Stærsti skjálftinn á svæðinu síðan kerfið var sett upp 1991 Árni Sæberg skrifar 14. maí 2022 17:57 Kristín Jónsdóttir, hópstjóri náttúruváreftirlits hjá Veðurstofu Íslands. Vísir/vilhelm Snarpur jarðskálfti varð í fjöllunum norðan við Lambafell við Þrengslin í dag. Hann var 4,8 að stærð. Jarðskjálftafræðingur segir auknar líkur á frekari jarðskjálfavirkni á svæðinu. Skjálftinn í dag er sá stærsti sem mælst hefur á svæðinu frá því að mælakerfi Veðurstofunnar var sett upp árið 1991.
Kristín Jónsdóttir, hópstjóri í náttúrurváreftirliti hjá Veðurstofu Íslands, segir tilkynningum hafa rignt yfir Veðurstofu Íslands en skjálftinn fannst á stóru svæði, frá Borgarfirði og allt austur í Fljótshlíð. Íbúar Hveragerðis fundu mest fyrir skjálftanum en engar tilkynningar um tjón hafa borist. Fréttamaður okkar ræddi við Kristínu þegar hún var nýkomin af vakt á Veðurstofunni. Kristín segir þó að lögreglan á Suðurlandi hafi farið í Raufarhólshelli eftir að fólk inni í hellinum óskaði eftir aðstoð hennar. Ekkert liggur fyrir um hvort slys hafi orðið á fólkinu að svo stöddu. Kristín segir að hellar séu ekki slæmir staðir að vera á í jarðskjálftum. Rætt var við Kristínu í kvöldfréttum Stöðvar 2. Hún segir að þegar skjálftar á borð við þennan verði séu alltaf auknar líkur á frekari skjálftavirkni. Ekki sé þó tilefni til að hafa áhyggjur af skjálfta á borð við Suðurlandsskjálftann eða eldgosi. Kristín segir töluverða spennuuppbyggingu hafa verið á Reykjanesskaga undanfarið en að óljóst sé hvort skjálftinn í dag tengist jarðhræringum á Reykjanesskaga undanfarið. ,,Það er erfitt að segja, ekki hægt að taka það út af borðinu, en erfitt að sjá hvort þetta tengist,“ segir Kristín. Þá segir hún að ljóst sé að skjálftinn tengist ekki starfsemi virkjunarinnar á Hellisheiði, en það sé alltaf athugað þegar skjálftar verða svo nálægt virkjunum. Um hefðbundnar jarðhræringar hafi verið að ræða. Takmörkuð eftirskjálftavirkni hefur fylgt í kjölfarið en þó má búast við henni áfram næsta sólahring og jafnvel daga. Fréttin hefur verið uppfærð.
Eldgos og jarðhræringar Jarðhræringar á Reykjanesi Hveragerði Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Köld vatnsgusa“ framan í skólasamfélagið í Laugardal Innlent Fékk ekki að kveðja eiginmanninn fyrir flugið til Nígeríu Innlent Vann fimmtíu milljónir króna Innlent „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Innlent „Við lögleiðum heróínið en bönnum áfengið. Þetta er galið“ Innlent Tvö innbrot á heimili og líkamsárás með kylfu og piparúða Innlent Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Álftin breyttist í dreka og rak hundinn upp úr með látum Innlent Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Erlent Fleiri fréttir Forsetaframbjóðendur mæta í kappræður á Stöð 2 og Vísi Munu lappa upp á vatnspóstinn í Aðalstræti 300 kröfur um húsleitir og 294 um símahlustun síðustu fimm ár Tvö innbrot á heimili og líkamsárás með kylfu og piparúða Vann fimmtíu milljónir króna „Köld vatnsgusa“ framan í skólasamfélagið í Laugardal 1.715 börn fengið leikskólapláss Fékk ekki að kveðja eiginmanninn fyrir flugið til Nígeríu Vill sjá Latabæ birtast aftur í sjónvarpsstöðvum heims Drengurinn er fundinn Lýsa eftir Sigurði Fannari „Við lögleiðum heróínið en bönnum áfengið. Þetta er galið“ Koma á fót framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur Vonleysi veðmálanna og eiginmanni vísað úr landi Álftin breyttist í dreka og rak hundinn upp úr með látum Sóttu veikan mann á skemmtiferðaskip umkringt hafís Settur forstjóri skipaður forstjóri „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Breyttar forsendur kalli á nýjan unglingaskóla í Laugardal Ævintýralandið Ísland séð úr háloftunum Dæmdir fyrir ofbeldishrinu Hefur áhyggjur af nýfæddum lömbum á Höfða Uppflettingar í sjúkraskrá: Segir málinu alls ekki lokið Ítrekar afsökunarbeiðni til vöggustofubarna og fjölskyldna þeirra Helmingi dræmari kjörsókn nú en í síðustu forsetakosningum Fulltrúar Stígamóta reyna að tryggja öryggi kvennanna í Nígeríu Heimsótti Julian Assange í Belmarsh-öryggisfangelsið Brottvísun hælisleitenda og dræm þátttaka í utankjörfundi Bein útsending: Má ég taka þátt... í lífinu? Vitni gefur ekki upp nafn vegna ótta við hefndaraðgerðir Sjá meira