Ný ríkisstjórn á morgun eða hinn Heimir Már Pétursson skrifar 26. nóvember 2021 12:01 Ný ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttir tekur við á ríkisráðsfundi á Bessastöðum annað hvort á morgun eða sunnudag. Vísir/Vilhelm Reiknað er með að Katrín Jakobsdóttir flytji stefnuræðu nýrrar ríkisstjórnar á Alþingi á miðvikudag. Stjórnarsáttmáli stjórnarinnar verður annað hvort kynntur á morgun eða á sunnudag.
Alþingi staðfesti í gærkvöldi öll þau kjörbréf sem landskjörstjórn gaf út að loknum alþingiskosningum. Atkvæði voru greidd um þrjár tillögur. Fyrst um tillögu Björn Levís Gunnarssonar fulltrúa Pírata í kjörbréfanefnd um að staðfesta engin kjörbréf sem var felld með 53 atkvæðum gegn sex en fjórir þingmenn sátu hjá. Kjörbréfanefndarfólkið Björn Leví Gunnarsson Pírötum og Diljá Mist Einarsdóttir Sjálfstæðisflokki fara yfir gögn nefndarinnar á Alþingi í gær.Vísir/Vilhelm Þá kom að tillögu Svandísar Svavarsdóttur fulltrúa Vinstri grænna og Þórunnar Sveinbjarnardóttur fulltrúa Samfylkingarinnar um að staðfesta 47 kjörbréf en ekki þau sem gefin voru út á þingmenn Norðvesturkjördæmis og á níu jöfnunarþingmenn um land allt. Tillagan var felld með 42 atkvæðum gegn sextán en fjórir greiddu ekki atkvæði. Birgir Ármannsson formaður kjörbréfanefndar og meirihluti nefndarinnar töldu ýmsa ágalla hafa verið á meðferð kjörgagna í Norðvesturkjördæmi. Ekki hefði hins vegar verið hægt að sýna fram á að þeir hefðu haft áhrif á úrslit kosninganna.Vísir/Vilhelm Tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Flokks fólksins um að staðfesta öll 63 kjörbréfin var síðan að lokum samþykkt með 42 atkvæðum gegn fimm en sextán þingmenn sátu hjá. Birgir Ármannsson formaður kjörbréfanefndar sagði í umræðunni um tillögurnar í gær að verkefnið væri engum þingmanni auðvelt. „Mér er óhætt að segja að hvorki við í kjörbréfanefndinni né aðrir sem að þessu koma hafa beinlínis óskað eftir því að þurfa að takast á við þetta,“ sagði Birgir. Björn Leví Gunnarsson fulltrúi Pírata í kjörbréfanefnd lagði til að kosið yrði á ný til Alþingis.Vísir/Vilhem Björn Leví sagði að gera ætti kröfur um öruggar kosningar. „Það sé hægt að sannreyna niðurstöður og það þurfi ekki að treysta einhverjum einum. Að kosningarnar séu bara réttar. Það er mikilvægt í lýðræðissamfélagi að kjósendur geti sannreynt að atkvæði þeirra sem bárust voru talin rétt,“ sagði Björn Leví. Logi Einarsson formaður Samfylkingarinnar vildi að kosið yrði aftur í Norðvesturkjördæmi. Logi Einarsson formaður Samfylkingarinnar sagði vinnubrögðin hjá kjörstjórn Norðvesturkjördæmis ekki hafa verið boðleg.Vísir/Vilhelm „Óboðleg varsla kjörgagna, ófullnægjandi samskipti við umboðsmann og ýmislegt annað teikna upp atburðarás sem einkenndist af óvandvirkni og kæruleysi. Almennu skeytingarleysi gagnvart þeirri nákvæmni sem krafist er í kosningalögum,“ sagði Logi um vinnubrögð yfirkjörstjórnar í Norðvesturkjördæmi. Reiknað er með að stjórnarsáttmáli nýrrar ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur verði lagður fyrir stofnanir stjórnarflokkanna þriggja á fjarfundum á morgun til kynningar og staðfestingar. Þegar þær hafa lagt blessun sína yfir stjórnarsáttmálann verður hægt að kynna nýja ríkisstjórn. Það gerist annað hvort á morgun eða sunnudag eftir ríkisráðsfund með forseta Íslands á Bessastöðum.
