Subway Körfuboltakvöld: Umræða um breytt fyrirkomulag Subway-deildar kvenna Smári Jökull Jónsson skrifar 4. febrúar 2023 10:31 Halldór Karl Þórsson og Pálína Gunnlaugsdóttir voru sérfræðingar í Subway Körfuboltakvöldi og ræddu tillögu að breytingu á fyrirkomulagi deildarinnar. Vísir Þátturinn Subway Körfuboltakvöld var á dagskrá á fimmtudag þar sem Hörður Unnsteinsson og sérfræðingar fóru yfir tillögur sem liggja fyrir um breytt keppnisfyrirkomulag í Subway deild kvenna.
Þau Pálína Gunnlaugsdóttir og Halldór Karl Þórsson voru gestir Harðar í þættinum á fimmtudag og auk þess að fara í saumana á leikjunum í síðustu umferð deildarinnar ræddu þau tillögu sem komin er fram um breytt keppnisfyrirkomulag í Subway deild kvenna. Eins og deildin er spiluð núna þá eru átta lið í deildinni þar sem fjögur efstu liðin komast í úrslitakeppni og neðsta lið deildarinnar fellur í næst efstu deild. Nú liggja fyrir tillögur um breytt fyrirkomulag með það að markmiði að fjölga liðum og fjölga jöfnum leikjum en deildin í ár hefur nánast alveg verið tvískipt og töluvert um stóra sigra. Tíu liða deild og sex liða úrslitakeppni Halldór Karl kynnti tillögurnar sem hafa verið sendar út á öll félög sem eiga lið í efstu og næst efstu deild kvenna. „Fyrsta pælingin er að fjölga í deildinni og fá fleiri lið og fleiri stelpur til að spila í efstu deild og styrkja deildina. Við sjáum sérstaklega núna að hún er algjörlega tvískipt og þessi umferð núna er ótrúlega óspennandi,“ sagði Halldór sem þjálfaði kvennalið Fjölnis í fyrra og er núverandi þjálfari karlaliðs félagsins. „Við erum nokkrir þjálfarar búnir að móta þetta sem erum mikið inni í kvennaboltanum. Pælingin er að setja tíu lið í deildina, taka tvöfalda umferð og skipta þá yfir í A og B-deild,“ sagði Halldór en í kjölfar skiptingarinnar yrði leikin tvöföld umferð í hvorri deild. Klippa: Umræða um breytt fyrirkomulag í Subway-deild kvenna „Síðan er planið að fara í sex liða úrslitakeppni með „play-in“ fyrirkomulagi eins og í NBA-deildinni,“ bætti Halldór við en þar myndu öll fimm liðin í A-deild keppa ásamt efsta liði B-deildar. Pálína tók vel í breytingarnar og sagði gott að hafa að mörgu að keppa. „Þarna ertu með svo mörg lítil markmið á leiðinni. Byrjum á því að komast í 5.sætið, verum í efri hlutanum. Það eru svo margar vörður á leiðinni.“ Pálína rifjaði einnig upp að áður hefði verið reynt fyrirkomulag þar sem deildinni væri skipt í tvennt. Hörður og Pálína voru sammála um að lykilbreyting núna væri að efsta lið B-deildar færi í úrslitakeppni. Alla umræðu þeirra Harðar, Halldórs Karls og Pálínu má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.
Subway-deild kvenna Körfuboltakvöld Mest lesið Mari Järsk sigurvegari Bakgarðshlaupsins Sport Stuðningurinn ómetanlegur: „Farið í dýpstu leyndarmálin“ Sport Gat ekki staðið upp til að taka við bikarnum Sport „Maður hefur verið milli tannanna á fólki síðan maður var ungur“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Ísland - Eistland 50-25 | Stigu bensínið í botn frá fyrstu mínútu Handbolti Adam hundfúll og Arnar beint í símann Íslenski boltinn Uppgjörið og viðtöl: Grindavík - Keflavík 96-71 | Gulklæddir flengdu Keflvíkinga Körfubolti Joselu hetjan þegar Real Madrid fór í úrslit í enn eitt skiptið Fótbolti Sjáðu aukaspyrnumark Gylfa, umdeildan rangstöðudóm og rauðu spjöldin Íslenski boltinn Mari meyr eftir sigurinn Sport Fleiri fréttir „Á flestum sviðum körfuboltans voru þeir bara betri en við“ „Þetta var bara sturlað“ Martin og Styrmir góðir en liðunum gekk misvel Uppgjörið og viðtöl: Grindavík - Keflavík 96-71 | Gulklæddir flengdu Keflvíkinga Fékk yfirburðarkosningu sem varnarmaður ársins Litli Jordan vill alls ekki vera líkt við Jordan OKC áfram taplaust og Boston byrjar vel Ræðir veru sína í rússnesku fangelsi í nýrri bók Aþena upp í Subway-deildina „Gamaldags boxbardagi frá fyrstu mínútu“ „Dómur þarna í restina sem ákveður úrslitin“ Uppgjör: Valur - Njarðvík 68-67 | Ekki fallegt en það telur Kosinn nýliði ársins með fullu húsi Riley sagði Butler að halda kjafti og lofaði honum ekki nýjum samningi Brunson í fámennan klúbb og Knicks veittu fyrsta höggið „Ótrúlega stoltur að klára mjög sterkt og vel mannað Grindavíkurlið“ „Það er þjálfarinn sem á að stíga upp og finna betri lausnir“ Uppgjör: Grindavík - Njarðvík 69-82 | Njarðvík í úrslit Þjálfari Luka og Kyrie framlengir „BLE-bræður eru brjálaðir!“ Áflogaseggir fá ekki að mæta aftur á völlinn Mitchell skaut Cleveland í undanúrslit Austursins „Ef maður fær opin skot þá verður maður að taka þau“ Uppgjör og viðtöl: Keflavík - Stjarnan 87-78 | Heimakonur einum sigri frá úrslitum Búið að fjarlægja auglýsingarnar af gólfinu í Smáranum Helena fær sæti í Heiðurshöll TCU skólans Bara þrjú af tíu líklegustu NBA-liðunum komust í aðra umferð Hetja Keflvíkinga hafði aldrei áður skorað svona flautukörfu á ferlinum NBA meistararnir réðu ekki við hinn magnaða Anthony Edwards „Við höldum bara áfram þangað til að leikurinn er búinn“ Sjá meira