„Alltaf hægt að halda í vonina en ég held að hún sé engin“ Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 24. október 2020 16:23 Bóndinn á Grænumýri segir riðusmitið vera mikið áfall. Vísir/Tryggvi
Bóndinn á Grænumýri í Skagafirði þar sem sterkur grunur leikur á riðusmiti hefur enga von um að endanleg niðurstaða sýnatöku leiði annað í ljós. Erfitt gæti reynst að farga öllum þeim skepnum sem þarf að skera niður. Greint var frá því í gær að mögulega þurfi að skera niður á þriðja þúsund fjár eftir að riðusmit kom upp í Skagafirði í Tröllaskagahólfi. Sterkur grunur leikur á að riðusmitað fé hafi farið frá Stóru-Ökrum Eitt á þrjá aðra bæi í sveitinni. Þar á meðal einn hrútur á Grænumýri, þar sem líklegast þarf að skera niður allt fé. „Það er bara mjög slæmt, það er bara áfall. Það er bara þannig,“ segir Guttormur Hrafn Stefánssson, bóndi á Grænumýri. Endanleg niðurstaða um hvort skera þurfi niður mun ekki liggja fyrir fyrr en í næstu viku. Guttormur er ekki bjartsýnn. „Það er alltaf hægt að halda í vonina en ég held að hún sé engin.“ Hann segir óvíst hvað taki við. „Það er bara óljóst, það er bara að taka stöðuna þegar úrskurðurinn kemur,“ segir Guttormur en atvinnuvegaráðuneytið þarf að fyrirskipa fyrir um niðurskurð eftir að endanleg niðurstaða um riðusmit liggur fyrir. Sýnatökur hafa farið fram víða í Tröllaskagahólfi í dag og í gær til að reyna að meta útbreiðslu riðusmitsins. „Þegar við fáum niðurstöðurnar varðandi þær fáum við betri mynd hversu víðtækt smitið er,“ segir Jón Kolbeinn Jónsson, héraðsdýralæknir á norðvestursvæði. Um gríðarleg magn fjár er að ræða, og erfitt gæti reynst að farga því verði skorið niður. Jón Kolbeinn Jónsson héraðsdýralæknir stendur í ströngu þessa dagana.Vísir/Tryggvi „Það er stærsta vandamálið varðandi förgunina, það er að finna hentuga leið til þess.“ Í fyrri riðusmitum hafa hræin verið send í brennslu en líklega verður niðurskurðurinn nú of umfangsmikill til þess. Matvælastofnun hefur óskað eftir leiðbeiningum frá Umhverfisstofnun um hvað megi og hvað megi ekki í þessum efnum. Líklegt er talið að hræin verði urðuð á urðunarrsvæðum þar sem svokallaðir áhættuvefir og sýkt hræ hafa verið urðuð fyrir. Jón Kolbeinn hefur verið í nánum samskiptum við bændur á svæðinu síðustu daga. Hann segir hljóðið þungt. „Flestir eru hugsi og leiðir. Þetta er mikið högg. Það er ekkert grín þegar menn þurfa að skera niður bústofninn sinn. Miklar tilfinningar í spilinu þannig að að við höldum ró okkur og hugsum vel til hvers annars. Það er engum að kenna þegar eitthvað svona kemur upp. Þetta er eitthvað frá forfeðrum okkar, þetta smitefni.“
Skagafjörður Landbúnaður Dýraheilbrigði Riða í Skagafirði Tengdar fréttir „Þetta er harmleikur“ Bóndi á bænum Grænumýri á Tröllaskaga, sem sér fram á að þurfa að farga hátt í 1100 fjár vegna riðu sem greindist í hrúti á bænum, segir það harmleik. Samfélagið sé lamað eftir þennan mikla skell. 