800 milljóna króna hreinsistöð byggð á Selfossi Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 27. apríl 2024 08:06 Sveinn Ægir Birgisson, sem er formaður Eigna- og veitunefndar Árborgar. Magnús Hlynur Hreiðarsson Sveitarfélagið Árborgar ætlar sér stóra hluti þegar kemur að fráveitumálum en byggja á hreinsistöð, sem tekur allt skólp frá íbúum á Selfossi en í dag fer allt skólp óhreinsað í Ölfusá.
Það er ekki hægt að segja að ástandið í fráveitumálum í Árborg hafi verið til fyrirmyndar síðustu ár, ekki síst á Selfossi þar sem skólpið hefur farið algjörlega óhreinsað í Ölfusá, sem er reyndar vatnsmesta á landsins, og gerir enn. Íbúum fjölgar og fjölgar enda byggt og byggt en á sama tíma eru fráveitumálin í algjörum ólestri, en það stendur þó allt til bóta. Sveinn Ægir Birgisson er formaður Eigna- og veitunefndar Árborgar. „Heyrðu, við erum að framkvæma og byggja nýja hreinsistöð, sem mun taka allt skólp frá Selfossi. Við buðum hana út 2020 en fengum engin tilboð en hófum jarðvegsvinnu og henni er lokið og núna erum við búin að bjóða út uppsteypu og velja búnað til að hreinsa allt skólp sem kemur,” segir Sveinn Ægir. Allt skólp frá Selfossi fer í dag óhreinsað í Ölfusá.Magnús Hlynur Hreiðarsson Sveinn Ægir segir að nýja hreinsistöðin ætti að verði komin í notkun vorið 2026. En hvers konar hreinsistöð verður þetta? „Við byrjum á fyrsta þreps hreinsun og munum vera með fyrsta þreps hreinsun í eitt ár til að sjá í rauninni hvaða annars þrep búnað við munum þurfa að nota til að nýta hvað best hreinsun á skólpi frá Selfossi en svo munum við horfa fram á að fara í þriggja þrepa.” Hér sést hvar nýja hreinsistöðin verður staðsett þar sem rauði hringurinn er á myndinni.Magnús Hlynur Hreiðarsson Til útskýringar þá er fyrsta þreps hreinsun grófhreinsun á skólpi en með sérstökum þrepasíum í nýju hreinsistöðinni verður hreinsunin um 80 prósent með útrás í Ölfusá en þá er til dæmis átt við salernispappír og annað rusl. Tveggja þrepa hreinsun byggir alfarið á síun í stað líffræðilegs niðurbrots næringarefna, líka með útrás í Ölfusá og sé hreinsistöð þriggja þrepa má nánast drekka skólpið, hreinsunin hefur verið svo mikil og fín. „Og þetta er náttúrulega stærsta umhverfisframkvæmd, sem sveitarfélagið hefur ráðist í núna á seinni árum. Þetta mun líklega kosta sex hundruð til átta hundruð milljónir króna gæti ég trúað, hreinsistöðin, sem sagt þessi fasi, sem við erum í dag,” segir Sveinn Ægir og bætir við í lokin. Nýja hreinistöðin mun kosta 600 til 800 milljónir króna segir Sveinn Ægir.Magnús Hlynur Hreiðarsson
Árborg Skólp Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Innlent María Sigrún birtir tölvupósta Dags Innlent Fylgjast grannt með gangi mála Innlent Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Innlent Efstar með ómarktækan mun á milli sín Innlent Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Innlent „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Innlent Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Meint framhjáhald og sambandsslit í stunguárásarmáli Innlent Fleiri fréttir Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Fylgjast grannt með gangi mála Margt bendi til þess að gosinu sé lokið María Sigrún birtir tölvupósta Dags „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Sækja veikan sjómann Eldur í iðnaðarhúsnæði á Höfða Efstar með ómarktækan mun á milli sín Fjögurra bíla árekstur efst í Ártúnsbrekku Björn Leví segir Harald hafa fundið skálkaskjól í orðum Bjarna Flæði innan við einn rúmmetri á sekúndu „Ég hafna því að við séum ekki að sinna velferð dýra á þessum bæ” Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg „Ríkisfjármálin eru í ruglinu“ Atvinnubílstjórar sýni minnstu tillitssemina Orkuveitan skilar Elliðaárdalnum Stuðningsmenn Katrínar áhugasamari en aðrir Lengri lokun þar sem kerfið hefur „hangið á bláþræði“ Skúli Tómas sinnir sjúklingum af og til „Allir að bíða eftir þessum atburði sem ekki skeður“ Nýborin lömb finnist dauð og deyjandi úr vosbúð „Hef haft áhyggjur af fangelsismálum frá því ég kom í embætti“ „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Kannabis en ekki kjólar í kassanum Halla Hrund áfram efst Fjöldaúrsagnir kvenna úr mannkyninu Leki kom að bát út af Barða Óbreyttir stýrivextir, fangamál og dræmt Eurovision áhorf Sjá meira