Fyrrverandi Britney á skilorði vegna ofsókna Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 10. janúar 2022 17:52 Jason Alexander hefur verið dæmur í eins árs skilorðsbundið fangelsi fyrir ofsóknir. Vísir/Getty Jason Alexander, fyrrverandi eiginmaður poppstjörnunnar Britney Spears, hefur verið dæmdur í tólf mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir ofsóknir.
Síðasta hálfa ár hefur verið mjög gott fyrir poppstjörnuna, sem losnaði úr heljargreipum föður síns í nóvember síðastliðnum en hann hafði þá farið með forræði yfir henni í tæp fjórtán ár. Annað virðist þó uppi á teningnum hjá Jason Alexander, fyrrverandi eiginmanni Britney. Glöggt Hollywood-áhugafólk man eflaust að Britney og Alexander voru í sambandi árið 2004 og giftu sig í Las Vegas eftir nokkurra mánaða samband. Hjónabandið varði þó ekki lengi en það var ógilt 55 klukkustundum síðar. Alexander hefur haldið því fram að teymið á bak við Britney hafi neytt þau til að skilja og komið í veg fyrir að þau gætu átt í samskiptum eftir sambandsslitin. Síðastliðið ár hefur greinilega reynst Alexander erfitt. Í janúar í fyrra var hann tekinn fyrir ölvunarakstur og fundust fíkniefni þar að auki í fórum hans. Þá var hann handtekinn fyrir að fara inn á öryggissvæði á flugvellinum í Nashville í ágúst. Nú hefur hann verið dæmdur í tólf mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir ofsóknir. Samkvæmt lögregluembættinu í Franklin var hann handtekinn 30. desember og fluttur í fangelsið í Williamson héraði í Tennessee. Kim Helper, saksóknari í Williamson, segir í samtali við slúðurblaðið TMZ að hann hafi játað að hafa ofsótt konu en óvíst er hvernig þau þekkjast, ef þau gera það yfir höfuð. Alexander hefur komist að samkomulagi við saksóknara um refsingu. Hann má engin samskipti hafa við konuna og verður hann látinn gangast undir geðrænt mat og fíkniefnapróf af handahófi.
Hollywood Sjálfræðisbarátta Britney Spears Bandaríkin Tengdar fréttir Má kjósa, keyra og eignast barn í fyrsta sinn í fjórtán ár Tónlistargoðsögnin Britney Spears fagnaði sigri í sjálfræðisbaráttu sinni um helgina með því að drekka sitt fyrsta kampavínsglas. Undanfarin tæp fjórtán ár hefur Britney nefnilega ekki mátt borða, drekka eða gera nokkuð án þess að fá leyfi frá föður sínum. 17. nóvember 2021 09:01 Britney kennir mömmu sinni um sjálfræðismissinn Ofurstjarnan Britney Spears segist kenna móður sinni um að faðir hennara hafi farið með forræði yfir henni síðustu þrettán ár. Söngkonan hefur lítið sem ekkert haft um fjármál sín eða einkamál að segja þennan rúma áratug. 3. nóvember 2021 16:13 Britney loks orðin frjáls Söngkonan Britney Spears stjórnar lífi sínu loks sjálf aftur að fullu. Dómari í Los Angeles felldi í kvöld niður forræði annarra yfir fjármálum hennar og öðrum ákvörðunum í lífi Spears. Úrskurðurinn hefur þegar tekið gildi. 12. nóvember 2021 22:22 Mest lesið Ísland lenti í síðasta sæti í Eurovision Lífið Íslendingar gáfu Króatíu 12 stig og Ísrael 8 stig Lífið Sviss sigurvegari Eurovision 2024 Lífið „Drull sama hvað einhver apaköttur segir“ Tónlist Fauk í Joost þegar hann var myndaður eftir flutninginn Lífið Fylgjast frekar með Falastinvision í mótmælaskyni Lífið „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Lífið Eurovision-vaktin: Nemo vann á dramatísku kvöldi í Malmö Lífið Kvartar yfir Ísrael og vill að þeim verði vísað úr keppni Lífið „Þegar manni líður vel í eigin skinni skín það í gegn“ Tíska og hönnun Fleiri fréttir Ísland lenti í síðasta sæti í Eurovision Íslendingar gáfu Króatíu 12 stig og Ísrael 8 stig Sviss sigurvegari Eurovision 2024 Fylgjast frekar með Falastinvision í mótmælaskyni 93 ára og 90 ára söngfuglar á Suðurlandi Fauk í Joost þegar hann var myndaður eftir flutninginn Eurovision-vaktin: Nemo vann á dramatísku kvöldi í Malmö Norski stigakynnirinn hættir við Kvartar yfir Ísrael og vill að þeim verði vísað úr keppni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fréttatía vikunnar: Eldgos, knattspyrna og rapparar „Bangsar eru í raun partur af fjölskyldunni“ Spáir Ísrael sigri í Eurovision „Það gekk ekki hvað henni leið illa“ Páfiðrildi við Krónuna í Skeifunni Bashar Murad endurgerir palestínskt lag föður síns Ísrael skyndilega talið líklegt til að vinna Eurovision Fékk morðhótanir og ætlar að leita réttar síns Baulað á Ísrael sem flaug áfram í úrslitin Bieber-hjónin eiga von á barni Baulað á keppanda Ísrael á æfingu Tónlistarframleiðandinn Steve Albini látinn Backstreet-strákur kominn aftur til Íslands Byrjaði að hlaupa til að sýna fyrrverandi í tvo heimana „Sögulegir skór“ Mari Järsk á uppboði Hafa komist að samkomulagi vegna andláta á Astroworld Í lagi að sætta sig við að vera barnlaus „Mér finnst mikilvægt að ég segi frá minni hlið“ Náttúrulegar bótox-meðferðir án sprautunála „Ef ég gæti hnoðað einn úr tíu bestu væri það himnaríki á jörð“ Sjá meira
Má kjósa, keyra og eignast barn í fyrsta sinn í fjórtán ár Tónlistargoðsögnin Britney Spears fagnaði sigri í sjálfræðisbaráttu sinni um helgina með því að drekka sitt fyrsta kampavínsglas. Undanfarin tæp fjórtán ár hefur Britney nefnilega ekki mátt borða, drekka eða gera nokkuð án þess að fá leyfi frá föður sínum. 17. nóvember 2021 09:01
Britney kennir mömmu sinni um sjálfræðismissinn Ofurstjarnan Britney Spears segist kenna móður sinni um að faðir hennara hafi farið með forræði yfir henni síðustu þrettán ár. Söngkonan hefur lítið sem ekkert haft um fjármál sín eða einkamál að segja þennan rúma áratug. 3. nóvember 2021 16:13
Britney loks orðin frjáls Söngkonan Britney Spears stjórnar lífi sínu loks sjálf aftur að fullu. Dómari í Los Angeles felldi í kvöld niður forræði annarra yfir fjármálum hennar og öðrum ákvörðunum í lífi Spears. Úrskurðurinn hefur þegar tekið gildi. 12. nóvember 2021 22:22