Sport

Erna Sól­ey og Hilmar Örn frjáls­í­þrótta­fólk ársins

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Erna Sóley Gunnarsdóttir er frjálsíþróttakona ársins 2022.
Erna Sóley Gunnarsdóttir er frjálsíþróttakona ársins 2022. FRÍ

Á föstudaginn var fór fram uppskeruhátíð Frjálsíþróttasambands Íslands í Laugardalshöll. Þar var meðal annars tilkynnt hvaða fólk hlyti nafnbótina „frjálsíþróttafólk ársins.“ Að þessu sinni voru það kúluvarparinn Erna Sóley Gunnarsdóttir og sleggjukastarinn Hilmar Örn Jónsson.

Erna Sóley átti frábært ár. Hún setti Íslandsmet utanhúss þar sem hún varpaði kúlunni 17,29 metra. Einnig varð hún Norðurlandameistari 23 ára og yngri sem og svæðismeistari innan-og utanhúss í Bandaríkjunum þar sem hún stundar nám. Hún keppti á sínu fyrsta stórmóti þegar hún tók þátt á Evrópumeistaramótinu sem fór fram í München í Þýskalandi.

Hilmar Örn átti einnig viðburðaríkt ár. Hann vannsterkt mót í Halle í Þýskalandi ásamt því að keppa á HM sem fór í Eugene í Oregon-fylki í Bandaríkjunum. Einnig tókst honum að kasta sig inn í úrslit Evrópumeistaramótsins í München.Hann endar efstur Íslendinga á stigalista alþjóðasambandsins eftir tímabilið.

Hilmar Örn er frjálsíþróttakarl ársins.Patrick Smith/Getty Images

Önnur verðlaun má sjá hér að neðan eða finna á vef FRÍ.

Stigahæsta afrek ársins samkvæmt stigatöflu WA: Guðni Valur Guðnason – 1157 stig fyrir 65,27 metra í kringlukasti.

Jónsbikar (besta spretthlaupsafrek): Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir. Náði stigahæsta afreki í spretthlaupi; 24,05sek í 200m innanhúss.

Stökkvari ársins kvenna: Irma Gunnarsdóttir – Íslandsmeistari í bæði þrístökki og langstökki.

Stökkvari ársins karla: Kristján Viggó Sigfinnson. Stökk 2,20m innanhúss og var annar á Heimsafrekaskrá U20 innanhúss 2022.

Millivegalengdahlaupari ársins kvenna: Aníta Hinriksdóttir 2:05,20m í 800 metra innanhúss sem er stigahæsta afrek konu 2022.

Millivegalengdahlaupari ársins karla: Baldvin Þór Magnússon. Átti frábært tímabil í Bandaríkjunum og komst í úrslit á HM innanhúss í 3000 metrum.

Fjölþrautarkona ársins: María Rún Gunnlaugsdóttir.

Fjölþrautarkarl ársins: Dagur Fannar Einarsson.

Óvæntasta afrekið: Daníel Ingi Egilsson; Stekkur 15,31 metra í þrístökki á Norðurlandamóti U23 sem er besti árangur Íslendings í 60 ár.

Þjálfari ársins: Pétur Guðmundsson, þjálfari Guðna Vals og Ernu Sóleyjar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×