Mínútu þögn í stað þess að krjúpa Sindri Sverrisson skrifar 22. september 2020 14:01 Íslenska landsliðið mætir Svíþjóð í kvöld eftir stórsigur gegn Lettlandi á fimmtudag. Mínútu þögn verður fyrir leikinn til minningar um fyrrverandi formann sænska knattspyrnusambandsins. VÍSIR/VILHELM
Leikmenn íslenska og sænska landsliðsins í fótbolta hugðust krjúpa á hné fyrir stórleikinn á Laugardalsvelli í kvöld, til stuðnings réttindabaráttu svartra, en hafa hætt við. Þess í stað verður einnar mínútu þögn. Sænska liðið kraup fyrir leik sinn við Ungverjaland síðasta fimmtudag, og hlaut einhverja gagnrýni fyrir, en Caroline Seger sagði í samtali við Vísi í hádeginu í gær að leikurinn yrði endurtekinn á Laugardalsvelli í dag. Sænska liðið væri lið sem berðist fyrir mannréttindum. Og íslenska liðið ætlaði einnig að krjúpa: „Við auðvitað tökum þátt í því ef að það er gert og styðjum þessa baráttu. Engin spurning,“ sagði Glódís Perla Viggósdóttir, sem raunar er samherji Seger hjá Rosengård í Svíþjóð. Klippa: Glódís hugðist krjúpa En skömmu eftir að Seger ræddi við Vísi bárust fréttir af því að Lars-Åke Lagrell, sem var formaður sænska knattspyrnusambandsins í yfir 20 ár, væri látinn, 80 ára að aldri. Till minne av Lars-Åke Lagrell Svenska Fotbollförbundets meste och starkaste förbundsordförandehttps://t.co/ZLe126Eoz5 pic.twitter.com/aw8kcT2e0z— Svensk Fotboll (@svenskfotboll) September 21, 2020 Lagrell er talinn eiga stóran þátt í sterkri stöðu knattspyrnu kvenna í Svíþjóð og nú hefur sænska knattspyrnusambandið tilkynnt að í stað þess að leikmenn krjúpi fyrir leikinn í kvöld, verði einnar mínútu þögn til minningar um Lagrell. Bæði lið munu heiðra minningu hans. Leikur Íslands og Svíþjóðar hefst kl. 18 og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
EM 2021 í Englandi Laugardalsvöllur Tengdar fréttir Spái ekki í það hvar fólk á heima þegar ég vel byrjunarliðið Jón Þór Hauksson, landsliðsþjálfari kvenna í knattspyrnu, tekst á við sína stærstu áskorun á þjálfaraferlinum til þessa þegar Ísland mætir Svíþjóð í kvöld. 22. september 2020 12:46 Risastór prófraun fyrir Ísland: „Finnst að við eigum að geta náð þeim“ „Við höfum verið að bíða eftir svona alvöru leik í smá tíma, svo við erum mjög spenntar,“ segir Glódís Perla Viggósdóttir, landsliðskona í fótbolta, fyrir stórleikinn við Svíþjóð í kvöld. 22. september 2020 12:01 Þjálfari Svía: Íslenska liðið spilar svolítið líkt okkur Landsliðsþjálfari Svíþjóðar, Peter Gerhardsson, segir leitt að geta ekki skoðað sig um í Reykjavík vegna kórónuveirufaraldursins. Hann segir sænska liðið bera virðingu fyrir því íslenska fyrir toppslaginn í kvöld. 22. september 2020 08:31 „Sem betur fer er samkeppnin um stöður mikil“ Jón Þór Hauksson, íslenski landsliðsþjálfari kvenna, er ánægður með samkeppnina í íslenska landsliðinu og er ekki hræddur að velja byrjunarliðið fyrir leikinn stóra annað kvöld. 21. september 2020 19:48 Líst illa á veðrið en er bjartsýn á að Glódís spili fyrir eitt besta lið heims Caroline Seger, hinn þrautreyndi fyrirliði Svía, telur að Glódís Perla Viggósdóttir eigi eftir að spila fyrir eitt af bestu félagsliðum heims. Hún er vör um sig fyrir stórleikinn við Ísland annað kvöld. 21. september 2020 15:22 Segir Glódísi eina þá bestu í Svíþjóð og Söru meðal þeirra bestu í heimi Peter Gerhardsson, sem stýrði Svíum til bronsverðlauna á HM í fyrra, býst við miklum slag á Laugardalsvelli á morgun þegar Ísland og Svíþjóð mætast í toppslag F-riðils í undankeppni EM kvenna í fótbolta. 