Bono skoraði sigurmark Real

Vinícius Júnior fagnar sigurmarkinu.
Vinícius Júnior fagnar sigurmarkinu. AFP

Real Madrid fór upp í þriðja sæti spænsku 1. deildarinnar í fótbolta með 1:0-útisigri á Sevilla í dag.

Sigurmarkið kom á 55. mínútu og var skráð sem sjálfsmark á Bono markvörð Sevilla, en Bono fékk boltann í sig eftir misheppnað skot frá Vinícius Júnior.

Real er í þriðja sæti deildarinnar með 20 stig, fjórum stigum á eftir Real Sociedad og Atlético Madríd sem eru í efstu tveimur sætunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert