Hefja árslangt ferðalag sem endar á brotlendingu Samúel Karl Ólason skrifar 23. nóvember 2021 12:05 DART á að skella á smástirni á meira en 23 þúsund kílómetra hraða á klukkustund næsta haust. NASA Starfsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) hafa ákveðið skjóta DART-geimfarinu á loft á fimmtudagsmorgun (24. nóv). Geimfarið á að brotlenda á smástirni í um ellefu milljóna kílómetra fjarlægð eftir tæpt ár. Markmiðið er að kanna getu jarðarbúa til að breyta stefnu smástirnis ef ske skyldi að slíkt stefndi að jörðinni.
DART stendur fyrir Double Asteroid Redirection Test og er geimfarið merkilegt fyrir nokkrar sakir. Geimfarinu verður skotið á loft með Falcon 9 eldflaug SpaceX og frá Vandenberg-herstöðinni í Kaliforníu. Áætlað er að geimfarið brotlendi á smástirninu Dimorphos næsta haust og vonast vísindamenn til þess að geta séð hve mikið áreksturinn hægir á smástirninu, sem snýst um annað smástirni sem heitir Didymos. Áhrifin verða könnuð með tólum á jörðinni og með litlu geimfari sem mun fylgja DART síðasta spölinn og fylgjast með brotlendingunni. Þremur árum seinna mun Geimvísindastofnun Evrópu (ESA) senda geimfar sem heitir Hera til smástirnisins og kanna áhrif brotlendingarinnar frekar. DART-geimfarið mun nota nýja tækni sem gerir tölvu geimfarsins klárt að stýra því með meiri nákvæmi en áður svo hægt sé að auka líkurnar á því að geimfarið, sem er á stærð við bíl, hitti smástirnið, sem er um 160 metrar í þvermál, á rúmlega 23 þúsund kílómetra hraða á klukkustund. Nýja tæknin mun gera DART kleift að greina milli Didymos og Dimorphos í rauntíma og miða á það síðarnefnda. Auk þess mun DART-geimfarið bera nýja tækni fyrir sólarsellur sem á að auka getu þeirra til að búa til rafmagn úr sólarljósi. Sólarsellur þessar eiga að vera þrefalt öflugri en hefðbundnar. Þær sellur eru nauðsynlegar til að knýja nýtt tilrauna-jónadrif NASA sem kallast NEXT-C. Það er ekki aðaldrif DART en verður sett í gang á leiðinni og er markmiðið að kanna hvort hægt verði að nota jónadrif sem þetta til ferða lengra út í geim á næstu árum. Jónadrif hafa í stuttu máli sagt þann kost að þurfa minna eldsneyti til að mynda sama þrýstikraft og hefðbundnir hreyflar geimfara. Áhugasamir geta lesið nánar um jónadrif hér á vef NASA.
Geimurinn Tækni Tengdar fréttir Skjóta geimfari á loftstein til að æfa jarðvarnir Geimfari á vegum NASA, bandarísku geimvísindastofnunarinnar, verður skotið á loft í næsta mánuði og mun brotlenda á smástirni í 11 milljóna kílómetra fjarlægð eftir tæpt ár. 6. október 2021 10:39 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Segja „alvarlegar staðreyndavillur“ í umfjöllun Kastljóss Innlent Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Innlent Séra Guðrún kjörin biskup Íslands Innlent Stillir viðtækið á alheimsdögunina Innlent „Skítkastið var ógeðslegt“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Lífverðir Selenskís sakaðir um að skipuleggja banatilræði Erlent Verðhækkanir á döner-kebab eitt helsta áhyggjuefni Þjóðverja Erlent „Massíf slysaslepping á vondu frumvarpi“ Innlent Beinagrindur og ástarsorg á Bessastöðum Innlent Fleiri fréttir Skotárás við heimili Drake Stormy Daniels í dómsal með Trump Lífverðir Selenskís sakaðir um að skipuleggja banatilræði Reynt að siga lögreglu á vitni í málinu gegn Trump Fundu hlerunarbúnað í fundarherbergi ráðherra Pútín hefur fimmta kjörtímabilið með meiri völd en áður Sagðist saklaus af því að hafa drepið með eitruðum sveppum Verðhækkanir á döner-kebab eitt helsta áhyggjuefni Þjóðverja Geimskoti Starliner var frestað í nótt Segja nýjar reglur um merkingar blekkingarleik laxeldisfyrirtækja Ísraelsmenn í aðgerðum í Rafah og taka yfir landamærastöðina Tillagan „langt frá“ grundvallarkröfum Ísraela Ferðamannastaðir Færeyja lokaðir vegna viðhalds Bein útsending: Starliner ber geimfara til geimstöðvarinnar Hamas samþykkir vopnahléstillögu Áttatíu og tveggja ára Bernie vill sex ár í viðbót Ávítti Trump aftur og ítrekaði fangelsishótun Reiðir yfir ummælum Macrons og halda æfingar með kjarnorkuvopn Sökktu rússneskum hraðbát með sjálfsprengidróna Verður næsti formaður Skoska þjóðarflokksins Sakaði Biden um að reka lögregluríki í anda nasista Aukastörf meðfram þingmennsku skapi hættu á hagsmunaárekstrum Lík þriggja brimbrettakappa fundust í brunni í Mexíkó Xi og Macron ræða kínverska rafbíla og franskt koníak Um 100.000 sagt að rýma svæði á Rafah vegna „afmarkaðra aðgerða“ Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Ísrael samþykkir ekki vopnahlé Ísraelsmenn vísa fréttamönnum á dyr Íhaldsflokkurinn laut í lægra haldi í sveitarstjórnarkosningum Tuga enn saknað og 55 látnir Sjá meira
Skjóta geimfari á loftstein til að æfa jarðvarnir Geimfari á vegum NASA, bandarísku geimvísindastofnunarinnar, verður skotið á loft í næsta mánuði og mun brotlenda á smástirni í 11 milljóna kílómetra fjarlægð eftir tæpt ár. 6. október 2021 10:39