„Að fólk kunni að meta það sem maður leggur hjarta sitt í eru hin sönnu laun“ Elísabet Hanna skrifar 13. maí 2022 15:32 Leikstjóri og handritshöfundur myndarinnar er Tinna Hrafnsdóttir Vísir/Vilhelm Kvikmyndin Skjálfti hefur verið seld til fjögurra landa og mun þar að auki taka þátt í kynningarmarkaðinum á Cannes í ár samkvæmt Variety. Myndin er skrifuð og leikstýrt af Tinnu Hrafnsdóttur.
Fjölskylduleyndarmál Kvikmyndin Skjálfti er byggð á metsölubók Auðar Jónsdóttur Stóra Skjálfta. Aníta Briem fer með aðalhlutverkið sem Saga en myndin skartar meðal annars þeim Eddu Björgvins, Jóhanni Sigurðarsyni og Bergi Ebba. „Saga, sem er einstæð móðir, missir minnið þegar hún er í göngu á Klambratúni með sex ára syni sínum því hún fær svo heiftarlegt flogaveikiskast,“ sagði Tinna í viðtali við Ísland í dag í síðasta mánuði. Í kjölfar minnisleysisins fer Saga að reyna að grafa upp fortíðina til þess að endurheimta minningarnar en á sama tíma óttast hún að vera dæmd óhæf og missa son sinn frá sér. Þá koma fram ýmis fjölskylduleyndarmál sem hafa verið þögguð niður. Aníta Briem fer með hlutverk Sögu í myndinni.Skjálfti. Gott að fólk kunni að meta söguna Myndin verður sýnd í Norður Ameríku, Svíþjóð og Bretlandi en aðspurð hvernig tilfinningin sé með þetta stóra skref fyrir Skjálfta segir Tinna: „Hún er virkilega góð. Að fólk kunni að meta það sem maður leggur hjarta sitt í eru hin sönnu laun og að myndin skuli fá þessa dreifingu er gríðarlega mikilvægt og mikil viðurkenning.“ Sjálf er Tinna að vinna hörðum höndum að undirbúa næsta verkefni og fer því ekki til Cannes þetta árið en fyrirtækið Alief fer fyrir hönd myndarinnar á Cannes Marché du Film. „Nei, ekki í þetta skiptið. Þeir sem sjá um söluna á myndinni verða þar og vonandi fær hún i kjölfarið enn frekari dreifingu. Ég verð hér heima að undirbúa næsta verkefni sem fer að öllum líkindum í tökur næsta haust,“ segir Tinna og verður spennandi að sjá hvert það verkefni verður.
Kvikmyndagerð á Íslandi Bíó og sjónvarp Tengdar fréttir Heltekin af þessari sögu: „Við breytum ekki fortíðinni“ „Við breytum ekki staðreyndum, við breytum ekki fortíðinni og við breytum ekki því sem gerðist,“ segir Tinna Hrafnssdóttir leikkona og leikstjóri. 31. mars 2022 11:31 „Fjölskylduleyndarmál sem enginn vildi tala um“ Kvikmyndin Skjálfti er byggð á metsölubók Auðar Jónsdóttur Stóra Skjálfta. Leikstjóri og handritshöfundur er Tinna Hrafnsdóttir og er óhætt að segja að valið sé vel í hlutverk en myndin skartar Anítu Briem, Eddu Björgvins, Jóhanni Sigurðarsyni, Bergi Ebba og fleiri frábærum leikurum. 20. apríl 2022 10:31 Mest lesið „Kveiktum næstum í öllu sumarbústaðalandinu“ Lífið Engir palestínskir fánar í Eurovision-höllinni Lífið Sígó eftir hvern hring og undir lokin þurfti að lyfta Mari upp úr stólnum en hún hljóp af stað Lífið Mikið fjör á opnun kosningaskrifstofu Gnarr Lífið Sjarmerandi og seiðandi á sjötugsaldri Lífið Sagan á bak við djarft listaverk Ásdísar Ránar Lífið Annie Mist og Frederik eignuðust dreng Lífið Hljómborðsleikari ELO fallinn frá Lífið Ný vörulína lagar litabletti í húð Lífið samstarf Jón Daði og María Ósk eignuðust dreng Lífið Fleiri fréttir Lolla í Litlu hryllingsbúðinni:„Þetta er auðvitað geggjað hlutverk“ Jón Daði og María Ósk eignuðust dreng Tíu ár og aukin meðvitund í bransanum Hvetur fólk til þess að leika sér Sígó eftir hvern hring og undir lokin þurfti að lyfta Mari upp úr stólnum en hún hljóp af stað Annie Mist og Frederik eignuðust dreng Hljómborðsleikari ELO fallinn frá Engir palestínskir fánar í Eurovision-höllinni Mikið fjör á opnun kosningaskrifstofu Gnarr Sjarmerandi og seiðandi á sjötugsaldri Nemendur Flóaskóla slá í gegn með Langspilin sín „Kveiktum næstum í öllu sumarbústaðalandinu“ „Nútíminn er trunta“ Sagan á bak við djarft listaverk Ásdísar Ránar Rithöfundurinn Paul Auster er látinn „Eurovision mamman“ með gleði og kærleika að vopni Múgur og margmenni fylgdust með ótrúlegu ostakúluáti „Hin raunverulegu stólaskipti fóru fram í dag“ Óstundvísi Steina sögð kosta tugi milljóna dollara Gerða og glæsilegar gellur á Edition Swing og hópkynlíf fyrir byrjendur! Snorri og Harpa selja á Njálsgötu Halda samstöðutónleika á sama tíma og Ísland keppir í Eurovision Una Torfa negldi slagara með Fleetwood Mac Maikai-hjónin eignuðust stúlku Bitcoin fjárfestar gerðu sér glaðan dag í Grósku Hvernig á að kenna hundi að rekja spor og slaka á Disneydraumurinn varð loks að veruleika Aðalsöngvari The Commitments stígur á svið í Háskólabíói Langþráður draumur Völu Eiríks rættist Sjá meira
Heltekin af þessari sögu: „Við breytum ekki fortíðinni“ „Við breytum ekki staðreyndum, við breytum ekki fortíðinni og við breytum ekki því sem gerðist,“ segir Tinna Hrafnssdóttir leikkona og leikstjóri. 31. mars 2022 11:31
„Fjölskylduleyndarmál sem enginn vildi tala um“ Kvikmyndin Skjálfti er byggð á metsölubók Auðar Jónsdóttur Stóra Skjálfta. Leikstjóri og handritshöfundur er Tinna Hrafnsdóttir og er óhætt að segja að valið sé vel í hlutverk en myndin skartar Anítu Briem, Eddu Björgvins, Jóhanni Sigurðarsyni, Bergi Ebba og fleiri frábærum leikurum. 20. apríl 2022 10:31