Kennarar ráðalausir vegna víðtæks en óskiljanlegs þjófnaðar Snorri Másson skrifar 15. september 2021 20:20 Hver stelur spritti, skiltum og klukkum? Íslenskir unglingar á TikTok. TikTok Það geisar þjófnaðarfaraldur í íslenskum grunnskólum, þar sem eftirsóttasti fengurinn eru fábrotnir innanstokksmunir eins og klukkur eða skilti. Sökudólgarnir eru undir alþjóðlegum áhrifum og æðsta takmark þeirra er að gorta sig af þýfinu á TikTok.
Þessi myndbönd eru fyrir allra augum á TikTok, þannig að það er ekki ýkja flókin rannsóknarvinna sem bíður skólayfirvalda sem ætla að hafa hendur í hári þjófanna. Að stela úr skólanum er innflutt hefð. Á TikTok er gríðarlegur fjöldi myndbanda birtur undir þeirri kaldhæðnu yfirskrift að verið sé að næla sér í „devious lick.“ Það er netslangur sem vísar til auðfengins en verðmæts ránsfengs. Þessa alþjóðlegu tískubylgju hefur greinilega borið að Íslandsströndum, en hún er talin hafa hafist í þessum mánuði. Þóranna Rósa Ólafsdóttir, skólastjóri í Rimaskóla, varð fyrst vör við þetta í síðustu viku. Síðan hefur þetta ágerst. Hún segir að áhrifagjarnir krakkar séu greinilega að taka siði að utan upp á sína arma og það sé líka að gerast víðar í skólum á höfuðborgarsvæðinu. „Og þetta er vandamál, af því að þetta kostar okkur,“ segir Þóranna. Að láta gera sérstök skilti er einkar kostnaðarsamt. Skólastjórinn hefur kallað eftir því að nemendur skili skiltunum, klukkunum og sprittinu - og hverju öðru því sem tekið hefur verið ófrjálsri hendi. Ella kynni skólinn að þurfa að ráðast í niðurskurð á móti þeim útgjöldum sem af hljótast og fyrsta afkomubætandi hugmyndin er að hafa slátur í matinn í unglingadeild, alla daga vikunnar.
Skóla - og menntamál Samfélagsmiðlar Framhaldsskólar TikTok Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Innlent Vitni gefur ekki upp nafn vegna ótta við hefndaraðgerðir Innlent Þurftu að farga 30 þúsund eintökum vegna forsetaframboðs Innlent Hundrað milljarða fjárfesting í uppnámi Innlent Beðnir um að senda börnin sín með net vegna flugnafaraldurs Innlent „Köld vatnsgusa“ framan í skólasamfélagið í Laugardal Innlent Fékk ekki að kveðja eiginmanninn fyrir flugið til Nígeríu Innlent „Við lögleiðum heróínið en bönnum áfengið. Þetta er galið“ Innlent Halla þótti standa sig best Innlent Fleiri fréttir Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Sjö smáskjálftar við Sýlingarfell og Veðurstofan fylgist vel með „Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði Lögreglan þurfi nauðsynlega auknar rannsóknarheimildir Mikill meirihluti hlynntur dánaraðstoð Fátt ef nokkuð stöðvar eldislaxinn Segir seinlæti First Water stórfurðulegt Hæstiréttur segir tíma í flugvél vera vinnutíma Vill ræða brottvísun til Nígeríu í nefnd: „Skelfileg ásýnd á þessu máli“ Gjörbreytt bílpróf en segja hvergi slegið af kröfum Fagna framfaraskrefi ráðherra en vilja afnema tilvísanakerfið Þórdís í sendinefnd til Georgíu vegna umdeildra laga Maðurinn fannst heill á húfi Hundaskítur fyrir utan kosningamiðstöð Baldurs vekur spurningar Skilur uppnám skólasamfélagsins í Laugardal en horfa þurfi á staðreyndir Bréf Eggerts kom flatt upp á bæjarstjórnarmenn Flugvél Icelandair þurfti að snúa við Píratar hafa áhyggjur af skorti á eftirliti með lögreglu Úr 256 pakkningum á mánuði upp í sex þúsund Útlendingalög, tilvísanir og skólabygging í Laugardal Fólk setji símana á akstursstillingu til að koma í veg fyrir slys Hundrað milljarða fjárfesting í uppnámi Beðnir um að senda börnin sín með net vegna flugnafaraldurs „Nú verður þú bara að spyrja Bjarna“ Halla þótti standa sig best Ísland hástökkvari á Regnbogakortinu Stefni í endurtekningu á síðasta vori Nýir fatasöfnunargámar á leið til landsins Forsetaframbjóðendur mæta í kappræður á Stöð 2 og Vísi Sjá meira