Norðmaðurinn tók gullið

Norðmaðurinn Sebastian Foss-So­levåg.
Norðmaðurinn Sebastian Foss-So­levåg. AFP

Norðmaðurinn Sebastian Foss-So­levåg varð heimsmeistari karla í svigi á HM í alpagreinum í Cort­ina d'Am­pezzo á Ítal­íu í dag. Foss-So­levåg var þriðji eftir fyrri ferðina í morgun.

Hann var hins vegar fljótastur niður brekkuna í seinni ferðinni og hreppti gullið, heildartími hans var 1:46,48. Austurríkismaðurinn Adrian Pertl, sem var efstur eftir fyrri ferðina, tók silfrið og annar Norðmaður var svo í þriðja sæti, Henrik Kristoffersen.

Íslendingurinn Sturla Snær Snorrason var á meðal keppenda og með rásnúmer 59 en honum tókst ekki að ljúka fyrri ferðinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert