Svöruðu kallinu og skjótast með atkvæði til „Sunny Kef“ Margrét Helga Erlingsdóttir, Snorri Másson og Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifa 14. maí 2022 21:56 Sverrir Helgason var ekki lengi að hugsa sig um þegar ákall barst um aðstoð. Hvunndagshetjan Sverrir Helgason og hans föruneyti svöruðu ákalli sem komið var á framfæri á Twitter en koma þurfti einu utankjörfundaratkvæði frá Reykjavík til Reykjanesbæjar.
Sverrir var ekki lengi að hugsa sig um, þrátt fyrir að vera úti að borða með vinum sínum, og ákvað strax að hjálpa einstaklingi sem sá ekki fram á að koma atkvæðinu sínu til skila í tæka tíð. Þar sem talningamálið í Borgarnesi er enn í fersku minni vildi Sverrir ekki hætta á að einhver annar myndi taka verkefnið að sér sem ekki væri treystandi fyrir atkvæðinu. Fréttastofa hitti Sverri og félaga á bensínstöð í Hafnarfirði. „Maður náttúrulega vissi af þessum skandal í fyrra þannig að við vildum hafa einhvern almennilegan en ekki einhvern vitleysing að sjá um þetta. Við erum ekki í Borgarnesi og þið þurfið ekki að hafa neinar áhyggjur,“ sagði Sverrir og skellti upp úr. Það mætti segja að Sverrir sé að fórna sér fyrir lýðræðið því hann sjálfur hefur ekki náð að greiða atkvæði. Hvunndagshetja hefur boðist til að koma atkvæðinu til skila. Við þökkum honum fyrir hans ómetanlega framlag í þágu lýðræðisins. https://t.co/1DJvgOcECa— Reykjavík (@reykjavik) May 14, 2022 „Ég hef ekki haft tíma til að kjósa, ég ætlaði að gera það áðan þannig að ég eiginlega get það ekki en ég treysti á að þessi hafi betri dómgreind heldur en ég, sem er reyndar mjög sennilegt sko.“ Sverrir segir að það sé mjög gott að geta glatt aðra. Stefnan er sett á Keflavík þar sem kosningagleði tekur við Sverri og hans félögum. Fylgst er með nýjustu tíðindum um allt land í kosningavaktinni á Vísi.
Sveitarstjórnarkosningar 2022 Reykjanesbær Reykjavík Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Hundrað milljarða fjárfesting í uppnámi Innlent Beðnir um að senda börnin sín með net vegna flugnafaraldurs Innlent Halla þótti standa sig best Innlent „Köld vatnsgusa“ framan í skólasamfélagið í Laugardal Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bréf Eggerts kom flatt upp á bæjarstjórnarmenn Innlent Forsætisráðherra Slóvakíu særður eftir skotárás Erlent Vann fimmtíu milljónir króna Innlent „Nú verður þú bara að spyrja Bjarna“ Innlent Fékk ekki að kveðja eiginmanninn fyrir flugið til Nígeríu Innlent Fleiri fréttir Fagna framfaraskrefi ráðherra en vilja afnema tilvísanakerfið Utanríkisráðherrar Íslands og Eystrasaltsríkjanna í Georgíu Maðurinn fannst heill á húfi Hundaskítur fyrir utan kosningamiðstöð Baldurs vekur spurningar Skilur uppnám skólasamfélagsins í Laugardal en horfa þurfi á staðreyndir Bréf Eggerts kom flatt upp á bæjarstjórnarmenn Flugvél Icelandair þurfti að snúa við Píratar hafa áhyggjur af skorti á eftirliti með lögreglu Úr 256 pakkningum á mánuði upp í sex þúsund Útlendingalög, tilvísanir og skólabygging í Laugardal Fólk setji símana á akstursstillingu til að koma í veg fyrir slys Hundrað milljarða fjárfesting í uppnámi Beðnir um að senda börnin sín með net vegna flugnafaraldurs „Nú verður þú bara að spyrja Bjarna“ Halla þótti standa sig best Ísland hástökkvari á Regnbogakortinu Stefni í endurtekningu á síðasta vori Nýir fatasöfnunargámar á leið til landsins Forsetaframbjóðendur mæta í kappræður á Stöð 2 og Vísi Munu lappa upp á vatnspóstinn í Aðalstræti 300 kröfur um húsleit og 294 um símahlustun síðustu fimm ár Tvö innbrot á heimili og líkamsárás með kylfu og piparúða Vann fimmtíu milljónir króna „Köld vatnsgusa“ framan í skólasamfélagið í Laugardal 1.715 börn fengið leikskólapláss Fékk ekki að kveðja eiginmanninn fyrir flugið til Nígeríu Vill sjá Latabæ birtast aftur í sjónvarpsstöðvum heims Drengurinn er fundinn Lýsa eftir Sigurði Fannari „Við lögleiðum heróínið en bönnum áfengið. Þetta er galið“ Sjá meira