Adam sló í gegn með kollhnís: Draumur fyrir strák frá smábæ á Íslandi Sindri Sverrisson skrifar 29. nóvember 2021 14:00 Adam Ingi Benediktsson í viðtali eftir frumraun sína í Svíþjóð. Skjáskot/@ifkgoteborg Hinn 19 ára gamli Adam Ingi Benediktsson, markvörður frá Grundarfirði, lék sinn fyrsta leik í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta með stórliði IFK Gautaborgar í gær og sló strax í gegn hjá stuðningsmönnum.
Þetta segir í grein Göteborgs-Posten um Adam þar sem tekið er fram að sérstakur kollhnís Adams fyrir leik, að eigin marki, hafi vakið mikla athygli. pic.twitter.com/BTreWgYQ8f— David Vukovic (@DaVukovic) November 28, 2021 „Ég geri þetta fyrir hvern leik,“ sagði Adam Ingi í viðtali við GP, þar sem hann þáði jafnframt að fá að vita að kollhnís er í sænsku kallaður „kullerbytta“. Adam heillaði stuðningsmenn ekki síður með frammistöðu sinni í leiknum sjálfum, því hann hélt markinu hreinu í 4-0 sigri á Östersund. 19-årige målvaktsdebutanten Adam Ingi Benediktsson med en fin räddning för IFK Göteborg!Se matchen på https://t.co/Nmw67Zlu4o pic.twitter.com/kPdwu6EEMX— discovery+ sport (@dplus_sportSE) November 28, 2021 „Þetta er eins og einhver draumur. Vera hér fyrir framan 15.000 manns, frá smábæ á Íslandi,“ sagði Adam Ingi. Adam Ingi sagði frá því í viðtali við Fótbolta.net á sínum tíma að hann væri frá smábænum Grundarfirði á Snæfellsnesi. Hann lék svo með yngri flokkum FH og HK þar til að hann fluttist til Svíþjóðar sumarið 2019 og hóf að leika með U19-liði Gautaborgar. Á dögunum skrifaði hann svo undir atvinnumannasamning við félagið sem gildir til ársloka 2024. | "Jag lever i en dröm"Debutanten Adam Benediktsson efter 4 0 mot Östersunds FK.#ifkgbg pic.twitter.com/lhU7v7n9fI— IFK Göteborg (@IFKGoteborg) November 28, 2021 Aðalmarkvörður Gautaborgar, Giannis Anestis, er á förum frá félaginu og það gæti gefið Adam fleiri tækifæri á næstu leiktíð. Hann hefur nú að minnsta kosti fengið fyrsta tækifærið sitt en leiktíðinni í Svíþjóð lýkur um næstu helgi þegar Gautaborg sækir Norrköping heim. Adam segist hafa vitað það í nokkra daga að komið væri að fyrsta leik hans í sænsku úrvalsdeildinni: „Þjálfarinn tók mig til hliðar og sagði mér frá þessu. En ég áttaði mig ekki á þessu fyrr en ég gekk inn á völlinn með öllu sem því tilheyrir. Þá kom adrenalínið,“ sagði Adam.
Sænski boltinn Íslendingar erlendis Grundarfjörður Mest lesið Stuðningurinn ómetanlegur: „Farið í dýpstu leyndarmálin“ Sport Gummi Ben og félagar tímamældu leiktafir KR-ingsins Íslenski boltinn Rekinn þrátt fyrir að vera tilnefndur sem þjálfari ársins Enski boltinn Sjáðu Hummels gera það sem Mbappé og félögum tókst ekki Fótbolti Farangurinn flæktist fyrir Gísla: „Kom beint af flugvellinum“ Handbolti Stórveldi með gjörólíka hugmyndafræði berjast um sæti í úrslitum Fótbolti „Dómur þarna í restina sem ákveður úrslitin“ Körfubolti Ræðir veru sína í rússnesku fangelsi í nýrri bók Körfubolti Gat ekki staðið upp til að taka við bikarnum Sport Aþena upp í Subway-deildina Körfubolti Fleiri fréttir „Mbappé kann ekki að vera hetja“ Gummi Ben og félagar tímamældu leiktafir KR-ingsins Sjáðu Hummels gera það sem Mbappé og félögum tókst ekki Stórveldi með gjörólíka hugmyndafræði berjast um sæti í úrslitum Rekinn þrátt fyrir að vera tilnefndur sem þjálfari ársins „Höfum vaxið með hverjum leik“ Dortmund í úrslit eftir sigur í París Telja að Man United hafi saknað leiðtogahæfileika Martínez Þurfa leyfi til að taka þátt í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð Arnar í tveggja leikja bann Aðeins einn uppalinn Valsmaður í Bestu deild karla „Maður hefur verið milli tannanna á fólki síðan maður var ungur“ „Tveir Víkingar? Ég er bara hissa“ Adam hundfúll og Arnar beint í símann Vatnstjónið vísar Stólum til Akureyrar Forest í bullandi fallhættu vegna bulls í fjármálum Napoli í kapphlaupið um Albert Segir að Viðar hafi ekki mætt á æfingu á leikdegi Segir að Casemiro hafi verið aðhlátursefni gegn Palace Sjáðu aukaspyrnumark Gylfa, umdeildan rangstöðudóm og rauðu spjöldin „Síðasti naglinn í kistu Ten Hag“ „Arnar fór langt yfir strikið“ en nafni hans oftar með dónaskap Bielsa ætlar að velja áhugamann í landsliðshóp Úrúgvæ Ten Hag: Leikmennirnir hefðu átt að halda áfram að berjast líkt og stuðningsfólkið „Segir þeim að hætta þessu fokking rugli“ „Höfum engu að tapa núna“ Hákon Arnar fékk gult þegar Lille henti frá sér unnum leik Uppgjör, viðtöl og myndir: Breiðablik - Valur 2-3 | Manni færri héldu gestirnir út Crystal Palace lék sér að Man United Van Dijk vill hjálpa til við að skrifa næsta kafla Liverpool Sjá meira