NBA dagsins: Giannis og Middleton með 68 stig er Bucks tryggðu sér oddaleik Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 18. júní 2021 15:30 Kevin Durant og Khris Middleton í baráttunni í nótt. Báðir skoruðu yfir 30 stig. Elsa/Getty Images Khris Middleton og Giannis Antetokounmpo sáu til þess að Milwaukee Bucks jöfnuðu metin gegn Brooklyn Nets í einvígi liðanna í undanúrslitum Austurdeildar NBA-deildarinnar í körfubolta. Staðan 3-3 og við fáum hreinan úrslitaleik um hvort liðið fer áfram. Milwaukee vann sannfærandi 15 stiga sigur í nótt, 104-89. Í raun var alltaf ljóst að Bucks myndi landa sigri en liðið byrjaði vel og lét forystuna aldrei af hendi. Nets voru án Kyrie Irving annan leikinn í röð og James Harden gerði hvað hann gat en það er ljóst að hann er ekki heill heilsu. Giannis fór að venju mikinn í liði Bucks en hann var gagnrýndur fyrir að keyra ekki nóg á tæpan Harden í síðasta leik liðanna. Gríska undrið skilaði 30 stigum og 17 fráköstum í leiknum en Khris Middleton stal senunni, hann skoraði 38 stig ásamt því að taka 10 fráköst, gefa 5 stoðsendingar og stela boltanum fimm sinnum. Jrue Holiday kom þar á eftir með 21 stig, 8 fráköst, 5 stoðsendingar og 4 stolna bolta. Brooklyn geta huggað sig við það að vera með heimavallarrétt en allir sex leikir liðanna til þessa hafa unnist á heimavelli. Nets eru því með smá forskot fyrir oddaleik liðanna sem fram fer á laugardagskvöld. Hjá Nets var Kevin Durant með „aðeins“ 32 stig og 11 fráköst en hann skoraði 49 stig er Nets komst 3-2 yfir í einvíginu. Þá lék hann allar 48 mínútur leiksins en í nótt spilaði hann 40 mínútur líkt og James Harden. Sá síðarnefndi skilaði 16 stigum, 7 stoðsendingum og 5 fráköstum. Klippa: NBA dagsins NBA er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. NBA körfuboltinn er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur. Körfubolti NBA Mest lesið Þetta gerðist í lokaumferðinni í enska | City meistari og Jóhann Berg kvaddi Enski boltinn Leik lokið: FH - Afturelding 29-32 | Mosfellingar taka forystuna Handbolti Usyk fyrstur til að vinna Fury Sport Daníel stórbætti þrjátíu ára Íslandsmet Jóns Arnars Sport Telur að Usyk hafi unnið vegna stríðsins í Úkraínu Sport Uppgjör: Njarðvík - Keflavík 71-81 | Keflvíkingar nálgast titilinn Körfubolti Manchester City Englandsmeistari fjórða árið í röð Fótbolti Skytturnar gerðu sitt en horfa samt á eftir titlinum Enski boltinn Klopp kvaddi með sigri Fótbolti Klopp segir að Liverpool verði í góðum höndum hjá Slot Enski boltinn Fleiri fréttir Uppgjör: Njarðvík - Keflavík 71-81 | Keflvíkingar nálgast titilinn Martin og félagar einum sigri frá undanúrslitum Dallas komið í úrslit Vestursins Elvar stigahæstur í grátlegu tapi Indiana svaraði fyrir og knúði fram oddaleik Jóhann: Brotnuðum auðveldlega Kristinn: Varnarleikur, varnarleikur og varnarleikur Valsmenn endurheimta Kára á besta tíma Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Grindavík 89-79 | Valsmenn leiða í baráttunni um titilinn Martin og félagar hófu úrslitakeppnina á stórsigri 92 prósent sigurvegara leiks eitt frá árinu 2011 hafa orðið Íslandsmeistarar „Það helltust yfir mann bara alls konar tilfinningar“ Jafnaði met mömmu sinnar 29 árum síðar Stærsta tap meistara í sögu úrslitakeppninnar „Frábært að ná sigri í fyrsta leik og í svona svakalegum leik“ „Svíður mjög mikið að við séum ekki nógu klókar til að klára“ Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 94-91 | Tvíframlengdur spennutryllir Besti Belginn í Subway deildinni samdi við Hauka Hafa aðeins meiri trú á Keflavík en Njarðvík í úrslitaeinvíginu Feðgar þjálfa Breiðablik: „Gott fyrir okkur báða að vera saman“ Doncic rankaði við sér og Dallas einum sigri frá úrslitum Vestursins Einbeitir sér að því að komast í NBA frekar en að spila með pabba sínum Birna með slitið krossband og missir af úrslitaeinvíginu Coach K aðstoðar Lakers í þjálfaraleit Rúnar Ingi skiptir um stól í Njarðvík Jokic tók við MVP-styttunni og sýndi svo hver er bestur Óbein yfirlýsing frá DeAndre Kane Hvað var LeBron að gera í Cleveland? Benedikt Guðmundsson hættur með Njarðvík: Ofboðslega þakklátur „Rosalega mikilvægt fyrir okkur og samfélagið í Grindavík“ Sjá meira
Milwaukee vann sannfærandi 15 stiga sigur í nótt, 104-89. Í raun var alltaf ljóst að Bucks myndi landa sigri en liðið byrjaði vel og lét forystuna aldrei af hendi. Nets voru án Kyrie Irving annan leikinn í röð og James Harden gerði hvað hann gat en það er ljóst að hann er ekki heill heilsu. Giannis fór að venju mikinn í liði Bucks en hann var gagnrýndur fyrir að keyra ekki nóg á tæpan Harden í síðasta leik liðanna. Gríska undrið skilaði 30 stigum og 17 fráköstum í leiknum en Khris Middleton stal senunni, hann skoraði 38 stig ásamt því að taka 10 fráköst, gefa 5 stoðsendingar og stela boltanum fimm sinnum. Jrue Holiday kom þar á eftir með 21 stig, 8 fráköst, 5 stoðsendingar og 4 stolna bolta. Brooklyn geta huggað sig við það að vera með heimavallarrétt en allir sex leikir liðanna til þessa hafa unnist á heimavelli. Nets eru því með smá forskot fyrir oddaleik liðanna sem fram fer á laugardagskvöld. Hjá Nets var Kevin Durant með „aðeins“ 32 stig og 11 fráköst en hann skoraði 49 stig er Nets komst 3-2 yfir í einvíginu. Þá lék hann allar 48 mínútur leiksins en í nótt spilaði hann 40 mínútur líkt og James Harden. Sá síðarnefndi skilaði 16 stigum, 7 stoðsendingum og 5 fráköstum. Klippa: NBA dagsins NBA er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. NBA körfuboltinn er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
NBA er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. NBA körfuboltinn er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Körfubolti NBA Mest lesið Þetta gerðist í lokaumferðinni í enska | City meistari og Jóhann Berg kvaddi Enski boltinn Leik lokið: FH - Afturelding 29-32 | Mosfellingar taka forystuna Handbolti Usyk fyrstur til að vinna Fury Sport Daníel stórbætti þrjátíu ára Íslandsmet Jóns Arnars Sport Telur að Usyk hafi unnið vegna stríðsins í Úkraínu Sport Uppgjör: Njarðvík - Keflavík 71-81 | Keflvíkingar nálgast titilinn Körfubolti Manchester City Englandsmeistari fjórða árið í röð Fótbolti Skytturnar gerðu sitt en horfa samt á eftir titlinum Enski boltinn Klopp kvaddi með sigri Fótbolti Klopp segir að Liverpool verði í góðum höndum hjá Slot Enski boltinn Fleiri fréttir Uppgjör: Njarðvík - Keflavík 71-81 | Keflvíkingar nálgast titilinn Martin og félagar einum sigri frá undanúrslitum Dallas komið í úrslit Vestursins Elvar stigahæstur í grátlegu tapi Indiana svaraði fyrir og knúði fram oddaleik Jóhann: Brotnuðum auðveldlega Kristinn: Varnarleikur, varnarleikur og varnarleikur Valsmenn endurheimta Kára á besta tíma Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Grindavík 89-79 | Valsmenn leiða í baráttunni um titilinn Martin og félagar hófu úrslitakeppnina á stórsigri 92 prósent sigurvegara leiks eitt frá árinu 2011 hafa orðið Íslandsmeistarar „Það helltust yfir mann bara alls konar tilfinningar“ Jafnaði met mömmu sinnar 29 árum síðar Stærsta tap meistara í sögu úrslitakeppninnar „Frábært að ná sigri í fyrsta leik og í svona svakalegum leik“ „Svíður mjög mikið að við séum ekki nógu klókar til að klára“ Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 94-91 | Tvíframlengdur spennutryllir Besti Belginn í Subway deildinni samdi við Hauka Hafa aðeins meiri trú á Keflavík en Njarðvík í úrslitaeinvíginu Feðgar þjálfa Breiðablik: „Gott fyrir okkur báða að vera saman“ Doncic rankaði við sér og Dallas einum sigri frá úrslitum Vestursins Einbeitir sér að því að komast í NBA frekar en að spila með pabba sínum Birna með slitið krossband og missir af úrslitaeinvíginu Coach K aðstoðar Lakers í þjálfaraleit Rúnar Ingi skiptir um stól í Njarðvík Jokic tók við MVP-styttunni og sýndi svo hver er bestur Óbein yfirlýsing frá DeAndre Kane Hvað var LeBron að gera í Cleveland? Benedikt Guðmundsson hættur með Njarðvík: Ofboðslega þakklátur „Rosalega mikilvægt fyrir okkur og samfélagið í Grindavík“ Sjá meira