sækja fyrsta sýnið frá fjærhlið tunglsins Hlustuðu á Trump og Cohen tala um þagnargreiðslu Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Sjá meira
Alþjóðaveðurfræðistofnunin (WMO) staðfesti í dag að La niña hefði myndast og að fyrirbrigðið ætti eftir að hafa áhrif á hitastig og úrkomu næstu mánuðina. Þetta er annað árið í röð sem La niña aðstæður myndast í Kyrrahafi og er búist við að þessi vari fram í byrjun næsta árs. Líkön benda til þess að fyrirbrigðið verði veikt eða í meðaltali og nokkuð veikari en það sem var ríkjandi á milli 2020 til 2021. Vegna kólnunaráhrifa La niña-viðburðanna tveggja á þessu ári er reiknað með það verði á lista yfir tíu hlýjustu ár frá upphafi mælinga frekar en það hlýjasta. La niña er kaldi fasi Suður-Kyrrahafssveiflunnar (ENSO) svonefndu, náttúrulegrar sveiflu í sjávarhita í Kyrrahafinu. Hún lýsir kólnun yfirborðs Kyrrahafsins við austanverðan miðbaug. Kólnunin hefur áhrif á hringrás lofts og þar með vind, loftþrýsting og úrkomu. Fyrirbrigðið er tengt við tímabundna lækkun meðalhita jarðar og ýmis staðbundin áhrif á veðurfar og er þannig andstæða El niño-fyrirbrigðisins, hlýja fasa sveiflunnar. Búist er við því að hiti verði yfir meðaltali víða yfir landi á meðan á La niña stendur. Helstu undantekningarnar eru norðvestanverð Norður-Ameríka, indversku undirálfunni, Indókínaskagi og Ástralía. Fyrir utan hluta norðurskautsins og nyrstu hluta Asíu er reiknað með að sérstaklega hlýtt verði í austan- og suðaustanverðri Norður-Ameríku, þar á meðal stærsta hluta Karíbahafs, norðaustanverðri Asíu og stórum hluta Evrópu. Hiti á að vera við eða undir meðaltali í Suður-Ameríku norðan 15. breiddargráðu suður sem sker meðal annars norðanverða Bólivíu og Brasilíu. Stór hluti vestur strandar álfunnar verður einnig svalari en að meðaltali. Aukin úrkoma í Suðaustur-Asíu og norðvestanverðri Suður-Ameríku Áhrif La niña eru ekki síst á úrkomu og dreifingu hennar, sérstaklega í kringum Kyrrahafið. Auknar líkur eru á óvenju þurrum aðstæðum í kringum miðbaug nærri dagsetningarlínunni og að syðsta odda Suður-Ameríku og norðvestanverðri Suður-Asíu og Miðausturlöndum. Á hinn bóginn er reiknað með úrkomusömu veðri í hluta Suðaustur-Asíu rétt norðan miðbaugs sem nær í suðvestanvert og mið- og norðanvert Kyrrahafið auk norðvestasta hluta Suður-Ameríku. Erfiðara er sagt að spá fyrir um áhrif á úrkomu í Afríku, Evrópu og Asíu. Teikn eru þó á lofti um að óvenjuúrkomusamt geti verið yfir hluta vestanverðrar Norður-Ameríku og hluta sunnanverðrar Afríku.
La niña er kaldi fasi Suður-Kyrrahafssveiflunnar (ENSO) svonefndu, náttúrulegrar sveiflu í sjávarhita í Kyrrahafinu. Hún lýsir kólnun yfirborðs Kyrrahafsins við austanverðan miðbaug. Kólnunin hefur áhrif á hringrás lofts og þar með vind, loftþrýsting og úrkomu. Fyrirbrigðið er tengt við tímabundna lækkun meðalhita jarðar og ýmis staðbundin áhrif á veðurfar og er þannig andstæða El niño-fyrirbrigðisins, hlýja fasa sveiflunnar.
Loftslagsmál Norðurslóðir Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fannst látinn í klefa sínum á Litla Hrauni Innlent Vinnubrögðin gátu leitt til dauða Innlent Hafi mögulega reynt að lenda á ísilögðu vatninu Innlent Halla fremst með 29,7 prósent í nýrri könnun Prósents Innlent Glórulausar framkvæmdir raski velferð íbúa hjúkrunarheimilis Innlent Hindraði mann sem ætlaði að komast úr bíl við Bónusbúð Innlent Nefndin aldrei heyrt aðrar eins frásagnir en lítið að gerast Innlent Segir viðmælendur sitja undir hótunum netaktívista Innlent Lík þriggja brimbrettakappa fundust í brunni í Mexíkó Erlent Reiðir yfir ummælum Macrons og halda æfingar með kjarnorkuvopn Erlent Fleiri fréttir Reiðir yfir ummælum Macrons og halda æfingar með kjarnorkuvopn Sökktu rússneskum hraðbát með sjálfsprengidróna Verður næsti formaður Skoska þjóðarflokksins Sakaði Biden um að reka lögregluríki í anda nasista Aukastörf meðfram þingmennsku skapi hættu á hagsmunaárekstrum Lík þriggja brimbrettakappa fundust í brunni í Mexíkó Xi og Macron ræða kínverska rafbíla og franskt koníak Um 100.000 sagt að rýma svæði á Rafah vegna „afmarkaðra aðgerða“ Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Ísrael samþykkir ekki vopnahlé Ísraelsmenn vísa fréttamönnum á dyr Íhaldsflokkurinn laut í lægra haldi í sveitarstjórnarkosningum Tuga enn saknað og 55 látnir Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Auka viðbúnað í aðdraganda Eurovision Forseti Argentínu skýtur föstum skotum á spænsku ríkisstjórnina Berlínarborg vill losna við glæsivillu Göbbels Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Kreml fordæmir ummæli Macrons og Camerons Reyna að sækja fyrsta sýnið frá fjærhlið tunglsins Hlustuðu á Trump og Cohen tala um þagnargreiðslu Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Sjá meira