Stjórnarformaður Samsung og ríkasti maður Suður-Kóreu látinn Kjartan Kjartansson skrifar 25. október 2020 09:05 Lee Kun-hee árið 2011 þegar hann stýrði sendinefnd Suður-Kóreu sem sóttist eftir að halda Vetrarólympíuleikana árið 2018. AP/Schalk van Zuydam
Lee Kun-hee, stjórnarformaður Samsung Group, er látinn 78 ára að aldri. Hann átti þátt í að byggja upp viðskiptaveldi á sviði tæknibúnaðar, vöruflutninga og trygginga og var ríkasti maður Suður-Kóreu með auðævi sem voru metin á hátt í 21 milljarð dollara, jafnvirði hátt í þrjú þúsund milljarða íslenskra króna. Samsung Group er stærsta fyrirtækjasamsteypa Suður-Kóreu. Lee tók við fyrirtækinu af föður sínum sem stofnaði það árið 1938. Hann byrjaðir fyrst að vinna fyrir samsteypuna árið 1968 og tók við sem stjórnarformaður eftir andlát föður síns árið 1987. Í tíð Lee varð Samsung Group að einu mesta viðskiptaveldi í heimi. Þrátt fyrir auðævi og velgengni í viðskiptalífinu forðaðist Lee sviðsljósið og var þekkur sem „einsetukóngurinn“ í Suður-Kóreu, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC. Hann var ekki óumdeildur og var í tvígang sakfelldur fyrir glæpi, þar á meðal fyrir að hafa mútað Roh Tae-woo, fyrrverandi forseta landsins. Eftir að Lee var ákærður fyrir skattvik og fjárdrátt árið 2008 vék hann úr stóli stjórnarformanns. Hann var dæmdur í þriggja ára skilorðsbundið fangelsi en hlaut forsetanáðun ári síðar og tók aftur við sem stjórnarformaður. Stýrði hann umsókn Suður-Kóreu um Vetrarólympíuleikana árið 2018. Ekki hefur verið greint frá banameini Lee en hann hefur þurft á umönnun að halda frá því að hann fékk hjartaáfall árið 2014.
Samsung Suður-Kórea Andlát Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Grindvíkingar borgi allt að þriðjungi hærri leigu en aðrir Viðskipti innlent Krónísk óstundvísi: Skýringar og góð ráð Atvinnulíf Dýrmætustu og sjaldgæfustu Mustang bílar landsins á afmælissýningu Mustang Samstarf Guðný og Sigurður Helgi til SI Viðskipti innlent Arnar Már nýr aðstoðarforstjóri Viðskipti innlent Tekur við stöðu sviðsstjóra Netöryggismiðstöðvar Íslands Viðskipti innlent „Ég var skíthrædd að senda þessa tölvupósta“ Atvinnulíf Sjö vilja taka við af Gunnari Viðskipti innlent Vinnunetföng algeng leið fyrir hakkara til að brjótast inn í íslensk fyrirtæki Viðskipti innlent Hefja sölu á íbúðum á Orkureitnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tekjur Apple drógust saman enn eina ferðina Stofnandi Binance dæmdur fyrir peningaþvætti Sagðir vilja frekar loka TikTok en selja Sækjast eftir fangelsisdómi yfir rafmyntakóngi Mikill samdráttur á hagnaði Tesla Ný kynslóð vélmenna vekur óhug Ólígarkar unnu mál vegna refsiaðgerða fyrir Evrópudómstól Gervigreind Amazon reyndist þúsund Indverjar Rekja meirihluta heimslosunar til 57 framleiðenda Í basli með viðhald og viðgerðir á olíuvinnslum Taylor Swift meðal 265 nýliða á milljarðamæringalista Forbes Wow lifir enn góðu lífi í undraheimi Roosevelt Edwards Sjá meira