Oddeyrarskóla lokað vegna smits

Oddeyrarskóli á Akureyri.
Oddeyrarskóli á Akureyri. mbl.is/Margrét Þóra

Nemandi á miðstigi Oddeyrarskóla á Akureyri greindist með staðfest smit af Covid-19 í gær. Vegna þessa hefur skólanum verið lokað og allt starfsfólk og nemendur sæta nú úrvinnslusóttkví á meðan smitrakning fer fram.

Í tilkynningu frá skólanum kemur fram að hann verður lokaður mánudaginn 19. október vegna þessa og síðan taka við haustfrí út næstu viku. Í Oddeyrarskóla eru 195 nemendur og 45 starfsmenn.

Starfsfólk, nemendur og foreldrar þeirra eru beðnir um að fylgjast vel með því hvort fram komi einkenni sjúkdómsins og er bent á að hafa samband við heilsugæsluna ef grunur vaknar um smit. Enn er óupplýst hver uppruni smitsins er en smitrakning er hafin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert