Segir Dagnýju hafa varað sig við aðstæðum á Íslandi Sindri Sverrisson skrifar 20. október 2021 11:30 Dagný Brynjarsdóttir og Katerina Svitkova leika saman með West Ham en verða andstæðingar á föstudaginn í afar mikilvægum landsleik. Getty/Warren Little Katerina Svitková er stærsta stjarnan í liði Tékka sem mæta Íslandi á Laugardalsvelli á föstudag. Hún hlakkar til að glíma við Dagnýju Brynjarsdóttur og segir hana hafa varað sig við aðstæðum á vellinum.
Dagný og Svitková leika saman hjá West Ham í ensku úrvalsdeildinni en verða andstæðingar á föstudaginn. „Þetta verður svolítið sérstakur leikur fyrir mig því þarna verður liðsfélagi minn úr West Ham svo það verður smá einkaslagur á milli okkar. Hún [Dagný] spilar á miðjunni og vonandi ég líka svo að það væri gaman að mætast. Ég er viss um að okkar lið býr yfir betri tækni og vonandi getum við sýnt það,“ sagði Svitková við heimasíðu tékkneska knattspyrnusambandsins. Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta leikur síðustu tvo leikina á Laugardalsvelli þetta árið, gegn Tékkum á föstudaginn og Kýpverjum næsta þriðjudag, í undankeppni HM. Sagt að taka með sér skrúfutakkaskó Hlífðardúkur hefur verið notaður til að verja völlinn en ljóst er að grasið verður ekki það besta þegar flautað verður til leiks á föstudaginn. Svitková er meðvituð um það eftir að hafa rætt við Dagnýju. „Íslenska liðið er líkamlega sterkt og leikmenn harðir af sér. Aðstæðurnar verða ekki góðar þarna. Liðsfélagi minn ráðlagði mér að taka með skrúfutakkaskó því það verður rigning, drulla og kuldi þarna. Ég veit mjög vel hvað við erum að fara út í. Þetta verður ekki auðvelt,“ sagði Svitková sem var í liði Tékka sem gerði 1-1 jafntefli við Ísland á Laugardalsvelli í september 2018, í síðustu HM-undankeppni. Tékkland er með 4 stig eftir 1-1 jafntefli við Holland á útivelli og 8-0 sigur á Kýpur. Ísland tapaði 2-0 gegn Hollandi á heimavelli í sínum fyrsta leik í undankeppninni. Efsta lið hvers riðils kemst beint á HM en liðið í 2. sæti fer í umspil. Leikur Íslands og Tékklands er því afar mikilvægur fyrir bæði lið.
HM 2023 í Ástralíu og Nýja-Sjálandi Tengdar fréttir „Eigum frekar leiðinlega sögu á móti þeim“ „Ég er ótrúlega spennt fyrir þessum leik,“ segir Glódís Perla Viggósdóttir um leikinn við Tékkland á föstudaginn sem gæti ráðið miklu um vonir Íslands um að komast á HM í Ástralíu. Tékkar sviptu Ísland síðasta HM-draumi. 20. október 2021 09:00 Ísland án Elínar Mettu í leiknum mikilvæga Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta verður án Elínar Mettu Jensen, framherja Vals, í komandi landsleikjum gegn Tékklandi og Kýpur í undankeppni HM. 18. október 2021 11:18 Áslaug Munda fékk höfuðhögg og er ekki búin að jafna sig Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir er ekki í landsliðshópnum fyrir leikina á móti Tékklandi og Kýpur og landsliðsþjálfarinn Þorsteinn Halldórsson útskýrði fjarveru hennar á blaðamannafundi í dag. 7. október 2021 14:47 Mest lesið Úr húsvarðarstarfi í atvinnumennsku Handbolti Slys á æfingu fyrir fjórum árum er enn að eyðileggja fyrir Söru Sport Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Enski boltinn Einbeitir sér að því að komast í NBA frekar en að spila með pabba sínum Körfubolti Neitaði að svara spurningum um skilnaðinn Sport „Núna ætla ég að klára þetta þar sem þetta er síðasta tímabilið mitt hérna“ Sport Albert gáttaður á Lárusi Orra: „Hvað meinarðu? Hvað er í gangi hérna?“ Íslenski boltinn Doncic rankaði við sér og Dallas einum sigri frá úrslitum Vestursins Körfubolti Feðgar þjálfa Breiðablik: „Gott fyrir okkur báða að vera saman“ Körfubolti Tiger trúir enn á sjálfan sig: „Líður enn eins og ég geti unnið golfmót“ Golf Fleiri fréttir Fabiana brýtur blað í sögunni áður en Jói Kalli tekur við Man. United sagði konunum ekki frá ákvörðuninni Allegri afklæddist á hliðarlínunni „Sá að þeim leið aldrei illa“ Mætti á þing FIFA úr fangaklefanum Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Gerir sér grein fyrir erfiðu tímabili: „Þið eruð bestu stuðningsmenn í heimi“ „Þetta var ótrúlega erfitt“ Vlahovic tryggði Juventus bikarmeistaratitilinn United lyfti sér upp að hlið Newcastle Evrópudraumurinn lifir góðu lífi eftir fjórða sigurinn í röð KA sneri taflinu við í seinni hálfleik Gísli lagði upp í Íslendingaslag og Elfsborg vann risasigur Uppgjörið og viðtöl: Fylkir - Breiðablik 0-2 | Blikar enn með fullt hús Ásdís Karen kom Lilleström á bragðið Kjósa um hvort notkun VAR verði hætt Uppgjörið: Þróttur - Víkingur 0-1 | Þróttarar enn án sigurs Everton boðið neyðarlán til að klára nýja heimavöllinn Gæti haldið áfram eftir allt saman FIFA íhugar að leyfa deildarleiki í öðrum löndum Félagaskiptaglugganum lokað fyrr en vanalega í sumar Fækka landsleikjagluggum og koma á fót HM félagsliða Segja að Mbappé og forseti PSG hafi öskrað á hvor annan Stjóri Spurs ósáttur við viðhorfið: „Þetta er utan félagsins, innan þess, alls staðar“ Jói Kalli hættir hjá landsliðinu og fer til Danmerkur Illa orðað samningsákvæði varð KA að falli Albert gáttaður á Lárusi Orra: „Hvað meinarðu? Hvað er í gangi hérna?“ Segir að Ortega hafi unnið titilinn fyrir City Ten Hag vísar gagnrýni Rooneys til föðurhúsanna United íhugar að ráða stjóra Ipswich sem eftirmann Ten Hags Sjá meira
„Eigum frekar leiðinlega sögu á móti þeim“ „Ég er ótrúlega spennt fyrir þessum leik,“ segir Glódís Perla Viggósdóttir um leikinn við Tékkland á föstudaginn sem gæti ráðið miklu um vonir Íslands um að komast á HM í Ástralíu. Tékkar sviptu Ísland síðasta HM-draumi. 20. október 2021 09:00
Ísland án Elínar Mettu í leiknum mikilvæga Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta verður án Elínar Mettu Jensen, framherja Vals, í komandi landsleikjum gegn Tékklandi og Kýpur í undankeppni HM. 18. október 2021 11:18
Áslaug Munda fékk höfuðhögg og er ekki búin að jafna sig Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir er ekki í landsliðshópnum fyrir leikina á móti Tékklandi og Kýpur og landsliðsþjálfarinn Þorsteinn Halldórsson útskýrði fjarveru hennar á blaðamannafundi í dag. 7. október 2021 14:47