Símon Sigvaldason skipaður dómari við Landsrétt Eiður Þór Árnason skrifar 26. febrúar 2021 14:27 Símon hefur verið dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur frá árinu 2004 og dómstjóri frá árinu 2017. Samsett Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra hefur ákveðið að gera tillögu til forseta Íslands um skipun Símonar Sigvaldasonar, dómstjóra Héraðsdóms Reykjavíkur, í embætti dómara við Landsrétt frá 1. mars næstkomandi.
Frá þessu er greint á vef Stjórnarráðsins en fram kom á mánudag að Símon hafi verið metinn hæfastur að mati dómnefndar um hæfni umsækjenda. Embætti dómara við Landsrétt var auglýst laust til umsóknar þann 20. nóvember síðastliðinn og bárust alls þrjár umsóknir. Auk Símonar sóttu Jón Finnbjörnsson landsréttadómari og Ragnheiður Snorradóttir héraðsdómari um stöðuna. Embættið var auglýst eftir að Ragnheiður Bragadóttir var endurskipuð í Landsrétt og fyrri staða hennar losnaði. Var með 99,4 prósent sakfellingarhlutfall Fram kemur á vef Stjórnarráðsins að Símon hafi lokið embættisprófi frá lagadeild Háskóla Íslands árið 1989 og jafnframt lagt stund á nám við lagadeild Kaupmannahafnarháskóla og Penn State háskóla í Bandaríkjunum. Fram til ársins 1998, er Símon var skipaður skrifstofustjóri Hæstaréttar Íslands, starfaði hann meðal annars sem aðstoðarmaður dómara við Hæstarétt Íslands og sem skrifstofustjóri í dómsmálaráðuneytinu. Símon sinnti starfi skrifstofustjóra Hæstaréttar allt til ársins 2004 er hann var skipaður dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur en því embætti hefur hann gegnt síðan, þar af sem dómstjóri frá árinu 2017. Að auki hefur Símon sinnt fræðastörfum og kennslu við lagadeild Háskóla Íslands. Af öðrum störfum Símonar má nefna formennsku í dómstólaráði 2006-2017, setu í refsiréttarnefnd frá árinu 2007 auk þess sem hann hefur margoft tekið sæti sem varadómari í Hæstarétti Íslands. Fjallað var um Símon í fréttum Stöðvar 2 árið 2012 þegar athugun fréttastofu leiddi í ljós að hann hefði einungis sýknað í tveimur málum af síðustu 304 sakamálum sem hann hafði dæmt í við Hérðaðsdóm Reykjavíkur. Reiknaðist sakfellingarhlutfall hans þar með 99,4 prósent.
Dómstólar Vistaskipti Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Tengdar fréttir Dómarakapall í Landsrétti Þrír af fjórum dómurum við Landsrétt sem þáverandi dómsmálaráðherra færði upp á lista hæfnisnefndar hafa fengið nýja skipun við réttinn. Dómararnir sögðu ekki af sér samkvæmt fyrri skipunum fyrr en eftir að þeir voru skipaðir á nýjan leik. Nú er staða við réttinn laus til umsóknar. 2. desember 2020 19:21 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Innlent Stutt í næsta gos komi til gosloka Innlent „Það er hart sótt að okkar fólki“ Innlent Úrskurðurinn felldur úr gildi Innlent Háskólanemar halda lautarferð og stofna hreyfingu fyrir Palestínu Innlent Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Innlent Vilja endurupptöku í máli Weinstein Erlent Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda Innlent Sinueldur í Munaðarneslandi Innlent Vill hinn almenna launamann á þing Innlent Fleiri fréttir Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Stutt í næsta gos komi til gosloka „Það er hart sótt að okkar fólki“ Nemendur Flóaskóla slá í gegn með Langspilin sín Háskólanemar halda lautarferð og stofna hreyfingu fyrir Palestínu Jarðhræringar á Reykjanesi, flug til Færeyja og verkalýðsdagurinn Úrskurðurinn felldur úr gildi Vill hinn almenna launamann á þing Sinueldur í Munaðarneslandi Íslensk stjórnvöld haldin „sjúkri undirgefni“ Barn á Akureyri greindist með kíghósta Íslensk fjara á lista yfir bestu strendur heims Beint: Hátíðarhöld á verkalýðsdaginn 2024 Sniglar hægja á umferð Yrði gagnkynhneigður maður spurður sömu spurningar? Verkalýðsbaráttan aldrei verið jafn mikilvæg Einkamálefni forsetaframbjóðanda, verkalýðsdagurinn og háskólamótmæli „Hinsegin fólk þekkir vel að vera smættað niður í einkalíf sitt“ Hátíðardagskrá víða um land á verkalýðsdaginn Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Arnór Sighvatsson settur varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Hjólastólinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Fallið frá ráðningarferli og Hermann fylgir Sigurði Inga Allt að fimm milljóna króna sekt á hvern fisk Gamla stjarnan þótti ekki henta nútímakröfum Ekkert eftirlit með veðmálasíðum, landris við Svartsengi og milljónasektir fyrir eldislax Sjá meira
Dómarakapall í Landsrétti Þrír af fjórum dómurum við Landsrétt sem þáverandi dómsmálaráðherra færði upp á lista hæfnisnefndar hafa fengið nýja skipun við réttinn. Dómararnir sögðu ekki af sér samkvæmt fyrri skipunum fyrr en eftir að þeir voru skipaðir á nýjan leik. Nú er staða við réttinn laus til umsóknar. 2. desember 2020 19:21