Alþingiskosningar 2021 Alþingi Norðvesturkjördæmi Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Tengdar fréttir Staðfestu kjörbréf allra þingmanna Alþingi staðfesti í kvöld kjörbréf allra þeirra 63 þingmanna sem Landskjörstjórn gaf út að lokinni endurtalningu atkvæða í Norðvesturkjördæmi. Alþingi samþykkti tillögu meirihluta kjörbréfanefndar þess efnis og verður því ekki boðað til uppkosningar. 25. nóvember 2021 21:35 Þrjár tillögur lagðar fyrir Alþingi í dag Þrjár tillögur varðandi afgreiðslu kjörbréfa verða lagðar fyrir fund Alþingis sem hefst klukkan eitt í dag. Meirihluti kjörbréfanefndar leggur til að öll kjörbréf sem Landskjörstjórn gaf út verði samþykkt. 25. nóvember 2021 10:52 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Hættur við að styðja Höllu Hrund Innlent Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Innlent „Ég held að Landskjörstjórn þurfi að endurskoða sína lögfræðiþekkingu“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Innlent Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Innlent Viktor og Kári heltast úr lestinni Innlent Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Innlent Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Innlent Þættirnir rími við margt í raunveruleikanum Innlent Fleiri fréttir Lítilsvirðing gagnvart konum eigi ekki að líðast hjá RÚV Spurningar til Baldurs minni á árið 1980 Veðmálaauglýsingar með stærstu stjörnum landsins „fá að grassera“ Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst í síðasta lagi á fimmtudag Aðalsöngvari the Commitments stígur á svið í Háskólabíói Samningar við sjómenn til níu ára í höfn Vinstri græn aldrei með minna fylgi Þættirnir rími við margt í raunveruleikanum Ógild framboð, flug í lamasessi og draumaferð í Disney „Ég held að Landskjörstjórn þurfi að endurskoða sína lögfræðiþekkingu“ Hættur við að styðja Höllu Hrund Meðferðarstöðinni Vík lokað í sumar Boða verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli í maí Kjörinn heiðursmeðlimur í bandarísku lista- og vísindaakademíuna Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Fyrstu tilnefningar til Vigdísarverðlauna Evrópuráðsþingsins kynntar á Alþingi Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Ellefu verða í framboði til embættis forseta Íslands Landlæknir fer með ákvörðun Persónuverndar fyrir dóm Stór hópur fanga sem ekki treystir stofnunum Viktor og Kári heltast úr lestinni Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Best ef forseti hefur ekki verið í stjórnmálastarfi Ráðherra kynnir nýtt mælaborð farsældar barna Skjálfti við Bláfjöll í morgun og óbreytt við Sundhnúk Ætlaði að ganga frá álverinu og upp á Keflavíkurflugvöll Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Sjá meira
Staðfestu kjörbréf allra þingmanna Alþingi staðfesti í kvöld kjörbréf allra þeirra 63 þingmanna sem Landskjörstjórn gaf út að lokinni endurtalningu atkvæða í Norðvesturkjördæmi. Alþingi samþykkti tillögu meirihluta kjörbréfanefndar þess efnis og verður því ekki boðað til uppkosningar. 25. nóvember 2021 21:35
Þrjár tillögur lagðar fyrir Alþingi í dag Þrjár tillögur varðandi afgreiðslu kjörbréfa verða lagðar fyrir fund Alþingis sem hefst klukkan eitt í dag. Meirihluti kjörbréfanefndar leggur til að öll kjörbréf sem Landskjörstjórn gaf út verði samþykkt. 25. nóvember 2021 10:52