„Mögulega frábært fyrir landsliðið að fólk sé að setja þessa pressu á hana“ Sindri Sverrisson skrifar 22. júní 2022 15:01 Sveindísi Jane Jónsdóttur skaut upp á stjörnuhimininn, nánast á svipstundu, og virðist höndla athyglina vel. vísir/vilhelm „Ég held að hún sé einn mest spennandi leikmaður mótsins,“ segir Harpa Þorsteinsdóttir um Sveindísi Jane Jónsdóttur, í sérstökum EM-upphitunarþætti Bestu markanna.
Þátturinn er sýndur á Stöð 2 Sport í kvöld og hefst klukkan 19:30 en þar fara Harpa, Helena Ólafsdóttir, Mist Rúnarsdóttir og Sonný Lára Þráinsdóttir vítt og breitt yfir allt sem tengist EM og þátttöku Íslands á mótinu. Þær eru spenntar, líkt og fleiri, fyrir því að sjá hvernig Sveindís spjarar sig á sínu fyrsta stórmóti eftir að hún stimplaði sig rækilega inn hjá einu besta liði Evrópu, Wolfsburg, á síðustu leiktíð. „Maður sér það í erlendum fjölmiðlum að það er verið að taka hana til sem rísandi stjörnu og hún er á topp tíu listum fyrir allt mótið. Evrópa er spennt,“ segir Mist. „Alveg frá því að hún kom úr Keflavík í Breiðablik hefur fólk verið að segja: „Þetta er allt of stórt skref fyrir hana. Hún á ekki eftir að blómstra þarna.“ Svo tekur hún bara Breiðablik og treður sokk upp í alla sem höfðu einhverjar efasemdir,“ segir Harpa. Klippa: EM upphitun - Umræða um Sveindísi „Svo fer hún út og fólk er enn þá efins um að hún sé tilbúin í þetta. Hún tekur Svíþjóð og snýtir því, og svo fer hún til Þýskalands og stendur sig enn þá vel,“ segir Harpa og bætir við: „Hún hefur ekki enn fengið áskorun sem hún ræður ekki við og þetta er ein stærsta áskorun sem hún hefur tekist á við. Það er pressa fyrir ungan leikmann að fara á mót og vita að það eru öll augu á manni. Ég hlakka til að sjá því hún virðist vera leikmaður sem eflist bara við athyglina. Mögulega er því frábært fyrir íslenska landsliðið að fólk sé að setja þessa pressu á hana.“ Sérfræðingar Stöðvar 2 Sports hita upp fyrir EM kvenna sem fram fer í Englandi í júlí, í sérstökum EM-upphitunarþætti Bestu markanna klukkan 19.30 í kvöld. Meðal annars er farið yfir dagskrána fram að móti, andstæðinga Íslands í riðlinum og líklegt byrjunarlið. Umsjón með þættinum hefur Helena Ólafsdóttir.
EM 2022 í Englandi Fótbolti Bestu mörkin Landslið kvenna í fótbolta Mest lesið Varði pabba-kroppinn eftir mynd af sér og Swift á ströndinni Sport Boehly fær að fjúka 2027 Enski boltinn Þjálfari Leicester látinn fara vegna meints sambands við leikmann Enski boltinn Arna spilar með FH næstu þrjú árin Íslenski boltinn Alonso fari hvergi og Liverpool snýr sér annað Enski boltinn „Verð dæmdur fyrir þetta restina af ævi minni“ Sport „Það er ekkert sem stoppar Remy Martin“ Sport Arnór frá út tímabilið eftir ömurlega tæklingu Ísraelans Fótbolti Dagskráin í dag: Valur og Breiðablik mætast í úrslitum, enska B-deildin og LUÍH Sport Bjarki Már og félagar í góðri stöðu Handbolti Fleiri fréttir Alonso fari hvergi og Liverpool snýr sér annað Leikmaður PSG biðst afsökunar á að hafa deilt niðrandi efni um LGBTQ-einstaklinga Þjálfari Leicester látinn fara vegna meints sambands við leikmann Boehly fær að fjúka 2027 Arna spilar með FH næstu þrjú árin PSG mætir Lyon í undanúrslitum Barcelona ekki í vandræðum með Brann Arnór frá út tímabilið eftir ömurlega tæklingu Ísraelans Tonali ákærður á Englandi fyrir fimmtíu meint brot Sjáðu mörkin fimm úr úrslitaleik Breiðabliks og ÍA Segir von á mikilvægum tilboðum í Albert Ákærður og horfir fram á fangelsisdóm fyrir kossinn óumbeðna Ætlar að kynna ensku úrvalsdeildina fyrir sundlaug í stúkunni Hulunni svipt af nýrri treyju íslenska landsliðsins „Ég er tilbúinn“ „Bjóst ekki við að þetta myndi enda svona“ „Flottur sigur og heilt yfir fín frammistaða“ Fimmtu undanúrslitin á sjö árum Umfjöllun: Breiðablik - ÍA 4-1 | Blikar unnu Lengjubikarinn með sigri gegn Skaganum Lyon nokkuð örugglega í undanúrslit Grindvíkingar leggja niður yngri flokka Rasmus til Eyja Messi: Ég hætti þegar ég get ekki lengur hjálpað mínum liðsfélögum Skagamenn geta unnið fyrsta titil sinn í meira en tvo áratugi Meiðslavandræði á Man. City fyrir stórleikinn á móti Arsenal Sigurinn á Íslandi var „gjöf til úkraínsku þjóðarinnar“ Man. United sagt vilja fá stjóra Úlfanna í þjálfarateymið sitt Albert átti ekki bara eitt heldur tvö af flottustu mörkum umspilsins Haaland baðst afsökunar eftir leik Myndasyrpa frá tapinu grátlega gegn Úkraínu Sjá meira