Icelandair segir að ekki hafi verið hægt að sjá aðstæðurnar fyrir Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 23. janúar 2023 12:08 Margir þurftu að bíða á Keflavíkurflugvelli í gær vegna óveðursins sem þar geysaði. Vísir/Steingrímur Dúi Óveðrið og óvenju mikil hálka á Keflavíkurflugvelli í gær réði því að flugvél Icelandair losnaði af festingum og rakst í landgang á vellinum að sögn framkvæmdastjóra rekstrarsviðs. Flugfarþegar hafi lengst þurft að bíða í tíu tíma í vélunum í gær vegna veðursins. Ekki hafi verið hægt að sjá aðstæðurnar fyrir.
Veðurstofan gaf út gula veðurviðvörun fyrir Faxaflóa og höfuðborgarsvæðið á laugardagskvöld en á sunnudagsmorgninum breyttist hún í appelsínugula viðvörun. Allt flug var fellt niður en á þeim tíma voru átta flugvélar frá Bandaríkjunum lentar á Keflavíkurflugvelli. Átta hundruð farþegar í sex vélum þurftu svo að bíða í allt að tíu tíma í vélunum á vellinum í gær vegna veðursins. Jens Bjarnason framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Icelandair segir að ekki hafi verið hægt að sjá aðstæðurnar fyrir. „Það eina sem liggur alveg fyrir er að þessar aðstæður, veðurhæðin, þessi langi tími sem hvassviðrið varði og þessi mikla hálka á vellinum, þetta var allt mun verra heldur en ástæða var til að ætla miðað við þau gögn sem lágu fyrir og þær spár sem við höfðum,“ segir Jens. Jens segir afar sjaldgæft að slíkt komi upp. „Þetta getur komið fyrir, en svona mikill vindur samfara þessari miklu hálku á yfirborðinu á akstursbrautum eru sem betur fer mjög sjaldgæfar aðstæður. Í fyrsta lagi erfitt fyrir tæki að athafna sig við þessar aðstæður, því þó þú komir sandi eða hálkueyðandi efni á brautina þá fýkur þetta í burtu um leið í svona veðri,“ segir hann. Flugvél Icelandair losnaði af festingum í veðurofsanum í gær og rakst í landgang. „Það er tjón á vélinni, það er ekki alvarlegt en hún verður úr rekstri í nokkra daga meðan gert er við annan vænginn sem rakst í landganginn. Auðvitað eru allir slegnir yfir því að svona gerist. Í þessu tilviki var búið að setja klossa fyrir og ganga frá vélinni eins og allar reglur og okkar verklag kallar á sem sýnir hversu ótrúlegar þessar aðstæður voru. Vélar hafa áður losnað á vellinum Jens segir þó að þetta hafi gerst áður. „Þetta hefur komið fyrir áður sem betur fer ekki oft,“ segir hann. Aðspurður um hvort það þurfi að endurskoða festingar á vélunum svarar Jens. „Það er bara eins og eftir svona krísu við förum yfir málin með vellinum og aðra aðila sem að þessu koma,“ segir Jens. Fram kom í samtali við flugfarþega í gær að hurð hefði fokið af bíl sem var á leið að flugvél. Jens segir það mál hafi ekki komið á sitt borð telur að bíllinn hafi ekki tilheyrt félaginu.
Icelandair Veður Ferðamennska á Íslandi Keflavíkurflugvöllur Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Innlent Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Innlent Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Erlent Eldur í ruslageymslu í Hafnarfirði Innlent Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Innlent Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Innlent Friðrik skipaður sendiherra í Póllandi Innlent Stutt í næsta gos komi til gosloka Innlent Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Erlent „Það er hart sótt að okkar fólki“ Innlent Fleiri fréttir Búinn að skila inn undirskriftum eftir „óvenjulegan“ frest „Það er norskur sigur í dag“ Grindvíkingar opna bakarí og veitingastað á ný Bakarí og veitingastaður opna í Grindavík á ný Friðrik skipaður sendiherra í Póllandi Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Eldur í ruslageymslu í Hafnarfirði Seinni umferð biskupskjörs hefst á hádegi í dag Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Stutt í næsta gos komi til gosloka „Það er hart sótt að okkar fólki“ Nemendur Flóaskóla slá í gegn með Langspilin sín Háskólanemar halda lautarferð og stofna hreyfingu fyrir Palestínu Jarðhræringar á Reykjanesi, flug til Færeyja og verkalýðsdagurinn Úrskurðurinn felldur úr gildi Vill hinn almenna launamann á þing Sinueldur í Munaðarneslandi Íslensk stjórnvöld haldin „sjúkri undirgefni“ Barn á Akureyri greindist með kíghósta Íslensk fjara á lista yfir bestu strendur heims Beint: Hátíðarhöld á verkalýðsdaginn 2024 Sniglar hægja á umferð Yrði gagnkynhneigður maður spurður sömu spurningar? Verkalýðsbaráttan aldrei verið jafn mikilvæg Einkamálefni forsetaframbjóðanda, verkalýðsdagurinn og háskólamótmæli „Hinsegin fólk þekkir vel að vera smættað niður í einkalíf sitt“ Hátíðardagskrá víða um land á verkalýðsdaginn Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Sjá meira