Vill leiða jafnaðarmenn til sigurs á ný Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar 13. janúar 2022 12:43 Guðmundur Árni Stefánsson var útnefndur sendiherra Íslands í Indlandi árið 2018 en baðst lausnar í desember. vísir/vilhelm Guðmundur Árni Stefánsson sendiherra og fyrrverandi ráðherra sækist eftir því að leiða lista Samfylkingarinnar í Hafnarfirði í komandi sveitarstjórnarkosningum. Hann segist ekki vera í framboði til bæjarstjóra á þessari stundu en hann gegndi því embætti fyrir rúmum þrjátíu árum.
Það vakti athygli seint í gærkvöldi þegar Guðmundur Árni tilkynnti um endurkomu sína í pólitík. Hann hefur verið sendiherra fyrir hönd Íslands síðustu 16 árin en segir að hann og fjölskyldan séu komin með nóg af flakki milli heimshorna í bili. „Það er nú eiginlega þannig að þó ég hafi verið algjörlega frá stjórnmálum þá hef ég auðvitað fylgst vel með. Enda eru stjórnmálin, þó það megi auðvitað ekki nefna það í miðju Covid-fári, stjórnmál og pólitík eru eins konar vírus hjá þeim sem hafa tekið þátt,“ segir Guðmundur Árni. Hann sat sem félagsmálaráðherra í samsteypustjórn Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks frá árinu 1993 til 1994 en neyddist til að segja af sér eftir umdeilda skipan hans á mönnum í embætti. Hann sat svo á þingi til ársins 2005 fyrir Alþýðuflokk og Samfylkingu. Ekki í bæjarstjóraframboði Áður en hann fór á þing var hann í bæjarpólitíkinni í Hafnarfirði í 12 ár og sat sem bæjarstjóri í sjö ár á árunum 1985 til 1991. En sækist hann aftur eftir bæjarstjórastöðunni nú tæpum þrjátíu árum síðar? „Málið er alls ekki komið þangað. Og ég, svo ég taki það fram, er ekki að endurlifa forna frægð. Það er alls ekki það sem ég er að leggja upp með. Ég vil bara vera hluti af liðsheild og leiða hér jafnaðarmenn til sigurs í kosningunum í maí. Ég er ekki frambjóðandi til bæjarstjóra í augnablikinu,“ segir Guðmundur Árni. Endurkoma jafnaðarmanna tímabær Samfylkingarmenn halda prófkjör eftir tæpan mánuð. Guðmundur vonast til að hljóta skýrt umboð félagsmanna til að leiða lista flokksins. „Ég meina ég vil sjá fylgi jafnaðarmanna að minnsta kosti tvöfaldast í kosningunum og að við förum úr tveimur mönnum í fjóra hið minnsta,“ segir Guðmundur Árni. Jafnaðarmenn verði þannig forystuafl í bænum á nýjan leik. „Því er ekki að neita að tölurnar tala sínu máli og Samfylkingin, jafnaðarmannaflokkur Íslands, hefur átt betri daga. Síðustu kosningar hjá mér voru fyrir Samfylkinguna 2003 í þinginu og þá fengum við hér í Suðvesturkjördæmi 32 prósent atkvæða.“
Sveitarstjórnarkosningar 2022 Sveitarstjórnarmál Hafnarfjörður Samfylkingin Utanríkismál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Stærsti skjálftinn 3,5 að stærð Innlent Viðræður „á viðkvæmu stigi“ og fundi frestað til morguns Innlent Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Erlent Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Innlent „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Innlent Til vandræða á hóteli og réðst svo á mann við Hlemm Innlent Karlar líklegri að ljúga á kostnað annarra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Innlent Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum Innlent Fleiri fréttir Viðræður „á viðkvæmu stigi“ og fundi frestað til morguns Stærsti skjálftinn 3,5 að stærð Áslaug Arna mjólkar vel í fjósinu á Hvanneyri Líklega fundað fram eftir kvöldi Til vandræða á hóteli og réðst svo á mann við Hlemm Lífshættuleg meðhöndlun barna á vöggustofum og þrír eftir í bakgarðshlaupi Karlar líklegri að ljúga á kostnað annarra Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Leikskólar Árborgar verða lokaðir á milli jóla- og nýárs Völd óskast: Forseti allra kynslóða? Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Orku- og samgöngumál efst á lista nýs sveitarfélags Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Tíðindi í kjaradeilu flugvallarstarfsmanna og bein útsending úr Bakgarðshlaupinu Frestun verkfalla kemur til greina „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Sáttasemjari boðar til fundar: Fimm dagar til stefnu Orkuskipti, innflytjendalöggjöf og bensínstöðvalóðirnar „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Ný sýn fékk meirihluta Slagsmál enduðu með nefbroti Bíll logaði í Vesturbænum „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Sjá meira