Finnur Freyr: Við trúum því að þetta lið sé nógu gott til að fara í hvern einasta leik til þess að vinna hann Árni Jóhannsson skrifar 14. október 2021 22:33 Finnur var ánægður með sína menn í kvöld Valsmenn fóru með sigur af hólmi gegn Grindvíkingum í kvöld þegar liðin áttust við í annarri umferð Subway deildar karla í körfubolta í kvöld. Leikurinn endaði 81-77 í leik sem var kaflaskiptur og var Finnur ánægður með ýmsa hluti í leik sinna manna.
Valsmenn fóru með sigur af hólmi gegn Grindvíkingum í kvöld þegar liðin áttust við í annarri umferð Subway deildar karla í körfubolta í kvöld. Leikurinn endaði 81-77 í leik sem var kaflaskiptur og var Finnur ánægður með ýmsa hluti í leik sinna manna. Finnur var spurður að því hvað hafi skilið liðin að og svaraði hann um hæl „fjögur stig“ og brosti áður en hann hélt áfram í greiningu á leiknum. „Nokkur stopp í leiknum. Við náðum að byggja upp ágætis mun nokkrum sinnum í leiknum en missum hann alltaf til baka og kredit á sérstaklega Kidda að setja niður stór skot í lokin en við við kláruðum þetta fyrst og fremst með smá iðnaði. Sterk fráköst og varnarstopp þegar það skipti máli.“ Sóknarleikur beggja liða var mjög stífur framan af og var Finnur spurður út í hvað hann hafi séð í sínu liði sem batnaði þegar leið á leikinn. „Mér finnst við vera að læra betur inn á hvorn annan eftir því sem líður á. Grindvíkingarnir eru þéttir og hávaxnir og geta skipt á stöðum. Ivan er svo gríðarlega grimmur undir körfunni þannig að ég var mjög ánægður með að við fórum að finna lausnir og fórum t.d. að finna Callum á fleiri stöðum. Það hefur vantað í fyrstu tveimur leikjunum og svo er jákvætt að strákar eins og Sveinn Búi komi inn og þori þegar mest á reynir.“ Áður nefndur Sveinn Búi Birgisson átti flotta innkomu af bekknum og skoraði átta stig og var Finnur inntur eftir því hvort það væru ekki jákvæð teikn að hann fengi framlag frá mörgum leikmönnum og þar á meðal ungum leikmanni eins og Sveini. „Þetta er það sem ég hef séð frá Sveini Búa á undirbúningstímabilinu og svo hefur Ástþór einnig verið að sýna þetta. Það er krafan að þeir geri eitthvða svona þegar þeir koma inn. Kannski ekki í hverjum leik en að þeir séu tilbúnir að koma inn og vera ógn. Þeir eru báðir góðir skotmenn og frábærir sóknarmenn og eru að batna varnarlega og eftir því sem við þjöppum okkur meira saman og lærum meira inn á hvern annann að þá fer flæðið að koma og menn finna meira og meira svigrúm til að gera sína hluti.“ Að lokum var spurt að því hvort eitthvað væri að frétta af leikmanni sem telst til kanaígildis hjá Valsmönnum en það hefur verið rætt hvort þannig leikmaður sé á leið til liðsins. „Nei, við trúum því að þetta lið sem við erum með sé nógu gott til að fara í hvern einasta leik til þess að vinna hann og það er náttúrlega okkar markmið. Okkur dreymir en við vitum að til þess að það gerist þá þurfum við að leggja gríðarlega mikið á okkur og hlutirnir þurfa að falla fyrir okkur. Við skoðum þau mál bara ef þau koma upp og ef það þróast þannig en við erum ánægðir með hópinn eins og hann er í dag.“
