Postulakirkja lífvarðar Sigga hakkara og Menningarsetur múslima afskráð á þessu ári Kjartan Kjartansson skrifar 28. nóvember 2021 09:00 Menningarsetur múslima á Íslandi var til húsa í Ýmishúsinu við Skógarhlíð um hríð. Vísir Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra hefur afskráð tvö trúfélög það sem af eru þessu ári. Annað þeirra var Menningarsetur múslima á Íslandi sem varð gjaldþrota en hitt kristlegur söfnuður undir stjórn fyrrverandi hermanns sem starfaði um tíma sem lífvörður Sigga „hakkara“.
Samkvæmt upplýsingum frá sýslumannsembættinu sem hefur eftirlit með skráðum trú- og lífsskoðunarfélögum var Menningarsetur múslima á Íslandi fellt af skrá 12. mars. Það hafði áður breytt um nafn hét þá Moska hins miskunnsama á Íslandi frá júní 2020. Félagið var tekið til gjaldþrotaskipta seint á síðasta ári. Aðstandendur félagsins skráðu annað trúfélag í apríl en það gengur undir nafninu Íslamskt menningarsetur Íslands (Islamic Cultural Center of Iceland (ICCI)). Töluverður styr hafði staðið um starfsemi Menningarseturs múslima á Íslandi síðasta áratuginn. Ásakanir voru uppi um að félagið þægi fjármuni frá róttækum íslamistum erlendis, nokkuð sem leiðtogar þess hér sögðust ekki kannast við. Þá kom til töluverðra deilna á milli félagsins og Stofnunar múslima á Íslandi, meðal annars um húsnæði í Ýmishúsinu við Skógarhlíð í Reykjavík. Postulakirkja ekki talin uppfylla skilyrði laga Hitt félagið sem sýslumaður tók af skrá í fyrra var svonefnd Postulakirkja Beth-Shekhinah. Afskráningin var auglýst í janúar. Sýslumannsembættið veitti aðeins þær upplýsingar að félagið hefði verið afskráð vegna þess að það hafi ekki lengur verið talið uppfylla skilyrði þriðju greinar laga um trú- og lífsskoðunarfélag. Sú grein kveður meðal annars á um að félög verði að hafa náð fótfestu, hafa virka og stöðuga starfsemi og tilgangur þeirra stríði ekki gegn lögum, góðu siðferði eða allsherjareglu til að hljóta opinbera skráningu. Forstöðumaður Postulakirkjunnar var Dan Sommers. Í viðtali við hann í Fréttablaðinu árið 2018 kom fram að hann væri fyrrverandi hermaður úr danska hernum. Hann hafi einnig starfað sem lífvörður fyrir Sigurð Inga Þórðarson sem gjarnan hefur verið nefndur Siggi hakkari í fjölmiðlum. Sigurður Ingi hefur hlotið sakadóma fyrir barnaníð, fjársvik og þjófnað. Sommer sagði í viðtalinu að leiðir þeirra Sigurður Inga hefði skilið eftir að upp um glæpi hans komst. Í umfjöllun Stundarinnar um Sigurð Inga frá því í október kom fram að þeir Sommer hafi átt í einhvers konar viðskiptasambandi fram til 2019. Samkvæmt tölum Hagstofu Íslands voru félagar í Postulakirkjunni á bilinu átján til 29 á árunum 2014 til 2021. Á Facebook-síðu Postulakirkjunnar segir að hún sé „frumkristið samfélag karla og kvenna sem hefur það að markmiði að efla andlegt líf allra landsmanna“. Fyrir utan hefðbundið kirkjustarf sé mikil áhersla lögð á uppbyggjandi félagsstarf og samveru eins og heilsurækt, útivist, fræðslu og námskeiðahald. Uppfært 29.11.2021 Í upphaflegri útgáfu fréttarinnar stóð að sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra hefði afskráð trúfélögin. Það rétta er að sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra hefur eftirlit með starfsemi trú- og lífsskoðunarfélaga.
Trúmál Stjórnsýsla Mál Sigga hakkara Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Innlent Svona var Pallborðið með Höllu Hrund, Katrínu og Baldri Innlent „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Innlent Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Innlent Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin Innlent Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Fjöldi verkfallsboðana á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní Nýjustu skoðanakannanir, verkfallsaðgerðir á flugvellinum og týndur gaffall Halla Hrund líka vinsæll annar kostur Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Segja lýðræðis- og mannréttindabakslag staðreynd Ný sendiskrifstofa opnuð í Síerra Leóne Baldur segir niðurstöður nýjustu kannana vonbrigði Halla Hrund mælist með mest fylgi í nýrri könnun Maskínu Sjá meira