Innlent

Bændur verði að skila af sér fé til af­lífunar

Árni Sæberg skrifar
Sigurborg Daðadóttir er yfirdýralæknir Matvælastofnunar.
Sigurborg Daðadóttir er yfirdýralæknir Matvælastofnunar. Stöð 2/Ívar Fannar

Eftir að riðan kom upp í Miðfjarðarhólfi voru tvær hjarðir skornar niður í sóttvarnarhólfinu, sem innihéldu um 1500 fjár samtals. Greining sýna stendur nú yfir og að sögn yfirdýralæknis gengur greiningin nokkuð vel og hann er vongóður um að það takist að stöðva útbreiðslu sjúkdómsins.

„Keldur eru langt komin, þau eru búin með þriðjung af sýnunum frá Bergsstöðum og helminginn frá Syðri-Urriðaá og þær niðurstöður gefa til kynna að útbreiðslan á riðuveiki í Miðfjarðarhólfi er ekki mikil. Sem eykur líkurnar á því að við getum stöðvað útbreiðsluna og mikilvægasti hlekkurinn í því er að við getum tekið hugsanlega smitbera úr umferð,“ segir Sigurborg Daðadóttir yfirdýralæknir í samtali við fréttastofu.

Einhverjir bændur eiga enn eftir að samþykkja að skila inn fénu en þeir hafa frest til 19. júní.

„En það liggur ekki enn þá fyrir samþykki hjá öllum en menn þurfa bara tíma til þess að átta sig á stöðunni og þessar upplýsingar auka líkurnar á því að menn átti sig á því að það er möguleiki, virkilega möguleiki, til þess að stöðva smitið,“ segir Sigurborg.

Segir reglugerðina úrelta

Bætur til handa þeim bændum sem verða fyrir því að hjarðir þeirra séu skornar niður duga skammt ef ætlunin er að hefja búskap aftur. Formaður Bændasamtakanna segir reglurnar barns síns tíma.

Gunnar Þorgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands.Stöð 2/Ívar Fannar

„Reglugerðin frá árinu 2001 er í raun löngu orðin úrelt. Þannig að það helst ekki í hendur við lagatúlkunina um bætur sem skulu greiddar vegna niðurskurðarins. Við höfum kallað eftir því að þetta verði endurskoðað og höfum gert í nokkur ár. Við veltum fyrir okkur hvað það á að taka langan tíma í að endurskoða það,“ segir Gunnar Þorgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×