21. september 2020 13:28 Mest lesið Ómar Ingi skaut Evrópumeisturunum áfram eftir vítakeppni Handbolti FH fékk tvær sektir frá KSÍ Íslenski boltinn Bucks í sögubækurnar eftir sigurinn á Pacers Körfubolti Fengið nóg af því að vera ruslakista fyrir viðbjóð frá fólki Körfubolti Uppgjörið: ÍBV - FH 39-38 | ÍBV tryggði sér oddaleik eftir vítakastkeppni Handbolti Dortmund leiðir þökk sé þrumuskoti Füllkrug Fótbolti Elín Jóna færir sig á milli félaga á Jótlandi Handbolti „Féllu dómar í dag sem voru að mér fannst ansi augljósir“ Handbolti Óheflaði Eyjapeyinn Kári Kristján: „Töpum aldrei í vítakeppnum“ Handbolti Dagskráin í dag: Stórleikir og stórstjörnur út um allt Sport Fleiri fréttir FH fékk tvær sektir frá KSÍ Dortmund leiðir þökk sé þrumuskoti Füllkrug Logi kom inn af bekknum og skoraði í stórsigri Mark dæmt af Bjarka og dramatík hjá Alexöndru Sjáðu mörkin úr stórleiknum í München Júlíus og félagar unnu frækinn bikarsigur á Rosenborg Kenndi gráðugum Kim um bæði mörkin gegn Real Madrid Lewandowski gæti verið seldur á brunaútsölu Barcelona Bellingham reyndi að taka Kane á taugum fyrir vítið Heillaóskum rigndi yfir fimmtán ára hetju Fram í skólanum „Vestri hefur verið að taka leikhlé“ Courtois ekki með Belgíu á EM Einvígið galopið eftir jafntefli í Þýskalandi „Þú veist alveg svarið við þessu“ Sextán ára og skoraði hjá Arsenal eins og Rooney forðum Víkingar bjóða Grindvíkingum í Víkina á morgun „Real Madrid lofaði mér að ég yrði arftaki Modric“ Félögin sömdu um að banna Sigurbergi að spila Tuchel fullyrti að Gnabry muni skora á móti Real Madrid í kvöld Þrír Íslendingar í liði umferðarinnar Gáttaðar á því að fyrirliði Víkings var settur á bekkinn Guy Smit sendir frá sér afsökunarbeiðni Keflavík og Aftureldingu spáð sigri í Lengjudeildunum Bara Eiður Smári og Bjargvætturinn höfðu skorað fyrir sextán ára afmælið Sjáðu ungar hetjur bjarga Fram og Stjörnunni Hundfúll og ýtti ungum KR-krökkum frá sér: „Ekki fallegt að sjá“ „Mo Salah sá sem að gekk of langt“ Valur sýndi Berglindi meiri áhuga en Breiðablik Fótboltafortíð fjölskyldunnar í sviðsljósinu í viðtali DR við Andra Lucas Manchester-liðin og Aston Villa á móti því að eyðsluþak verði sett á Sjá meira
Spái ekki í það hvar fólk á heima þegar ég vel byrjunarliðið Jón Þór Hauksson, landsliðsþjálfari kvenna í knattspyrnu, tekst á við sína stærstu áskorun á þjálfaraferlinum til þessa þegar Ísland mætir Svíþjóð í kvöld. 22. september 2020 12:46
Risastór prófraun fyrir Ísland: „Finnst að við eigum að geta náð þeim“ „Við höfum verið að bíða eftir svona alvöru leik í smá tíma, svo við erum mjög spenntar,“ segir Glódís Perla Viggósdóttir, landsliðskona í fótbolta, fyrir stórleikinn við Svíþjóð í kvöld. 22. september 2020 12:01
Þjálfari Svía: Íslenska liðið spilar svolítið líkt okkur Landsliðsþjálfari Svíþjóðar, Peter Gerhardsson, segir leitt að geta ekki skoðað sig um í Reykjavík vegna kórónuveirufaraldursins. Hann segir sænska liðið bera virðingu fyrir því íslenska fyrir toppslaginn í kvöld. 22. september 2020 08:31
„Sem betur fer er samkeppnin um stöður mikil“ Jón Þór Hauksson, íslenski landsliðsþjálfari kvenna, er ánægður með samkeppnina í íslenska landsliðinu og er ekki hræddur að velja byrjunarliðið fyrir leikinn stóra annað kvöld. 21. september 2020 19:48
Líst illa á veðrið en er bjartsýn á að Glódís spili fyrir eitt besta lið heims Caroline Seger, hinn þrautreyndi fyrirliði Svía, telur að Glódís Perla Viggósdóttir eigi eftir að spila fyrir eitt af bestu félagsliðum heims. Hún er vör um sig fyrir stórleikinn við Ísland annað kvöld. 21. september 2020 15:22
Segir Glódísi eina þá bestu í Svíþjóð og Söru meðal þeirra bestu í heimi Peter Gerhardsson, sem stýrði Svíum til bronsverðlauna á HM í fyrra, býst við miklum slag á Laugardalsvelli á morgun þegar Ísland og Svíþjóð mætast í toppslag F-riðils í undankeppni EM kvenna í fótbolta. 21. september 2020 13:28