Sport

Dag­­skrá dagsins í dag: Úr­slita­leikur um deildar­meistara­titilinn í Subway-deildinni

Smári Jökull Jónsson skrifar
Kári Jónsson verður í eldlínunni með Val í kvöld
Kári Jónsson verður í eldlínunni með Val í kvöld Vísir/Hulda Margrét

Njarðvík tekur á móti Val í svo gott sem hreinum úrslitaleik um deildarmeistaratitil karla í körfuknattleik í kvöld. Þá verður sýnt beint frá úrslitahelgi stórmeistaramóts rafíþrótta.

Stöð 2 Sport

Stjarnan og Þór Þorlákshöfn mætast í Garðabæ í Subway-deildinni í kvöld. Stjarnan þarf sigur því Höttur komst upp fyrir þá í töflunni í gær og eins og er eru Stjörnumenn ekki í úrslitakeppnissæti. Útsending úr Garðabæ hefst 18:05.

Klukkan 20:05 er svo komið að stórleik Njarðvíkur og Vals en liðin eru jöfn að stigum í töflunni. Valur vann fyrri leikinn með þrettán stigum og tryggir sér deildarmeistaratitilinn með sigri.

Klukkan 22:00 mætir Kjartan Atli Kjartansson í stúdió ásamt sérfræðingum og fer yfir alla leikina í þessari næstsíðustu umferð Subway-deildarinnar.

Stöð 2 Sport 4

Klukkan 22:00 verður sýnt beint frá Drive On mótinu á LPGA mótaröðinni í golfi.

Stöð 2 Esport

Bein útsending frá úrslitahelgi stórmeistaramótsins í rafíþróttum hefst klukkan 17:00.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×