Subway-deild karla Valur Tengdar fréttir Leik lokið: Valur - Grindavík 81-77 | Kaflaskiptur leikur er Valur sigraði Grindavík eftir spennandi lokakafla Miklar væntingar eru gerðar til Valsmanna í vetur og liðið þarf að sanna sig eftir skella á Króknum í fyrstu umferð Subway-deildar karla. Nú koma Grindvíkingar í heimsókn á Hlíðarenda. 14. október 2021 22:15 Mest lesið Þjálfari Orra Steins sáttur: Hann hefur haldið kjafti Fótbolti Þurfti að eyða níu og hálfum tíma í leigubíl til að komast í burtu Sport Ákærður fyrir að slá barn sitt með blautu handklæði Sport Hrósar Alberti en Inter þarf að safna fyrir honum Fótbolti Landsliðsmaður blandar sér í umræðuna um umdeilda sigurkörfu Njarðvíkinga Körfubolti Saman á ný eftir súrrealískan dag: „Við erum eins og lím við hvorn annan“ Íslenski boltinn Liðsfélagarnir í sumarfríi en hann að vinna tólf tíma á dag á Íslandi Körfubolti Fyrstir áfram en þjálfarinn meiddist alvarlega þegar leikmaður hans lenti á honum Körfubolti Sjáðu dramatíkina í fyrsta grasleiknum á KR-vellinum og öll hin mörkin Íslenski boltinn Áfall fyrir Vestra: Eiður Aron brotinn og lengi frá Íslenski boltinn Fleiri fréttir Landsliðsmaður blandar sér í umræðuna um umdeilda sigurkörfu Njarðvíkinga Liðsfélagarnir í sumarfríi en hann að vinna tólf tíma á dag á Íslandi Fyrstir áfram en þjálfarinn meiddist alvarlega þegar leikmaður hans lenti á honum „Hver karfa skiptir máli þannig að ég varð smá reiður“ Uppgjör: Grindavík - Njarðvík 79-83 | Grænar stálu heimavellinum í Smáranum Brunson skaut Philadelphia í kaf LeBron og Davis köstuðu líflínu til Lakers Bucks líklega án beggja ofurstjarna sinna í leik fjögur Góður leikur Tryggva skilaði engu „Kviknaði á okkur og við náðum að slökkva í þeim“ Uppgjör og viðtöl: Keflavík - Stjarnan 93-65 | Ótrúlegur seinni hálfleikur og Keflavík leiðir „Höfum verið að bíða eftir þessu“ Úlfarnir einum sigri frá því að senda Sólirnar í sumarfrí Aþena sendi sterk skilaboð í fyrsta leik Þrjú Suðurnesjalið í undanúrslitum í fyrsta sinn í tuttugu ár Davíð Tómasi bárust ljót skilaboð eftir leik: „Fokking mongolitið þitt“ „Krakkarnir í stúkunni eru byrjaðir að taka upp á þessu líka“ Lakers einu tapi frá því að vera sópað út úr úrslitakeppninni Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra „Tel mjög vafasamt að klukkan hafi verið sett af stað á réttum tíma“ „Vakna í hádeginu á morgun og fer að hugsa um Valsarana“ Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu Friðrik Ingi sæmdur gullmerki Njarðvíkur Þórsarar hafa spilað þrjá oddaleiki síðan Njarðvík var síðast í oddaleik Sjokkeruðu Celtics menn með þriggja stiga skotsýningu „Heldur betur búinn að vinna hjörtu Keflvíkinga“ Tekið á móti Tryggva eins og Hollywood stjörnu Hristir hausinn yfir „glórulausum“ og „smásálarlegum“ ummælum Uppgjörið og viðtöl: Haukar 73-75 Stjarnan | Stjarnan áfram eftir naglbít Martin frábær í öruggum sigri Sjá meira
Leik lokið: Valur - Grindavík 81-77 | Kaflaskiptur leikur er Valur sigraði Grindavík eftir spennandi lokakafla Miklar væntingar eru gerðar til Valsmanna í vetur og liðið þarf að sanna sig eftir skella á Króknum í fyrstu umferð Subway-deildar karla. Nú koma Grindvíkingar í heimsókn á Hlíðarenda. 14. október 2021 22:15
Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu