Biden, Trump og 73 milljónir Bandaríkjamanna búnir að kjósa Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 28. október 2020 22:40 Donald Trump og Joe Biden. AP/Patrick Semansky
Joe Biden, forsetaframbjóðandi Demókrata og fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna, er búinn að kjósa í forsetakosningunum sem haldnar verða í Bandaríkjunum eftir tæpa viku. Gríðarlegur fjöldi samlanda hans er þegar búinn að kjósa, þar á meðal mótframbjóðandi hans og forseti Bandaríkjanna, Donald Trump, sem kaus á laugardaginn. „Jæja, ég var að kjósa,“ sagði Biden er hann ræddi við fjölmiðlamenn í heimabæ hans Wilmington í Delaware í Bandaríkjunum. Biden nýtti athyglina til þess að ræða um áætlanir sínar í heilbrigðismálum verði hann kjörinn forseti. Trump greiddi atkvæði í Flórída á laugardaginn þar sem hann sagðist hafa „kosið mann að nafni Trump.“ Samkvæmt samantekt Washington Post hafa alls 73,3 milljónir Bandaríkjamanna þegar kosið í kosningunum. Athygli vekur að sú tala er um helmingur heildaratkvæða sem greidd voru í síðustu forsetakosningum þegar 139 milljónir Bandaríkjamanna nýttu kosningarétt sinn. Þá kusu um fimmtíu milljónir Bandaríkjamanna áður en kjördagur rann upp. Þessi mikli fjöldi utankjörfundaratkvæða getur bent til þess að kjörsókn í komandi kosningum verði sú mesta í meira en heila öld. Þá er fjöldinn einnig talinn til marks um mikinn áhuga á baráttu þeirra Donalds Trump, Bandaríkjaforseta, og Joe Biden, frambjóðanda Demókrata, um embættið en líka að kjósendur vilji forðast að verða útsettir fyrir kórónuveirusmiti á kjörstað.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Forsetakosningar í Bandaríkjunum Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Innlent Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Innlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Innlent Svipar til gamalla óupplýstra rána Innlent Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Innlent Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert Innlent Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Innlent Vélsleðamaður lenti í snjóflóði Innlent Fleiri fréttir Átta ára stúlka sú eina sem lifði rútuslys af Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Kallaði eftir aðstoð dráttarbáts skömmu fyrir slysið Rafmyntakóngurinn í 25 ára fangelsi Fundu lík tveggja verkamanna sem voru á brúnni Stjórnmálamaðurinn Joe Lieberman látinn Segir árásarmennina hafa ætlað til Belarús Taíland skrefinu nær því að leyfa samkynja hjónabönd Dómararnir virtust efast um réttmæti málsins gegn FDA Skammar lögreglu fyrir að nota lego til að dylja andlit sakborninga Japanskt fyrirtæki skiptir ungbarnableyjum út fyrir fullorðinsbleyjur Þeir sem fóru í ána taldir látnir Sakar Bandaríkjamenn og Breta um aðkomu að árásinni Kenna öryggisráðinu um „galnar“ kröfur Hamas Skipið varð vélarvana rétt áður en það hafnaði á brúnni Segja minnst sjö bíla hafa fallið í ána Assange verður ekki framseldur strax Leita fólks í ánni eftir að brúin hrundi Hverjir eru ISKP? Skæðasti angi Íslamska ríkisins teygir anga sína til Moskvu Strangtrúaðir æfir yfir því að verða mögulega skikkaðir til herþjónustu Brú hrundi eftir árekstur í Baltimore Gerðu húsleit hjá Diddy í Los Angeles og Miami Beinir spjótunum enn að Úkraínu Stórmál fari Ísrael ekki eftir ályktun öryggisráðsins Netanjahú í fýlu við Biden Lækka trygginguna meðan Trump áfrýjar Öryggisráð SÞ samþykkir ályktun um vopnahlé á Gasa Heita hefndum en freista þess enn að bendla Úkraínu við árásina Vísindamenn vilja friðlýsa vísindalega mikilvæg svæði á tunglinu Sagrada Familia verði loks tilbúin árið 2034 Sjá meira