Telja Kína græða á deilum Bandaríkjanna og Marshall-eyja Samúel Karl Ólason skrifar 26. nóvember 2021 14:10 Íbúar Marshall-eyja vilja meiri peninga frá Bandaríkjunum í hreinsunarstarf vegna kjarnorkuvopnatilrauna á eyjunum á síðustu öld. AP/Rob Griffith Marshall-eyjar hafa um árabil verið ötulir bandamenn Bandaríkjanna. Nú hafa hins vegar komið upp miklar deilur milli ríkjanna og bandarískir þingmenn óttast að Kínverjar stígi inn í tómarúmið og nái fótfestu á eyjunum sem eru staðsettar í miðju Kyrrahafinu.
Frá seinni heimsstyrjöldinni hafa Bandaríkjamenn byggt upp aðstöðu fyrir herafla sinn á Marshall-eyjum og í raun komið fram við Marshalleyjar eins og hluta af Bandaríkjunum, samkvæmt frétt AP fréttaveitunnar. Í staðinn hafa Bandaríkin lagt peninga til uppbyggingar á eyjunum og skapað störf. Þá hafa margir íbúar Marshall-eyja nýtt sér það að geta búið og unnið í Bandaríkjunum. Þúsundir hafa flutt til Havaí, Arkansas og Oklahoma. Ráðamenn á Marshall-eyjum vilja að Bandaríkin greiði frekari bætur til íbúa eyjanna vegna mikils fjölda kjarnorkuvopnatilrauna sem voru framkvæmdar þar á fimmta og sjötta áratug síðustu aldar. Þar á meðal er tilraunasprengingin á Bikini-rifi. Þeir kvarta yfir hárri tíðni krabbameins meðal íbúa og segja að gamalt samkomulag frá níunda áratug síðustu aldar dugi ekki til. Það samkomulag sé ekki sanngjarnt og taki ekki tillit til þess skaða sem íbúar eyjanna hafa orðið fyrir. Nú er kominn tími til að endurnýja það samkomulag en það vilja íbúar Marshall-eyja ekki gera. Frekar vilja þeir gera nýtt og betra samkomulag. Vilja viðræður í forgang Ríkisstjórn Joes Biden hefur ekki átt í viðræðum við ráðamenn á Marshall-eyjum og því hefur hópur fulltrúadeildarþingmanna beggja flokka á Bandaríkjaþingi mótmælt. Þeir segja ekki við hæfi að ræða ekki um málið og semja við ráðamenn á Marshall-eyjum á sama tíma og Bandaríkjamenn hafa beint athygli sinni frekar að Kyrrahafinu og því að sporna gegn auknum áhrifum Kína. Þingmennirnir segja aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar veikja stöðu Bandaríkjanna og gefa ráðamönnum í Kína færi á að stíga inni í tómarúmið og koma að þeim mikilvægu fjárfestingum sem íbúar Marshall-eyja vilja og þurfa. Vijla viðgerðir á steypuhvelfingu Gamla samkomulagið sem Bandaríkin gerðu við Marshall-eyjar var samkvæmt AP fréttaveitunni upp á 150 milljónir dala. Áætlað er að raunverulegur kostnaður vegna skaðans sem kjarnorkuvopnatilraunirnar ollu séu nær þremur milljörðum dala. Þar er innifalinn kostnaður vegna viðgerða á steypuhvelfingu sem inniheldur mikið magn geislavirks jarðvegs. Sérfræðingar segja hana skemmda og að geislavirkur úrgangur leki frá henni. Orkumálastofnun Bandaríkjanna sagði í skýrslu sem birt var í fyrra að byggingin væri ekki skemmd og að grunnvatn sem yrði fyrir geislavirkni vegna hennar hefði ekki mælanleg áhrif á umhverfið.
Bandaríkin Marshall-eyjar Kína Tengdar fréttir Ástralskir lögreglumenn skerast í leikinn á Salómonseyjum Útgöngubanni hefur verið komið á yfir nótt á Salómonseyjum í Kyrrahafi þar sem óeirðir hafa geisað undanfarna þrjá daga. Ástralskir lögreglumenn sem voru sendir til að aðstoða stjórnvöld á eyjunum hafa tekið sér stöðu á lykilstöðum í höfuðborginni Honiara. 26. nóvember 2021 08:40 Ætla ekki að verða við kröfu Kína og fjarlægja strandað skip í Suður-Kínahafi Ríkisstjórn Filippseyja ætla ekki að fjarlægja gamalt herskip sem er strand á rifi í Suður-Kínahafi, eins og Kínverjar krefjast. Her Filippseyja hefur notað skipið sem varðstöð á yfirráðasvæði landsins í Suður-Kínahafi sem Kínverjar hafa gert ólöglegt tilkall til. 25. nóvember 2021 10:48 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Erlent Svandís boðar til blaðamannafundar Innlent „Fann það þegar ég vaknaði í morgun að þetta var lúmskt áfall“ Innlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Sautján greinst með kíghósta og inflúensan enn að dreifa sér Innlent Heyrist meira af kjaftæði um lyf en vísindalegum staðreyndum Innlent Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Erlent Horfði á þegar vinur hans réðst á manninn sem braut á dóttur hans Innlent Vilja svör um möguleg „óþægileg hagsmunatengsl“ borgar og RÚV Innlent Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael Erlent Fleiri fréttir Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Trump sektaður um meira en milljón króna Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Fjórir lögreglumenn skotnir til bana í Charlotte Rostungur sem fannst í fyrra drapst af völdum fuglaflensu Hvetur Hamas til að ganga að rausnarlegum tillögum Ísrael Flugvöllur Færeyinga fær að taka við stærri þotum Yousaf segir af sér sem ráðherra og formaður Skoska þjóðarflokksins Sánchez hættir við að segja af sér Grafið undan fjölmiðlafrelsinu víða í Evrópu Vopnahlé í sjónmáli? Sjá meira
Ástralskir lögreglumenn skerast í leikinn á Salómonseyjum Útgöngubanni hefur verið komið á yfir nótt á Salómonseyjum í Kyrrahafi þar sem óeirðir hafa geisað undanfarna þrjá daga. Ástralskir lögreglumenn sem voru sendir til að aðstoða stjórnvöld á eyjunum hafa tekið sér stöðu á lykilstöðum í höfuðborginni Honiara. 26. nóvember 2021 08:40
Ætla ekki að verða við kröfu Kína og fjarlægja strandað skip í Suður-Kínahafi Ríkisstjórn Filippseyja ætla ekki að fjarlægja gamalt herskip sem er strand á rifi í Suður-Kínahafi, eins og Kínverjar krefjast. Her Filippseyja hefur notað skipið sem varðstöð á yfirráðasvæði landsins í Suður-Kínahafi sem Kínverjar hafa gert ólöglegt tilkall til. 25. nóvember 2021 10:48