Innlent

Utan­kjör­fundar­at­kvæða­greiðsla hefst í síðasta lagi á fimmtu­dag

Heimir Már Pétursson skrifar
Halla Tómsdóttir var ein fárra forsetaframbjóðenda sem mætti til að taka á móti úrskurði landskjörstjórnar í dag. Flestir sendu umboðsmenn sína. Hér heilsar hún Kristínu Edwald formanni landskjörstjórnar.
Halla Tómsdóttir var ein fárra forsetaframbjóðenda sem mætti til að taka á móti úrskurði landskjörstjórnar í dag. Flestir sendu umboðsmenn sína. Hér heilsar hún Kristínu Edwald formanni landskjörstjórnar. Vísir/Vilhelm

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna forsetakosninganna getur hafist í síðasta lagi á fimmtudag. Landskjörstjórn úrskurðaði ellefu framboð til embættis forseta Íslands gildi í dag en framboð tveggja uppfylltu ekki skilyrði.

Þrettán frambjóðendur skiluðu inn framboðum til embættis forseta Íslands á fundi landskjörstjórnar á föstudag. Hún úrskurðaði síðan í morgun að framboð Viktors Traustasonar og Kára Vilmundarsonar Hansen hefðu ekki uppfyllt skilyrði.

Kristín Edwald formaður landskjörstjórnar las upp þrettán úrskurði vegna forsetaframboðs á opnum fundi landskjörstjórnar í dag.Vísir/Vilhelm

„Í öðru framboðinu hafði einungis verið skilað níu meðmælendum og þegar að þeirri ástæðu er það ekki gilt. Hitt framboðið uppfyllti ekki ótvíræð skilyrði laga. Það er að segja það voru ekki heimilisföng eða lögheimili tiltekinna meðmælenda á listum. Þar voru heldur ekki á öllum stöðum kennitölur og auk þess skorti verulega á að nægilegur fjöldi meðmælenda væri,“ segir Kristín.

Þessir tveir frambjóðendur geta kært úrskurð sinn til úrskurðarnefndar kosningamála innan tuttugu klukkustunda, eða fyrir klukkan sjö í fyrramálið. Ef engin kæra berst verður hægt að hefja utankjörfundaratkvæðagreiðslu hér á landi og í sendiráðum Íslands í öðrum löndum á morgun en í síðasta lagi næst komandi fimmtudag 2. maí ef kærur berast.

Viktor Traustason segir í svari til fréttastofu að hann hafi tilkynnt úrskurðarnefnd kosningamála um að hann ætli að kæra úrskurðin. Berglind Svavarsdóttir, formaður úrskurðarnefndar kosningamála, staðfestir í samtali við fréttastofu að kæran hafi borist.

Allt stefnir þó í að frambjóðendur verði að minnsta kosti ellefu að þessu sinni og hafa þeir aldrei verið fleiri. Fyrra met var slegið þegar Guðni Th. Jóhannesson var fyrst kjörinn forseti fyrir tæpum átta árum en þá voru frambjóðendurnir níu.

Þessi ellefu (í stafrófsröð) verða örugglega í forsetaframboði samkvæmt úrskurði landskjörstjórnar í dag.Grafík/Hjalti

Þær átta kannanir sem gerðar hafa verið af Maskínu, Gallup og Prósenti undanfarnar vikur hafa sýnt litlar hreyfingar á fylgi þriggja efstu frambjóðenda. Katrín Jakobsdóttir hefur lengst af haft naumt forskot á Baldur Þórhallsson og Jón Gnarr í könnunum Maskínu og Gallups með Jón Gnarr í þriðja sætinu. Kannanir Prósents hafa hins vegar verið á annan veg með Baldur í forystunni og Katrínu í öðru sæti.

Hér sést þróun á fylgi fjögurra efstu frambjóðendanna allt frá könnun Maskínu hinn 8. apríl til könnunar Prósents í dag.Grafík/Hjalti

Hinn 15. apríl fór Halla Hrund Logadóttir aftur á móti að sækja verulega á og hefur síðan þá verið á hraðri uppleið hjá öllum könnunarfyrirtækjunum. Naut þannig mesta fylgis með 26,2 prósent hjá Maskínu á föstudag og hjá Prósenti með 28,5 prósent í könnun sem birt var í dag. Í hvorugri þessara kannana var hins vegar marktækur munur á fylgi þriggja efstu; Höllu Hrund, Baldri og Katrínu.


Tengdar fréttir

Hættur við að styðja Höllu Hrund

Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttarlögmaður kom mörgum á óvart í morgun þegar hann lýsti yfir stuðningi við forsetaframboð Höllu Hrundar Logadóttur orkumálastjóra. Hann hefur nú dregið þann stuðning sinn til baka.

Baldurs og Felix-fáni falur

Stuðningsmenn framboðs Baldurs Þórhallssonar og Felix Bergssonar hafa útbúið varning sem þeir selja til stuðnings framboðinu.

Viktor og Kári heltast úr lestinni

Tvö framboð til embættis forseta Íslands voru úrskurðuð ógild á fundi Landskjörstjórnar í dag. Þeir Viktor Traustason og Kári Vilmundarson Hansen fá ekki pláss á kjörseðlinum þegar kosið verður til forseta þann 1. júní næstkomandi.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×