„Þau hefðu bara átt góðan séns á því að fá hæli á Íslandi“

Hælisleitendur, sem vísað var úr landi í lok október, eru í hópi þeirra sem eiga rétt á að mál þeirra verði tekin til efnislegrar meðferðar samkvæmt nýjum úrskurði kærunefndar útlendingamála.

Lenya Rún Taha Karim, varaþingmaður Pírata.
Lenya Rún Taha Karim, varaþingmaður Pírata.
Auglýsing

Hópur hæl­is­leit­enda á rétt á að mál þeirra verði tekin til efn­is­legrar með­ferð­ar. Þetta kemur fram í úrskurði kæru­nefndar útlend­inga­mála sem birtur var í morg­un.

Lenya Rún Taha Karim, vara­þing­maður Pírata, vakti athygli á að því í upp­hafi þing­fundar í dag að margir sem til­heyra hópnum eru meðal þeirra sem vísað var úr landi í lok októ­ber þegar íslensk yfir­­­völd sendu alls 15 ein­stak­l­inga á brott með leiguflugi aftur til Grikk­lands. Ætl­unin var raunar að senda 28 manns, en 13 fund­ust ekki þegar lög­­­­­reglu­­­mann reyndu að hafa uppi á þeim til flutn­ings af landi brott.

„Það, að þessi hópur fólks hafi átt rétt á efn­is­legri með­ferð þýðir að þau hefðu bara átt góðan séns á því að fá hæli á Ísland­i,“ sagði Lenya undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag.

Auglýsing

Mörg sem eiga rétt á efn­is­legri með­ferð hefur verið vísað úr landi

„Sum þeirra hafa þó nú þegar verið send með valdi til Grikk­lands, þar sem sum eru heim­il­is­laus og bjarg­ar­laus og eiga afar lít­inn mögu­leika á því að koma aftur til Íslands, mæta í við­tal hjá Útlend­inga­stofnun og fylgja end­ur­upp­tök­unni eft­ir. Hvers vegna? Jú, því það er algengt að fólk á flótta í leit að hæli sé vega­bréfs­laust og þurfi að reiða sig á að fá grísk ferða­skil­ríki og það mun taka afar langan tíma því hæl­is­leit­enda­kerfið í Grikk­landi er lamað af álag­i,“ hélt Lenya áfram og tók þannig undir orð Helga Þor­steins­sonar Sil­va, lög­manns margra hæl­is­leit­enda sem til­heyra hópn­um, sem sagði í hádeg­is­fréttum RÚV að erfitt verði að fram­fylgja úrskurð­inum þar sem margir hæl­is­leit­end­anna hafa ekki gild ferða­skil­ríki.

Úr­skurður kæru­nefndar byggir á dómi Hér­aðs­dóms Reykja­víkur sem komst að þeirri nið­­ur­­stöðu í októ­ber að stjórn­­völd hafi rang­­lega kennt Suleiman Al Mas­ri, palest­ínskum hæl­­is­­leit­anda, um tafir í máli sínu á meðan ferða­tak­mark­anir voru í gildi vegna heims­far­ald­urs og honum var skylt að sýna nei­kvætt COVID-­próf. Hér­aðs­dómur komst að þeirri nið­ur­stöðu að stjórn­völdum var óheim­ilt að synja honum um end­­ur­­upp­­­töku máls.

Í kjöl­farið fór Helgi, lög­maður Suleiman, fram á að kæru­nefnd útlend­inga­mála úrskurð­aði í fleiri sam­bæri­legum mál­um. Úrskurð­irnir eru tæp­lega 30 og telur Helgi að þeir nái til um 100 hæl­is­leit­enda hér á landi.

„Þetta er á þeirra ábyrgð“

Lenya segir stjórn­völd bera ábyrgð á stöð­unni sem hæl­is­leit­end­urnir eru nú í. „Stjórn­völd, leidd af for­sæt­is­ráð­herra sem básúnar stöðugt um mann­rétt­indi og ber sér á brjóst fyrir að hafa gert mis­munun ólög­lega. Rík­is­stjórn­in, með Katrínu Jak­obs­dóttur við stjórn­völ­inn, vill frekar fljúga fólki úr landi í skjóli nætur með handafli. Isa­via er látið skína ljósi á mynda­vélar fjöl­miðla til þess að ekki sjá­ist til lög­regl­unnar fylgja hæl­is­leit­endum sem þau hafa í haldi inn í flug­vél.“

„Þetta er á þeirra ábyrgð. Það er á þeirra ábyrgð að þessu fólki hafi verið fleygt úr landi með ofbeld­is­fullum hætti. Það er á þeirra ábyrgð að þessu fólki sé ófært að leita réttar síns hér á landi vegna þess að það er heim­il­is­laust og vega­bréfs­laust Í Grikk­landi einmitt nún­a,“ sagði Lenya, sem spurði að lok­um:

„Stendur VG á bak­við útlend­inga­stefnu Sjálf­stæð­is­flokks­ins eða Vinstri grænna?“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent