„Klukkan gengur hérna í tvær mínútur og við vitum ekki hvernig staðan er“ Anton Ingi Leifsson skrifar 1. mars 2021 20:42 Einar Árni Jóhannsson þjálfar Njarðvík vísir/bára Einar Árni Jóhannsson var, eins og gefur að skilja, virkilega svekktur eftir tap gegn Þór Þorlákshöfn í Icelandic Glacial Höllinni í kvöld. Lokatölur 91-89, en heimamenn höfðu leitt með 10-15 stigum nánast allan leikinn. „
Þetta er bara svekkjandi, við vorum að elta megnið af leiknum og 91 stig er bara helvíti mikið,“ sagði Einar Árni eftir tap kvöldsins. „Við hefðum getað gert margt miklu betur sóknarlega en það truflar mig meira hvað við vorum daprir í varnarleiknum.“ Það komu upp nokkur atvik í leiknum þar sem Einar átti nokkur vel valin orð við dómara leiksins, þar sem hann virtist ekki sáttur við þeirra ákvarðanir. „Ég sagði það við aðaldómarann að mér fannst ósamræmi að leikmaður hjá mér fái tæknivillu fyrir mótmæli á meðan að þrír leikmenn hjá heimaliðinu eru að garga á hann og kalla eftir villu. Ef þetta var tæknivilla á minn mann, fínt, hann þarf bara að hugsa um sitt, en það þarf að gilda það sama um alla en ekki bara einn, það er það sem ég var ósáttur við.“ Leikklukkan gekk í um það bil tvær mínútur þar sem staðan var röng, og Einar ræddi aðeins um það líka. „Klukkan gengur hérna í tvær mínútur og við vitum ekki hvernig staðan er, það er mjög óþægilegt. Vissulega var ekki skoruð karfa á meðan en við vorum bara að kalla eftir því að leikurinn yrði stoppaður og hlutirnir yrðu lagaðir. Ég veit að fólk gerir mistök og þetta fer ekkert með leikinn eða neitt svoleiðis. Ég hefði bara viljað sjá að leikurinn yrði stoppaður þannig það væri hægt að laga þetta. Það voru fjórar mínútur eftir og við vissum ekki hvernig staðan var, hvort við værum fimm stigum undir eða þremur eða sjö.“ Það er mjög þéttur pakki í deildinni í ár, en Einar hefur ekki áhyggjur af því að fjögur töp í seinustu fimm leikjum hafi of mikil áhrif á þeirra stöðu í deildinni. „Ég er ekki eins og þú að velta fyrir mér einhverju sem gerðist fyrir löngu síðan. Ég er bara að hugsa um daginn í dag og næsta leik. Maður er búinn að segja það í nánast hverju einasta viðtali að þetta er bara gríðarlega jöfn deild og við vorum að spila á móti liðinu sem hefur kannski verið heitast síðustu vikur. Það er engin skömm að hafa tapað fyrir þeim að þeirra heimavelli. Davíð og Emil, mínir gömlu félagar reyndust okkur erfiðir þegar þeir voru að búa til forskot og skutu boltanum vel. Ég er ekki að fara að hella mér í eitthvað svekkelsi lengur en bara Suðurstrandarveginn.“ Njarðvík spilar við KR á föstudaginn og Einar ræddi stuttlega um hann. „Það er bara recovery á morgun og við förum að skoða KR sem eru með gott lið og hafa verið að eflast með hverri vikunni og við verðum að bjóða upp á betri framistöðu en við gerðum í dag ef við ætlum að ná í sigur.“
Dominos-deild karla UMF Njarðvík Tengdar fréttir Leik lokið: Þór Þorl. - Njarðvík 91-89 | Naumur sigur Þórs Þórsarar unnu fjórða leik sinn í röð í Domino´s deildinni þegar Njarðvíkingar komu í heimsókn en þjálfarar Njarðvíkur hafa þjálfað Þórsliðið á síðustu árum. 1. mars 2021 19:59 Mest lesið Sara hrundi niður listann eftir leiðréttingar Sport Virk sprengja úr seinni heimsstyrjöldinni undir leikvangi Mainz Fótbolti Rashford: Nú er nóg komið Enski boltinn Littler stríddi stuðningsmönnum Liverpool Sport „Tel mjög vafasamt að klukkan hafi verið sett af stað á réttum tíma“ Körfubolti Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra Körfubolti Sjáðu og heyrðu sjónvarpslýsanda sturlast yfir Brynjólfi Fótbolti Magnaðasta mark sumarsins á fyrsta degi þess? Fótbolti Stórleikur í Garðabænum og Fram mætir þriðju deildarliðinu Íslenski boltinn NFL-stjarna á tíu börn og hefur eignast fjögur síðasta árið Sport Fleiri fréttir „Krakkarnir í stúkunni eru byrjaðir að taka upp á þessu líka“ Lakers einu tapi frá því að vera sópað út úr úrslitakeppninni Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra „Tel mjög vafasamt að klukkan hafi verið sett af stað á réttum tíma“ „Vakna í hádeginu á morgun og fer að hugsa um Valsarana“ Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu Friðrik Ingi sæmdur gullmerki Njarðvíkur Þórsarar hafa spilað þrjá oddaleiki síðan Njarðvík var síðast í oddaleik Sjokkeruðu Celtics menn með þriggja stiga skotsýningu „Heldur betur búinn að vinna hjörtu Keflvíkinga“ Tekið á móti Tryggva eins og Hollywood stjörnu Hristir hausinn yfir „glórulausum“ og „smásálarlegum“ ummælum Uppgjörið og viðtöl: Haukar 73-75 Stjarnan | Stjarnan áfram eftir naglbít Martin frábær í öruggum sigri „Við erum ekki með stráka sem þurfa að vera hetjur“ Sjáðu mömmu Remy Martin syngja og dansa á hliðarlínunni Luka og félagar jöfnuðu: „Þetta var 90s körfubolti eins og hann gerist bestur“ Sérfræðingarnir ekki sammála og mikil spenna fyrir oddaleikinn „Ég er bara mjög spenntur, þeir eru klárlega ‘the team to beat’“ „Maður hugsar ekki þannig sem þjálfari“ Uppgjör og viðtöl: Álftanes - Keflavík 85-114 | Sjóðheit Keflavíkursókn blés nýliðana burt Murray kramdi Lakers-hjörtun Viðar Örn: Stoltur af liðinu fyrir að skilja allt eftir á gólfinu Einar Árni hættur hjá Hetti „Erfitt að vinna þá þrisvar sinnum í röð“ Aþena er komið í úrslitaeinvígi um sæti í Subway-deild kvenna „Fannst að við hefðum átt að ná þessum mómentum fyrr“ Uppgjör: Þór Þ. - Njarðvík 84-91 | Gestirnir tryggðu sér oddaleik Uppgjör og viðtöl: Höttur - Valur 97-102 | Valsmenn í undanúrslit eftir framlengdan leik á Egilsstöðum Losnar stjarna Aþenu úr frystiklefa Brynjars Karls? Sjá meira
Leik lokið: Þór Þorl. - Njarðvík 91-89 | Naumur sigur Þórs Þórsarar unnu fjórða leik sinn í röð í Domino´s deildinni þegar Njarðvíkingar komu í heimsókn en þjálfarar Njarðvíkur hafa þjálfað Þórsliðið á síðustu árum. 1. mars 2021 19:59
Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu
Uppgjör og viðtöl: Höttur - Valur 97-102 | Valsmenn í undanúrslit eftir framlengdan leik á Egilsstöðum