23. október 2020 20:01 Stefnir í að fella þurfi þrjú þúsund fjár Sterkur grunur er um riðusmit á þremur bæjum á Tröllaskaga til viðbótar við Stóru Akra 1 þar sem smit varð staðfest í vikunni. Alls er um að ræða tæplega þrjú þúsundur kindur og lömb. 23. október 2020 16:15 Riðuveikin mikið reiðarslag fyrir bændur sem leggi líf og sál í ræktunarstarfið Bændur í Skagafirði bíða nú milli vonar og ótta eftir niðurstöðum úr sýnatöku eftir að riða greindist í ær á Stóru-Ökrum á dögunum. Sveitarstjórinn segir málið vera mikið högg og reiðarslag fyrir bændur sem leggi líf og sál í ræktunarstarfið. 23. október 2020 14:23 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Innlent Fico ekki talinn í lífshættu Erlent Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Innlent Sjö smáskjálftar við Sýlingarfell og Veðurstofan fylgist vel með Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði Innlent Segir seinlæti First Water stórfurðulegt Innlent Gjörbreytt bílpróf en segja hvergi slegið af kröfum Innlent „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Innlent Lögreglan þurfi nauðsynlega auknar rannsóknarheimildir Innlent Fleiri fréttir Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Sjö smáskjálftar við Sýlingarfell og Veðurstofan fylgist vel með „Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði Lögreglan þurfi nauðsynlega auknar rannsóknarheimildir Mikill meirihluti hlynntur dánaraðstoð Fátt ef nokkuð stöðvar eldislaxinn Segir seinlæti First Water stórfurðulegt Hæstiréttur segir tíma í flugvél vera vinnutíma Vill ræða brottvísun til Nígeríu í nefnd: „Skelfileg ásýnd á þessu máli“ Gjörbreytt bílpróf en segja hvergi slegið af kröfum Fagna framfaraskrefi ráðherra en vilja afnema tilvísanakerfið Þórdís í sendinefnd til Georgíu vegna umdeildra laga Maðurinn fannst heill á húfi Hundaskítur fyrir utan kosningamiðstöð Baldurs vekur spurningar Skilur uppnám skólasamfélagsins í Laugardal en horfa þurfi á staðreyndir Bréf Eggerts kom flatt upp á bæjarstjórnarmenn Flugvél Icelandair þurfti að snúa við Píratar hafa áhyggjur af skorti á eftirliti með lögreglu Úr 256 pakkningum á mánuði upp í sex þúsund Útlendingalög, tilvísanir og skólabygging í Laugardal Fólk setji símana á akstursstillingu til að koma í veg fyrir slys Hundrað milljarða fjárfesting í uppnámi Beðnir um að senda börnin sín með net vegna flugnafaraldurs „Nú verður þú bara að spyrja Bjarna“ Halla þótti standa sig best Ísland hástökkvari á Regnbogakortinu Stefni í endurtekningu á síðasta vori Nýir fatasöfnunargámar á leið til landsins Forsetaframbjóðendur mæta í kappræður á Stöð 2 og Vísi Sjá meira
„Þetta er harmleikur“ Bóndi á bænum Grænumýri á Tröllaskaga, sem sér fram á að þurfa að farga hátt í 1100 fjár vegna riðu sem greindist í hrúti á bænum, segir það harmleik. Samfélagið sé lamað eftir þennan mikla skell. 23. október 2020 20:01
Stefnir í að fella þurfi þrjú þúsund fjár Sterkur grunur er um riðusmit á þremur bæjum á Tröllaskaga til viðbótar við Stóru Akra 1 þar sem smit varð staðfest í vikunni. Alls er um að ræða tæplega þrjú þúsundur kindur og lömb. 23. október 2020 16:15
Riðuveikin mikið reiðarslag fyrir bændur sem leggi líf og sál í ræktunarstarfið Bændur í Skagafirði bíða nú milli vonar og ótta eftir niðurstöðum úr sýnatöku eftir að riða greindist í ær á Stóru-Ökrum á dögunum. Sveitarstjórinn segir málið vera mikið högg og reiðarslag fyrir bændur sem leggi líf og sál í ræktunarstarfið. 23. október 2020 14:23