Innlent

Reykja­vík lækkar gjald­skrár vegna þjónustu við barna­fjöl­skyldur

Jón Ísak Ragnarsson skrifar
Gjaldskrár Reykjavíkur vegna þjónustu við börn og barnafjölskyldur verða lækkaðar frá og með fyrsta júní næstkomandi.
Gjaldskrár Reykjavíkur vegna þjónustu við börn og barnafjölskyldur verða lækkaðar frá og með fyrsta júní næstkomandi. Vísir/Arnar/Reykjavík

Gjaldskrár Reykjavíkurborgar vegna þjónustu við börn og barnafjölskyldur verða lækkaðar að jafnaði um tvö prósent frá og með fyrsta júní næstkomandi. Hækkanir frá síðustu áramótum verði dregnar til baka. Aðgerðin er liður í að liðka fyrir gerð kjarasamninga.

Við gerð kjarasamninganna fyrr í vetur skrifaði Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, undir yfirlýsingu um stuðning ríkisstjórnarinnar og Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna kjarasamninga. Í tilkynningu frá Reykjavík segir að til að greiða fyrir langtímakjarasamningum á vinnumarkaði muni ríkisstjórnin og Samband íslenskra sveitarfélaga vinna að aðgerðum sem styðji við sameiginleg markmið stjórnvalda og samningsaðila um að leggja grundvöll að bættum lífskjörum og kaupmætti launafólks og stuðla að lækkun verðbólgu og vaxta. Áskorun hafi verið send á sveitarfélög vegna þeirrar yfirlýsingar og er lækkun gjaldskrár meðal atriða sem þar hafi komið fram.

Forystufólk verkalýðsfélaganna, atvinnulífsins, og sveitarfélaganna við undirritun kjarasamninganna í mars.Vísir/Vilhelm

Reykjavík sé hagstæð fjölskyldum

Í tillögu borgarstjóra sem samþykkt var í borgarstjórn í gær kemur fram að Reykjavíkurborg hafi um árabil tryggt fjölskyldum í borginni og barnafólki hagstæðar gjaldskrár fyrir þjónustu sína og verið í fararbroddi meðal sveitarfélaga hvað það varðar. Þar segir enn fremur að það sé stefna borgarinnar „að vera áfram hagstæðasta borg fyrir fjölskyldufólk til að búa í með hliðsjón af gjaldskrám.“


Tengdar fréttir

Segir sveitarfélögin ekki græða þrátt fyrir auka tíu milljarða

Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, segir gjaldfrjálsar skólamáltíðir í nýjustu kjarasamningum hafa staðið einna mest í sveitarfélögunum en það verði útfært með ríkinu. Þrátt fyrir að samningarnir feli í sér tíu milljarða auka fyrir sveitarfélögin segir hún þau ekki hagnast sérstaklega frekar en aðrir.

Þetta eru lykilatriðin í nýjum kjarasamningi

Nú klukkan fimm hefst undirskrift fulltrúa Starfsgreinasambandsins, Eflingar og Samiðnar við Samtök atvinnulífsins á tímamótasamningi til fjögurra ára. Samningarnir eru merkilegir vegna hóflegra launahækkana og óvenju langs gildistíma sem er fjögur ár.

Sveitar­fé­lögin tali skýrt um gjald­skrár­lækkanir og fríar skóla­mál­tíðir

Ekki verður skrifað undir nýja kjarasamninga nema sveitarfélögin leggi skýrt fram til hvaða aðgerða þau eru reiðubúin að grípa til að tryggja frið á vinnumarkaði næstu fjögur árin, að sögn formanns Starfsgreinasambandsins. Hann er hins vegar bjartsýnn á að leyst verði úr þeim ágreiningsefnum sem eftir eru í viðræðum við Samtök atvinnulífsins.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×