Bjarki Steinn á leið í lán á Ítalíu?

Bjarki Steinn Bjarkason leikur með Venezia.
Bjarki Steinn Bjarkason leikur með Venezia. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Bjarki Steinn Bjarkason, leikmaður Venezia í ítölsku A-deildinni í knattspyrnu, er líklega á leið í lán hjá C-deildarliði þar í landi.

Björn Már Ólafsson fjölmiðlamaður og sérfræðingur um ítalska fótboltann, segir þetta á Twitter og segir að Bjarki fari líklegast til Catanzaro á Suður-Ítalíu og leiki þar út tímabilið.

Bjarki Steinn er sitt annað tímabil í röðum Venezia og fékk á dögunum sitt fyrsta  tækifæri með liðinu í A-deildinni.

Catanzaro er í suðurriðli ítölsku C-deildarinnar, C-riðlinum, og er þar í sjöunda sæti af tuttugu liðum.

Tveir Íslendingar leika í C-deildinni en Emil Hallfreðsson leikur með Virtus Verona í A-riðlinum og Óttar Magnús Karlsson er í láni frá Venezia hjá Siena sem leikur í B-riðlinum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert